Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2. J Ú N Í 2 0 1 1  Stofnað 1913  128. tölublað  99. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG LÍTILL SKÓLI MEÐ KÆRLEIK AÐ LEIÐARLJÓSI LEIÐINLEG LÖG BÖNNUÐ Á SUMRIN STJÖRNURYK MEÐ VESTFIRSKT EÐALRAPP VIÐSKIPTI OG FINNUR.IS ÞETTA REDDAST 28SUÐURHLÍÐARSKÓLI 10 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Skilanefnd Glitnis metur 95% eignarhlut sinn í Íslands- banka á 111 milljarða króna, sé miðað við fjárhagsyfirlit skilanefndar fyrir tímabilið sem endaði í mars síðast- liðnum. Verðmæti Íslandsbanka hefur aukist jafnt og þétt á bókum skilanefndarinnar, allt frá því að bankinn komst í eigu nefndarinnar. Skilanefnd Kaupþings metur 87% eignarhlut sinn í Arion banka á 92 milljarða króna, samkvæmt fjárhagsyfirliti frá skilanefndinni miðað við árslok 2010, en ekki er nýrri upplýsingar að hafa um eignasafn skilanefndar Kaupþings. Samanlagt virði bankanna tveggja er því að minnsta kosti 200 milljarðar króna, en skilanefndir bankanna eru jafnan afar var- færnar í verðmati á eignum sínum. Fjármálaráðherra lagði fram greinargerð á þingi í gær vegna skýrslu um endurreisn bankanna. En sú skýrsla hefur vakið talsverð viðbrögð á síðustu vikum. Í greinargerðinni segir að kostnaður ríkissjóðs við endurreisn og endurfjármögnun bankanna hefði verið 156 milljörðum króna hærri en raunin varð hefði ríkið átt að endurfjármagna bankana að öllu leyti og eignast þá að fullu. En 156 milljarðar eru sú upphæð sem skilanefndir bankanna lögðu fram til að eignast ráðandi hluti í þeim. Inni í þeirri tölu er að vísu líka litið til Landsbankans, en ríkið á ráðandi hlut í þeim banka. Fjárfesting sem gafst vel Sé litið til bókfærðs virðis skilanefnda Glitnis og Kaup- þings á Íslandsbanka og Arion banka má ljóst vera að sú fjárfesting hefur gefist vel, ekki síst með vísan til áð- urnefndrar varfærni skilanefnda bankanna við verðmat á eignasöfnum sínum. Hafa ber í huga að skilanefndir bankanna voru skyld- aðar til að leggja eignarhaldsfélögum bankanna, ISB Holding og Kaupskilum, til umtalsverðar fjárhæðir. MViðskipti Metnir á 200 milljarða  Skilanefndir Glitnis og Kaupþings meta eignarhluti sína í Íslandsbanka og Arion banka á 200 milljarða króna „Á myndinni má sjá él eða éljaklakka, geislar sólar endurkastast frá élinu. Snjókoman frá skýinu gerir það að verkum að skýið og snjó- koman renna alveg saman,“ segir Einar Svein- björnsson veðurfræðingur, spurður út í veður- að vera ofarlega í veðrahvolfinu og nokkuð hlýtt við yfirborðið. Hlýr sjórinn eykur svo á óstöðugleikann sem leiðir til þess að háir skýjaturnar geta myndast og vaxið á skömm- um tíma. fyrirbærið á myndinni sem fangaði auga ljósmyndara Morgunblaðsins þar sem hann var staddur á Bolafjalli fyrir ofan Bolungarvík. Til fróðleiks þá verður éljaklakki til við að- stæður þar sem loft er mjög óstöðugt, kalt þarf Bylur undan Bolafjalli Morgunblaðið/Árni Sæberg Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Búið er að greiða rúma níu milljarða króna í bætur úr atvinnuleysistryggingasjóði frá áramótum. Að jafnaði gerir þetta um 1,8 milljarða króna í bætur í hverjum mánuði. Áætlun Vinnumála- stofnunar gerði ráð fyrir að atvinnuleysisbætur ársins yrðu 21,3 millj- arðar króna en búast má við að sú tala eigi eftir að hækka vegna boðaðrar hækkunar bóta í tengslum við nýgerða kjarasamninga á vinnu- markaði. Á síðasta ári námu greiðslur atvinnu- leysisbóta nærri 24 millj- örðum króna og 25,4 millj- örðum árið áður. Skráð atvinnuleysi er nú 8,1% og að jafnaði voru 13.262 manns at- vinnulausir í apríl sl. Spár gerðu ráð fyrir um 8% atvinnuleysi á árinu en óljóst er hvort það gengur eftir í árslok. Talan gæti lækkað miðað við að fjölgað hefur á vinnu- markaði frá áramótum. Vitað er um ríflega 80 hópuppsagnir þessi mánaðamótin. Samkvæmt upplýs- ingum blaðsins var tilkynnt 31 uppsögn hjá byggingaverktakanum Adakris, 23 uppsagnir hjá Já.is, 18 uppsagnir hjá hug- búnaðarfyrirtækinu Teris og níu upp- sagnir hjá Perlufiski á Bíldudal, einum stærsta vinnuveitandanum í bænum. Það útgerðarfyrirtæki þarf að segja öllu starfs- fólki sínu upp vegna sumarstopps, um 17 manns. 1,8 millj- arðar á mánuði  Um 80 hópuppsagnir um mánaðamótin 13 þúsund manns eru atvinnu- laus 24 ma. kr. gætu farið í bætur á árinu  Skiptastjóri einkahluta- félagsins Sólin skín ehf. hefur vakið athygli sérstaks sak- sóknara á starf- semi félagsins og sent gögn þar að lútandi til embættisins. Skiptastjórinn, Páll Krist- jánsson, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki vilja fullyrða um hvort menn hefðu gerst brot- legir við lög í rekstri félagsins. Starfsemi þess var hins vegar með þeim hætti að hann taldi rétt að vekja athygli sérstaks saksókn- ara á málinu, enda gat helsti kröfuhafi félagsins, Glitnir, lítið annað en tapað á lánveitingum til félagsins, sem var að mestu í eigu Baugs. »Viðskipti Skiptastjóri vakti athygli á Sólinni Sólín skín til sér- staks saksóknara. MRíflega 80 manns sagt upp » 6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.