Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.05.2011, Blaðsíða 5
Ljósmynd/Þórir Tryggvason ar mæta í Kaplakrikann á miðvikudag. ÍÞRÓTTIR 5 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2011 n núna r, eftir ugur ara veg óg- ki vilj- af okk- Það itaði ð liðs- mandi era. rna aft- eik- síðan einstaklingsviðurkenning í lokin. Það er alltaf gaman að fá svona frá leikmönnum og þjálf- urum. Samstarfsmenn og félagar manns vita hvað þeir eru að tala um og virkilega gaman að fá svona viðurkenningu frá þeim,“ sagði Pa- vel. Hann stefnir að því að komast til útlanda á ný og leika þar. „Stefnan er að fara út og spila, en ég hef voðalega lítið hreyft mig í þeim málum upp á síðkastið. Í úrslita- keppninni hugsaði maður ekkert um þetta og núna hefur maður reynt að gleyma körfubolta í smá- stund. En ég fer af stað í þetta af fullum krafti á næstu dögum,“ sagði Pavel og segist vera með nokkur tilboð til athugunar. „Ég er með einhver tilboð en ekkert þeirra sem ég hoppa á svona í fyrstu atrennu,“ sagði hann. Hildur og Ægir prúðust Prúðasti leikmaðurinn í Iceland Express-deild kvenna var Hildur Sigurðardóttir úr KR og hjá körl- unum var það Ægir Þór Stein- arsson úr Fjölni. Bestu erlendu leikmennirnir voru Jacquline Adamshick hjá Keflavík og Marcus Walker hjá KR. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir úr KR þótti standa sig best í vörninni hjá konunum og hjá körlunum er Hörður Axel Vilhjálmsson úr Keflavík besti varnarmaðurinn. Besti ungi leikmaðurinn hjá kon- unum var Bergþóra Tómasdóttir úr Fjölni og Ægir Þór Steinarsson, einnig úr Fjölni, var valinn besti ungi leikmaðurinn hjá körlunum. Pálína Gunnlaugsdóttir úr Kefla- vík þótti best í úrslitakeppninni og Marcus Walker hjá KR var bestur karlanna. Jón og Hrafn bestu þjálfarar Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflvíkinga, er besti þjálfarinn hjá konunum og Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, bestur hjá körlunum. Besti dómarinn var valinn Sig- mundur Már Herbertsson. Úrvalslið kvenna er þannig skip- að: Pálína Gunnlaugsdóttir, Kefla- vík, Margrét Kara Sturludóttir, KR, Birna Valgarðsdóttir, Kefla- vík, Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík, og Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Haukum. Í úrvalsliði karla eru: Pavel Er- molinskij úr KR, Hörður Axel Vil- hjálmsson, Keflavík, Brynjar Þór Björnsson, KR, Jón Ólafur Jóns- son, Snæfelli, og Sigurður Gunnar Þorsteinsson úr Keflavík. Kolbeinn fékk heiðurskrossinn Kolbeinn Pálsson fékk heiðurs- kross KKÍ fyrir sín miklu störf fyr- ir KKÍ síðustu áratugi og er Kol- beinn sá fjórði sem fær þennan mikla heiður. Áður höfðu Bogi Þor- steinsson, Einar Ólafsson og Einar Bollason fengið heiðurskross KKÍ. Rögnvaldur Hreiðarsson, Þóra Melsteð og Ágúst Kárason fengu öll silfurmerki KKÍ fyrir óeigin- gjarnt starf í gegnum árin og Stöð 2 Sport og Iceland Express fengu sérstakar viðurkenningar fyrir sinn þátt í þeirri uppbyggingu sem hefur orðið í körfuboltanum síðustu ár. „Líður svo ofboðs- lega vel í teinóttu“ Pavel Ermolinskij Margrét Kara Sturludóttir  Pavel og Margrét Kara körfuboltafólk ársins  Bestu ungu leikmennirnir koma úr Grafarvoginum  Þrjár úr Keflavík í liði ársins  Pavel stefnir á að leika erlendis KÖRFUBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is KR-ingarnir Margrét Kara Sturlu- dóttir og Pavel Ermolinskij voru útnefnd besta körfuknattleiksfólk nýliðins tímabils á lokahófi Körfu- knattleikssambands Íslands á laug- ardaginn. „Það var mjög ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu, en ég átti frekar von á að Bryndís [Guð- mundsdóttir úr Keflavík] yrði fyrir valinu,“ sagði Margrét Kara í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Um framhaldið sagðist Kara ekki eiga von á að fara í háskólaboltann aftur eins og hún prófaði fyrir síð- asta tímabil. „Það er verið að klára öll mín mál og ég sé ekki fram á annað en ég verði svart/hvít. Mér líður svo ofboðslega vel í teinóttu,“ sagði Kara. „Mér líður mjög vel í Vesturbænum og á ekki von á öðru en að vera þar áfram. Hildur er að fara aftur í Hólminn og ég á ekki von á öðru en við styrkjum hópinn eitthvað fyrir næsta tímabil. Við er- um með mjög ungt lið og það er bara bjart framundan,“ sagði Kara og sagði að nú tækju við ein- staklingsæfingar og lyftingar. „Menn komast ekkert áfram með því að mæta bara til leiks í sept- ember eftir sumarfrí,“ sagði hún staðráðin í að ná enn lengra. Viss um að það yrði KR-ingur „Ég veit ekki hvort ég átti von á þessu, en ég var alveg viss um að það hlyti að vera einhver úr KR sem yrði fyrir valinu,“ sagði Pavel Ermolinskij við Morgunblaðið í gær og bætti því við að valið hefði í raun verið meira og minna sam- kvæmt bókinni. „Þetta var mjög gaman og kór- ónar gott ár hjá okkur. Titlar og Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Bjarni Jóhannsson hjá Stjörnunni er leikjahæstur í efstu deild af þeim þjálfurum sem stýra liðunum tólf í Pepsi-deild karla á þessu keppnistímabili í fótboltanum. Í kynningarblaðinu sem fylgdi Morgunblaðinu á laugardaginn var sagt að Ólafur Þórðarson væri leikjahæstur með 180 leiki, Willum Þór Þórsson annar með 179 og Bjarni þriðji með 175 leiki. Þar vantaði hins vegar eitt tímabil hjá Bjarna, heila 22 leiki, en hann hefur samtals stýrt liðum Stjörnunnar, Breiðabliks, Grinda- víkur, Fylkis og ÍBV í 197 leikjum í efstu deild. „Þetta kemur skemmtilega á óvart, ég gerði mér ekki grein fyr- ir því að leikirnir í þessari deild væru orðnir svona margir hjá mér fyrr en ég las blaðið á laug- ardaginn,“ sagði Bjarni þegar Morgunblaðið leiðrétti málið við hann í gær. „En ég er kannski kominn með álíka marga leiki í öðrum deildum?“ spurði Bjarni jafnframt, og það er nærri lagi hjá honum. Hann er líka kom- inn nálægt 200 leikjum sem þjálf- ari í 1. og 2. deild, en þar á hann rúmlega 190 leiki að baki sem þjálfari Stjörnunnar, Breiðabliks, Fylkis, Grindavíkur, Tindastóls og Þróttar úr Neskaupstað. Bjarni á lengsta þjálfaraferilinn að baki af þeim sem nú starfa í Pepsi-deildinni. Hann þjálfaði Þrótt frá Neskaupstað fyrst árið 1985 og hefur því verið að í rúman aldarfjórðung. Ruddu völlinn sjálfir Bjarni var nýkominn af æfingu með Stjörnumönnum þegar Morg- unblaðið ræddi við hann í gær en þeir mæta Keflvíkingum í fyrstu umferð Íslandsmótsins suður með sjó í kvöld. „Við æfðum bara á gervigrasinu okkar í Garðabænum en þurftum að hafa dálítið fyrir því. Völlurinn var á kafi í snjó í morgun en við náðum að ryðja svæði sem var um það bil 20x20 metrar að stærð og æfðum á því. Ég reikna með því að það verði allt í lagi að spila á Keflavíkurvelli. Hann var reyndar mjög blautur þegar ég skoðaði hann í gær, enda hefur rignt mik- ið á Suðurnesjum. Við erum klárir í slaginn,“ sagði Bjarni Jóhanns- son. Bjarni nálgast 200. leikinn sem þjálfari Bjarni Jóhannsson  Leikjahæstur þjálfaranna í Pepsi-deildinni í sumar  Annað eins af leikjum við stjórn í neðri deildum „Lélegur sóknarleikur fór alveg með okkur í þessum leik,“ sagði Baldvin Þorsteinsson, leikmaður FH, eftir að liðinu mistókst að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með ósigri gegn Akureyri fyrir norðan, 23:22. „Vörnin var fín en sóknarnýtingin var léleg á móti. Við komum vel stemmdir til leiks, andinn var góður í hópnum og ekkert stress. En eins og hefur oft komið fram áður eru liðin al- veg hrikalega jöfn, við höfum unnið tvisvar mjög naumlega og þeir gerðu það sama í þessum leik. Það er því ekki hægt að segja að eitthvað hafi farið úrskeiðis hjá okkur, liðin eru bara svo jöfn að þetta hlaut að falla einhvern tímann með þeim.“ Baldvin segir að auðvelt verði að horfa framhjá þessum leik og hefja undirbúning fyrir þann næsta sem fer fram á miðvikudag- inn. „Þýðir ekkert að dvelja við þetta tap, nú tekur bara næsti leikur við. Það þarf bara að gera sig kláran fyrir þá baráttu og svo sjáum við til á miðvikudaginn hvernig fer,“ sagði Baldvin Þor- steinsson. „Lélegur sóknarleikur“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.