Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 8
VIÐTAL Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég kann ágætlega við þetta hlutverk. Þetta reyndar breytir ekki miklu, þetta er bara eitthvert band sem maður þarf að hafa utan um aðra höndina,“ sagði Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnumaður hjá Hearts í Skotlandi, sem hefur verið fyrirliði liðsins megnið af yfirstandandi leiktíð þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall. „Þetta var fjórði eða fimmti leikurinn í röð sem ég er með bandið. Við erum tveir sem erum settir sem fyrirliði og varafyr- irliði, og hinn er Lee Wallace sem er meidd- ur. Það er svo Lithái hjá okkur sem var fyr- irliði [Marius Zaliukas] en hann fær ekki að spila vegna deilna um samningsmál. Maður er náttúrlega mjög ungur en ég hef verið hjá félaginu mjög lengi. Þetta er sjötta tímabilið mitt hérna og fjórða eða fimmta með aðalliðinu þannig að maður hef- ur verið lengi í þessum hópi. Ég hef verið lengur hérna en flestir, og ætli við Wallace höfum ekki verið hérna lengst. Ég er áfram sami leikmaður og ég hef verið og nota þetta ekkert sem afsökun til að rífa kjaft og drulla yfir menn. Ég reyni bara að vera almennilegur,“ sagði Eggert léttur. Rangers skoraði í blálokin Hann var einmitt fyrirliði þegar Hearts mætti stórliði Rangers, skosku meist- urunum, á laugardaginn. Hearts komst yfir í leiknum en tapaði 2:1 á marki í uppbót- artíma. „Þeir skoruðu alveg í blálokin. Við stóð- um alveg í þeim og það er svekkjandi að hafa misst þetta niður eftir að hafa komist yfir og haldið forystunni svona lengi,“ sagði Eggert. Eskfirðingurinn var á leið á æfingu með U21-landsliðinu hér heima þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær en Egg- ert hefur leikið stórt hlutverk í að koma liðinu í umspil um sæti í úrslitakeppni Evr- ópumótsins. Í umspilinu leikur Ísland ein- mitt gegn Skotum. Eggert hefur hins vegar spilað síðustu tvo leiki með A-landsliðinu og bjóst því kannski frekar við að vera að fara að spila með því við stórlið Portúgals, áður en KSÍ ákvað að þjálfari U21- landsliðsins fengi forgang fram yfir þjálf- ara A-landsliðsins, eða hvað? Frábært ef við kæmumst í úrslitin „Ég var ekkert frekar byrjaður að und- irbúa mig fyrir það því ég vissi að leikirnir væru á sama tíma og var bara tilbúinn í bæði verkefnin. Ég er meira en tilbúinn í að taka þátt í þessum leikjum með U21- landsliðinu því þetta er hápunktur fyrir okkur alla strákana sem höfum verið að vinna í að komast í úrslitakeppnina, og það yrði frábært fyrir íslenska knattspyrnu al- mennt ef við kæmumst áfram,“ sagði Egg- ert. Fregnir bárust reyndar af því um helgina í skoskum miðlum að einhverjir leikmanna íslenska U21-landsliðsins yrðu eftir hér á landi eftir fyrri leikinn við Skota á fimmtudaginn, til að spila með A- landsliðinu við Portúgal. Þar kom fram að Eggert gæti orðið einn þeirra, og myndi þar með missa af seinni leiknum í Skotlandi. „Eftir því sem ég best veit tek ég báða leikina með U21-landsliðinu. Ég sá eitthvað um þetta í skoskum miðlum og það er það eina sem ég veit,“ sagði Eggert í gær. „Ekki afsökun til að rífa kjaft“ Morgunblaðið/Eggert Fyrirliði Eggert Gunnþór Jónsson lék vel gegn Noregi og Danmörku með A-landsliðinu og er kominn í ábyrgðarstöðu hjá Hearts. Hann spilar með 21-árs landsliðinu gegn Skotum.  Eskfirðingurinn Eggert Gunnþór Jónsson fyrirliði Hearts í undanförnum leikjum  Orðinn einn leikjahæsti leikmaður Hearts, 22 ára gamall  Tilbúinn í slaginn við Skota með 21-árs landsliðinu 8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010 Snæfell og KR urðu Meistarar meistaranna í körfuknattleik í gær, Snæfell í karlaflokki og KR í kvennaflokki. Leikirnir voru í Stykkishólmi og þar lagði KR lið Hauka 72:58 og Snæfell hafði betur gegn Grindvíkingum, 102:93. Íslandsmeistarar KR höfðu undirtökin allan leikinn gegn bikarmeisturunum úr Grindavík og þar fór Margrét Kara Sturludóttir fremst í flokki með 25 stig og 10 fráköst auk þess að eiga 5 stoðsendingar. Hjá Grindavík var Ragna Mar- grét Brynjarsdóttir atkvæðamest með 16 stig og 17 fráköst. Í karlaflokki áttust við Íslands- og bik- armeistarar Snæfells og Grindavík, sem lék til úrslita í bikarnum í fyrra. Eftir jafnan og spenn- andi leik höfðu meistararnir betur á endasprett- inum og sigruðu. Pálmi Freyr Sigurgeirsson, fyrirliði Snæfells, fór fyrir sínum mönnum með 25 stig, Ryan Am- aroso gerði 22 stig og tók 11 fráköst, Jón Ólafur Jónsson var með 21 stig og 13 fráköst og Sean Burton gerði 20 stig og átti 13 stoðsendingar. Hjá Grindavík var Andre Smith með 23 stig og 10 stoðsendingar og Páll Axel Vilbergsson gerði 19 stig auk þess að taka 9 fráköst. Snæfell byrjar keppnistímabilið sannarlega glæsilega, eins og liðið endaði það síðasta. Á dögunum varð liðið Lengjubikarmeistari eftir sigur á KR, núna Meistari meistaranna með sigri á Grindavík og í fyrra var liðið bæði Ís- lands- og bikarmeistari. Eini bikarinn sem liðið er ekki með í sinni vörslu er deildabikarinn, en hann geyma KR-ingar, en Snæfell varð í sjötta sæti í deildinni í fyrra áður en úrslitakeppnin hófst. Iceland Express deild kvenna hefst á mið- vikudaginn með fjórum leikjum, meðal annars leik Hauka og KR, karlarnir hefja leik á fimmtudaginn en þá eru þrír leikir. skuli@mbl.is Snæfell og KR urðu meistarar Ljósmynd/Þorsteinn Eyþórsson Safnar Pálmi Freyr Sigurgeirsson, fyrirliði Snæfells, safnar bikurum í Hólminn. Ljósmynd/Þorsteinn Eyþórsson Sátt Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR-inga, sátt með afrakstur kvöldsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.