Morgunblaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. OKTÓBER 2010 KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Leikur KFÍ mun snúast í kringum bandaríska leikstjórnandann Craig Shoen í Iceland Express-deildinni í vetur. Schoen er 27 ára gamall og hefur þegar leikið tvö keppn- istímabil á Ísafirði en hann er frá Indiana í Bandaríkjunum. Þar er körfuboltahefðin mikil og þar ólst engin annar en goðsögnin Larry Bird upp. „Já, það passar. Satt að segja bjó ég alls ekki langt frá þeim stað þar sem Bird bjó á sín- um tíma,“ sagði Shoen þegar Morgunblaðið tók púlsinn á hon- um, daginn fyrir fyrsta leikinn í deildinni. Hann segist hafa verið kominn á fremsta hlunn með að hætta körfuknattleiksiðkun fyrir tveimur árum en endaði óvænt á Íslandi. Tengslanet Guðjóns er stórt „Ári eftir að ég kláraði háskóla íhugaði ég alvarlega að hætta í körfuboltanum og snúa mér að einhverju öðru. Þar til ég tók þátt í móti á heimaslóðum og skipu- leggjandi mótsins þekkir Guðjón Þorsteinsson á Ísafirði. Hann kom mér í samband við Guðjón og áður en ég vissi af var ég kominn til Ísafjarðar án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um Ísland,“ út- skýrði Shoen og honum hlýtur að líka vel fyrst hann er að hefja sína þriðju leiktíð á Ísafirði. „Hér er gott fólk og Ísafjörður er vin- gjarnlegur bær.“ Shoen segist hafa séð á eftir þjálfaranum Borce Ilievski en benti Ísfirðingum á landa sinn B.J. Aldrigde sem Sho- en kynntist hjá Georgtown (þó ekki Georgtown sem Patrick Ew- ing lék með). „Ég kunni af- skaplega vel við Borce og vildi gjarnan hafa hann áfram. Þegar félagaskipti hans voru um garð gengin spurðu stjórnarmennirnir mig hvort ég þekkti einhverja þjálfara og ég sagði þeim að Ald- rigde gæti haft áhuga. Fyrr en varði voru þeir komnir í samn- ingaviðræður við hann,“ sagði Shoen og hefur greinilega lúmskt gaman að því hversu hratt hlut- irnir geta gengið fyrir sig í körfu- boltaheiminum. Shoen ætti að vera ágætlega dómbær á íslenskan körfuknattleik og hann segir Ís- firðinga hafa sett stefnuna á að komast í úrslitakeppnina. „Ég hafði ekki tækifæri til þess að sjá marga leiki í Iceland Express- deildinni en hef þó séð nokkra. Miðað við það sem ég hef séð er spilaður mjög góður körfubolti í þessari deild. Við erum með gott lið og marga hæfileikaríka leik- menn. Ég tel okkur eiga góða möguleika á því að gera góða hluti á þessari leiktíð. Eins og staðan er núna reynum við að komast í úr- slitakeppnina og fyrir fram erum við bara bjartsýnir,“ sagði Shoen ennfremur og bendir á að lið KFÍ sé gerbreytt frá síðustu leiktíð. Sterkara lið en í fyrra „Þetta er gerbreytt lið. Það eru bara fjórir leikmenn sem spiluðu í fyrra og eru enn í liðinu. Það er slæmt og ég var hrifinn af liðinu í fyrra. Ég tel hins vegar að við séum einnig með mjög gott lið núna. Við erum sterkari og með meiri líkamlega burði. Við spilum talsvert öðruvísi en við gerðum á síðustu leiktíð og það er skilj- anlegt vegna þess að við höfum skipt um þjálfara. Við höfum spil- að hraðan körfubolta að und- anförnu. Vonandi tekst okkur að halda því áfram og vera skemmti- legt lið á að horfa,“ sagði þessi geðþekki Bandaríkjamaður við Morgunblaðið. Indiana – Ísafjörður  Sveitungi Larry Bird stjórnar leik Ísfirðinga  Craig Shoen er á sínu þriðja tímabili hjá KFÍ  Frábær leikmaður sem ætlaði að hætta en endaði fyrir vestan Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Leikstjórnandi Craig Shoen er leikstjórnandi KFÍ en hann er á sínu þriðja tímabili með Ísfirðingum. Kristján Jónsson kris@mbl.is Fyrir vestan telja fróðir menn um körfuknatt- leik að KFÍ tefli fram samkeppnishæfu liði á komandi leiktíð og kannski rúmlega það. Körfuknattleiksunnendur mega eiga von á því að KFÍ spili hraðan körfuknattleik og muni á góðum degi bjóða upp á stórar tölur í stiga- skorun. Áhorfendur ættu því ekki að verða sviknir af því að borga sig inn á leiki með liðinu í vetur. Gangi þetta eftir má búast við því að KFÍ fái mikinn stuðning, hvort sem er á heima- eða útivelli. Fá lið ef nokkurt höfðu jafn marga stuðningsmenn að baki sér þegar KFÍ var upp á sitt besta á tíunda áratug. Ef liðið mun sýna lipur tilþrif eins og margt bendir til mun það léttilega ná 500 manns á heimaleiki og brottfluttir Ísfirðingar munu styðja við liðið á höfuðborgarsvæðinu. Takist félaginu að end- urvekja þessa stemningu gæti liðið komið á óvart og læðst inn í úrslitakeppnina. Líkurnar á því að margir Vestfirðingar muni koma við sögu hjá liðinu eru þó litlar og það gæti mögu- lega dregið úr stemningunni. Körfuknattleiksunnendur ættu að beina sjónum sínum að bandaríska leikstjórnand- anum Craig Schoen sem er á sínu þriðja ári á Ísafirði. Hann lætur ekki mikið yfir sér þar sem hann er lágvaxinn en honum hafa ekki haldið nein bönd í 1. deildinni síðustu tvær leiktíðir. Hann getur hvort heldur sem er rað- að niður körfunum eða spilað samherja sína uppi. Englendingurinn Carl Josey og Bosn- íumaðurinn Edin Sulic lofa báðir góðu en ekki er komin reynsla á þeirra getu. Af íslenskum leikmönnum binda Ísfirðingar vonir við að Daði Berg Grétarsson muni blómstra. Daði er 19 ára gamall og var öflugur með Ármanni í 1. deildinni á síðustu leiktíð og hefur leikið með yngri landsliðunum. Einnig byrjaði Ari Gylfason með miklum látum í sigri á Stjörnunni í Lengjubikarnum á dögunum en hann er góð skytta og mun deila skotbak- varðastöðunni með Panche Ilievski. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Þjálfarinn Bandaríkjamaðurinn B.J. Aldridge stýrir KFÍ liðinu í vetur í fyrsta sinn. Með hraða og stemningu að vopni Nokkrar breytingar hafa orðið áliði KFÍ sem sigraði í 1. deild- inni með sannfærandi hætti á síð- ustu leiktíð. Fyrir það fyrsta hafa orðið þjálfaraskipti. Borce Ilievski hætti eftir nokkurra ára starf fyrir vestan og tók við liði Tindastóls. Við starfi hans tók Bandaríkjamaðurinn BJ Aldridge og þreytir hann frum- raun sína sem aðalþjálfari hjá meist- araflokksliði. Aldridge er einungis 31 árs gamall en hefur þó talsverða reynslu sem aðstoðarþjálfari í bandaríska háskólaboltanum og yngri flokka þjálfun.    KFÍ hefur misst sex leikmenn fráþví í fyrra. Fyrirliðinn Þórir Guðmundsson ákvað að hætta vegna anna en einnig eru Atli Hreinsson, Guðmundur Guðmundsson og Al- mar Guðbrandsson horfnir á braut. Auk þeirra fóru erlendu leikmenn- irnir Igor Tratnik og Florijan Jov- anov.    KFÍ hefur áhinn bóginn fengið talsverðan liðsstyrk. Þrír er- lendir leikmenn hafa bæst við hópinn, Nebojsa Knezevic frá Serbíu, Carl Jo- sey frá Englandi og Edin Sulic sem er Bosníumaður en hefur búið í Bandaríkjunum frá unga aldri. Einnig komu þeir Ari Gylfason og Daði Berg Grétarsson vestur í sumar.    KFÍ lék ífyrsta skipti upp í efstu deild haustið 1996 en Guðni Ó Guðnason, fyrr- um landsliðs- maður, var þá spilandi þjálfari. Næstu ár á eftir tefldi KFÍ fram sterku liði þar sem Friðrik Stef- ánsson og Ólafur Jón Ormsson fóru fremstir í flokki. KFÍ komst í bik- arúrslit árið 1998 en tapaði fyrir Grindavík. Ári síðar náði KFÍ sínum besta árangri á Íslandsmótinu. Hafnaði í 3. sæti í deildinni en féll úr keppni í undanúrslitum gegn Njarð- vík. Friðrik og Bandaríkjamaðurinn David Bevis voru þá horfnir á braut en Osvaldur Knudsen og Tómas Hermannsson höfðu hins vegar bæst við leikmannahópinn.    KFÍ lék síðast í efstu deild vet-urinn 2004-2005 en hafnaði í neðsta sæti. Ungur miðherji Sig- urður Þorsteinsson fékk þá að spreyta sig en hann leikur nú með Keflavík sem kunnugt er. Joshua Helm og Pétur Már Sigurðsson voru þá atkvæðamestir hjá KFÍ. Panche Ilievski 28 ára Bakvörður (1.85 m) Hjalti Már Magnússon 21 árs Framherji (1.92 m) Craig Schoen 27 ára Bakvörður (1.78 m) Daníel Midgley 21 árs Bakvörður (1.80 m) Darco Milosevic 24 ára Framherji (1.96 m) Daði Berg Grétarsson 19 ára Bakvörður (1.86 m) Nebojsa Knezevic 23 ára Framherji (1.96 m) Ari Gylfason 21 árs Bakvörður (1.88 m) Carl Josey 24 ára Bakvörður (1.92 m) Gautur Arnar Guðjónsson 17 ára Miðherji (2.03 m) Edin Sulin 23 ára Miðherji (2.03 m) Sigmundur R. Helgason 17 ára Bakvörður (1.86 m) Leó Sigurðsson 18 ára Bakvörður (1.88 m) Guðni Ó. Sigurðsson 18 ára Bakvörður (1.83 m) Jón Kristinn Sævarsson 18 ára Bakvörður (1.88 m) Hákon Vilhjálmsson 17 ára Framherji (1.90 m) Ingvar Viktorsson 16 ára Framherji (1.90 m) Sævar Vignisson 18 ára Bakvörður (190 m) Leikmannahópurinn KFÍ VETURINN 2010-2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.