Morgunblaðið - 09.11.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.11.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 2010 Kristján Jónsson kris@mbl.is Íslandsmeistarar KR mættu með nokkuð breytt lið til leiks í haust og eru öflugir leik- menn horfnir á braut frá því í vor þegar liðið vann Hamar í skemmtilegri fimm leikja úr- slitarimmu um titilinn. Signý Hermannsdóttir er í fríi frá körfubolta og besti leikmaður úr- slitakeppninnar Unnur Tara Jónsdóttir er far- in utan til náms. Auk þess er KR ekki með bandarískan leikmann í sínum röðum en Jenny Pfeiffer-Finora lék með liðinu í fyrra. Hún var svo sem engin burðarás í liðinu en góð skytta og gat raðað niður skotunum þegar hún hitn- aði. Var einfaldlega fín viðbót við frábæran leikmannahóp. Signý hefur verið einn öflugasti leikmaður deildarinnar árum saman og fáir ís- lenskir leikmenn hafa staðið henni snúning í teignum. Ef KR-liðið er metið eins og það er skipað núna, þá er ekki óvarlegt að ætla að það standi Keflavík að baki og hugsanlega einnig Hamri. Hins vegar telja margir körfuboltaspekingar að KR-liðið eigi eftir að styrkjast verulega þegar á líður veturinn. Signý hefur til að mynda ekki gefið út neinar formlegar yfirlýs- ingar um hvort hún ætli að leggja skóna á hill- una eða sé í tímabundnu fríi. Það þyrfti því ekki að koma á óvart þó Signý myndi bætast við leikmannahóp KR í vetur og þá verður yfir- bragðið á liðinu talsvert annað en nú er. Gerist það ekki má telja líklegt að KR bæti við sig bandarískum leikmanni eftir áramót. Ef til þess kemur, og KR fær leikmann sem fellur vel inn í liðið, þá lítur titilvörnin alls ekki illa út fyrir KR. Ekki er líklegt að KR muni bæði fá Signýju og erlendan leikmann til sín. Leikstjórnandinn Hildur Sigurðardóttir er körfuknattleiksáhugafólki að góðu kunn og hún verður áfram einn besti leikmaður deild- arinnar. Auk hennar verða Margrét Kara Sturludóttir og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir í lykilhlutverkum rétt eins og í fyrra. Einnig er nú pláss fyrir aðra leikmenn til að blómstra. Morgunblaðið/Eggert Þjálfarinn Hrafn Kristjánsson tók við KR- liðinu í sumar af Benedikt Guðmundssyni. Leikmannahópurinn ekki fullskipaður Íslandsmeist-arar KR hafa misst sterka leik- menn frá síðustu leiktíð. Þar best hæst að miðherj- inn og fyrrver- andi landsliðsfyr- irliðinn Signý Hermannsdóttir hefur ákveðið að taka sér hvíld frá körfuknattleiksiðkun. Signý hefur ekki gefið neitt út um framhaldið en hún hefur alla vega ekkert æft með KR-liðinu á þessari leiktíð. Unnur Tara Jónsdóttir lagði land undir fót og hélt til Ungverjalands og nemur þar læknisfræði. Munar um minna því Unnur var kjörin besti leik- maður úrslitakeppninnar. Banda- ríski leikmaðurinn Jenny Pfeiffer- Finora er farin af landi brott og Heiðrún Kristmundsdóttir er farin til Bandaríkjanna. Auk þess eru þær Brynhildur Jónsdóttir, Jóhanna Sveinsdóttir, Gréta Mar Jós- ephsdóttir og Dóra Þrándardóttir hættar eða í fríi frá boltanum.    KR fékk öflugan leikmann í sum-ar þegar Hafrún Hálfdán- ardóttir kom frá Hamri. Rut Herner Konráðsdóttir kom frá Þór á Ak- ureyri en auk þess komu þær Berg- dís Ragnarsdóttir og Aðalheiður Ragna Óladóttir frá Fjölni í haust. Fjórir leikmenn gengu jafnframt upp í meistaraflokk úr yngri flokk- unum, Ingunn Erla Kristjánsdóttir, Kristbjörg Pálsdóttir, Helga Hrund Friðriksdóttir og Ragnhildur Arna Kristinsdóttir.    Hrafn Krist-jánsson tók við þjálfun liðsins í sumar en Bene- dikt Guðmunds- son hætti óvænt með liðið í vor eft- ir að hafa stýrt því til sigurs í Ís- landsmótinu. Hrafn fékk gamlan félaga sinn úr KFÍ, Baldur Inga Jónasson, sér til aðstoðar en báðir eru þeir menntaðir íþróttakennarar með mikla reynslu af þjálfun.    KR hefur komist í úrslitarimm-una um Íslandsmeistaratitilinn síðustu þrjú árin. Árið 2008 tapaði KR fyrir Keflavík 0:3 í fremur ójafnri rimmu en árið 2009 fór rimma KR og Hauka í oddaleik í Hafnarfirði. Þar höfðu Haukar bet- ur eftir spennandi leik. Í vor var Hamar andstæðingur KR og aftur fór úrslitarimman í fimm leiki.    KR hafnaði í neðsta sæti deild-arinnar árið 2006 og lék því í 2. deild tímabilið 2006-2007. Eins og sjá má af framansögðu náði félagið sér fljótt á strik aftur. VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is Margrét Kara Sturludóttir hefur komið eins og stormsveipur inn í KR- liðið frá því að hún gekk í raðir félags- ins á miðju tímabili 2008-2009. Síðan þá hefur KR bæði unnið bikarinn og deildina og Kara er nú ein af lyk- ilmönnum liðsins og auk þess með þeim reyndari þó hún sé aðeins 21 árs gömul. „Hildur Sig. er reynsluboltinn okkar en svo eru ég, Helga Einars og Guðrún Gróa eins og gömlu konurnar í liðinu sem er frekar fyndið,“ sagði Margrét Kara þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hennar en þessar þrjár sem um ræðir eru ekki nema rúmlega tvítugar og Hildur er ekki orðin þrítug. Kara hefur ekki áhuga á því að hampa sjálfri sér mikið en hún hefur skorað rúmlega 22 stig að með- altali í þeim deildaleikjum sem búnir eru í haust. „Ég verð bara að taka af skarið í mínu liði þegar einhverjir leikmenn hafa horfið á braut. Auðvit- að gerir maður það og reynir að sinna sínu, sama hvaða hlutverk það er.“ „Teknar og flengdar“ KR tapaði illa fyrir Keflavík í úr- slitaleik Lengjubikarsins í aðdrag- anda Íslandsmótsins. Kara segir það hafa dregið úr sjálfstrausti leikmanna en Íslandsmeistararnir eru með 50% vinningshlutfall eftir sex leiki. „Gengi okkar í deildinni er engin óskabyrjun. Frammistaðan í úrslita- leiknum í Lengjubikarnum kom svo- lítið aftan að okkur og okkur var svo- lítið brugðið eftir þann leik. Við vorum náttúrlega teknar og flengdar og mér fannst það slá okkur svolítið út af laginu. Við skriðum aðeins inn í skelina en við verðum bara að vinna með þetta. Við erum með nýtt lið, sem er fullt af ungum og nýjum stelp- um. Við erum að stilla okkar strengi saman og það er flott stemning í hópnum. Ég held að þetta sé flott blanda af leikmönnum og framtíðin er björt auk þess sem það er flott fólk að vinna í kringum þetta hjá okkur.“ Þegar talið berst að toppbarátt- unni þá segist Kara reikna með því að fimm lið verði öflug eins og í fyrra. „Ég reikna með því að Keflavík verði fremst í flokki en þar á eftir muni koma þrjú lið, KR, Haukar og Ham- ar. Einnig finnst mér að lið Njarðvík- ur hafi verið mjög vanmetið fyrir tímabilið og ég tel að þær verði mun ofar en þeim var spáð. Það verður mjög spennandi að sjá hvaða lið verða í A-deildinni og það hefur verið spenna í kringum það síðustu tvö ár- in,“ sagði Kara en liðunum átta er skipt upp í tvær deildir á miðjum vetri, áður en að úrslitakeppninni kemur. Breytingar af hinu góða KR hefur tvívegis skipt um þjálf- ara frá því að Jóhannes Árnason sneri sér að lögmannsstörfum vorið 2009. „Engir tveir þjálfarar eru eins en okkur líkar voðalega vel við Hrafn. Nú taka við nýjar æfingar og nýjar áherslur sem er bara jákvætt og gott. Mér finnast breytingar ávallt vera af hinu góða. Það eru skemmtilegir og spennandi tímar hjá KR,“ sagði Mar- grét Kara Sturludóttir við Morg- unblaðið. „Var svolítið brugðið“  Margrét Kara er ein af gömlu konunum í KR  Segir meistarana vera að stilla saman strengina  Voru slegnar út af laginu eftir stórt tap gegn Keflavík Morgunblaðið/Ómar Máttarstólpar Hildur Sigurðardóttir og Margrét Kara Sturludóttir eru í algerum lykilhlutverkum hjá meistaraliði KR. Guðrún G. Þorsteinsdóttir 21 árs Bakvörður (1,75 m) Aðalheiður Ragna Óladóttir 22 ára Bakvörður (1,75 m) Kristbjörg Pálsdóttir 17 ára Bakvörður (1,72 m) Sigríður Elsa Eiríksdóttir 15 ára Bakvörður (1,67 m) Rakel Margrét Viggósdóttir 29 ára Framherji (1,74 m) Bergdís Ragnarsdóttir 18 ára Framherji (1,84 m) Helga Hrund Friðriksdóttir 17 ára Bakvörður (1,75 m) Þorbjörg Friðriksdóttir 19 ára Miðherji (1,82 m) Margrét Kara Sturludóttir 21 árs Framherji (1,75 m) Helga Einarsdóttir 22 ára Miðherji (1,84 m) Rut Herner Konráðsdóttir 21 árs Bakvörður (1,73 m) Hildur Sigurðardóttir 29 ára Bakvörður (1,72 m) Ragnhildur Kristinsdóttir 16 ára Bakvörður (1,62 m) Hafrún Hálfdánardóttir 20 ára Framherji (1,83 m) Ingunn Kristjánsdóttir 16 ára Framherji (1,75 m) Leikmannahópurinn KR VETURINN 2010 - 2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.