Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.06.2011, Blaðsíða 32
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 153. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Komin með fyllingu í varirnar? 2. Kjóllinn ekki flottur á öllum 3. Uppstrílaðar stúlkur í Þórsmörk 4. Höfuðkúpubraut sambýliskonu »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason var heldur betur í stuði í gær eftir nokkra kaffibolla og ákvað að taka saman búta úr lögum af væntanlegri plötu sinni, setja saman og hlaða inn á soundcloud.com. Ljúfir hljómar Snorra lofa svo sannarlega góðu en platan „Winter Sun“ kemur út í júlí. Morgunblaðið/Golli Snorri í stuði á 27 ára afmælinu  Raftónleikar verða haldnir á Bakkusi á laug- ardaginn kemur í samstarfi við TodaysArt í Hol- landi. Tónleik- unum verður streymt beint yfir í Korzo Theatre í Haag. Meðal þeirra sem fram koma má nefna Beatmakin Troopa, Skurk- en, Tonik, Steve Sampling og fleiri. Tónleikarnir hefjast kl. 20 að íslensk- um tíma og kl. 22 að hollenskum. Tónleikum á Bakkusi streymt til Hollands Tónlist.is blæs til tónlistarveislu Á föstudag Vestlæg átt 8-13 m/s og skúrir, en þurrt að kalla suð- austantil. Hiti 5 til 12 stig. Á laugardag Vestan og suðvestan 8-13 m/s. Stöku skúrir vestantil, en léttskýjað eystra. Hiti 8 til 15 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg vestlæg átt. Smáskúrir um landið vestanvert, bjartviðri austantil, en þykknar upp með dálítilli vætu í kvöld. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast austanlands í dag. VEÐUR Nýliðar ÍBV halda áfram að gera það gott í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu. Eyja- konur gerðu góða ferð í Kópavoginn í gærkvöldi en þær hrósuðu sigri gegn Breiðabliki, 2:0. ÍBV hefur því unnið alla þrjá leiki sína í deildinni og er með markatöluna 12:0. Þá vann Þór/KA góðan sigur á Fylki í fyrsta leiknum undir stjórn Hlyns Eiríkssonar. »2 Eyjakonur áfram á sigurbrautinni LeBron Jams, Dwyane Wade og Chris Bosh voru í aðalhlutverki þegar Miami Heat vann Dallas Mavericks í fyrsta leik lið- anna í úrslitum NBA- deildarinnar í körfu- knattleik. James fór á kostum í síðari hálf- leik og var stiga- hæstur leikmanna Miami. »4 Þríeykið var í aðalhlut- verki hjá Miami Heat Þetta var nokkuð jafnt. Ég kíkti að- eins útundan mér og sá að þeir voru nærri mér, en hafði betur,“ sagði Jak- ob Jóhann Sveinsson sem varð fyrst- ur íslensku karlanna til að vinna sigur í sundi á Smáþjóðaleikunum í Liecht- enstein í gær, en hann bætti þá móts- met sitt í 100 metra bringusundi með því að synda á 1:02,60 mínútum. »1-3 Jakob Jóhann vann á nýju mótsmeti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á  Nýr vefur, Tónlist.is, er kominn í loftið og af því tilefni verður blásið til tónlistarveislu í samstarfi við Beck’s- dagana 1.-4. júní. Veislan fer fram bæði á Akureyri og í Reykjavík og ætlar Tónlist.is að bjóða heppnum Facebook-vini á tónleikana. Fram koma m.a. Bang Gang, Ourlives, Frið- rik Dór, Retro Stefson, Agent Fresco, Cliff Clavin og fleiri góðir. Nánar á Tónlist.is. Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is „Þegar ég missti manninn minn og var orðin ein flutti ég á vistina á Hrafnistu í Hafnarfirði. Starfsstúlk- urnar á vistinni vildu endilega taka mig með í Kvennahlaupið og ég spurði hvort þær væru eitthvað verri þar sem ég átti mjög erfitt með gang og var komin í hjólastól. Þær voru þó ekki lengi að sannfæra mig og ég sló til. Þær settu á mig teppi og skuplu og keyrðu svo með mig í hjólastólnum. Síðan þá hef ég ekki misst úr hlaup og ætla að mæta á meðan ég hef heilsu til,“ segir Þór- leif Sigurðardóttir, 94 ára ofurkona, og bætir því við að útiveran sé allra meina bót. Saumaði brjóstahaldara, slagbelti og kraga Þórleif Sigurðardóttir, sem fædd er í Reykjavík árið 1916 segist hafa upplifað margt á langri ævi. Hún var alin upp á Laugavegi ásamt átta systkinum. „Ég fluttist til Danmerk- ur þegar ég var tvítug, hóf þar nám og lærði m.a. að sníða kvenfatnað sem kom sér afar vel,“ segir Þorleif. Ári síðar, þegar Þórleif var 21 árs, tókst henni með hjálp foreldra sinna að setja á stofn Lífstykkjaverk- smiðjuna Lady. „Þar saumaði ég ásamt tveimur starfsstúlkum brjóstahaldara, slagbelti og kraga. Þegar ég svo gekk í hjónaband hóf eiginmaður minn heitinn, Hjörtur Jónsson, að reka verslunina ásamt mér, en hann var lengi vel aðal- bókari hjá Eimskip.“ Eftir að verslunin hafði verið rekin í fimmtíu ár var rekstrargrundvöllur hennar hins vegar horf- inn þar sem ódýrara var að flytja vörur sem þessar inn frá útlönd- um. Þrátt fyrir að vera bundin við hjólastól lætur Þórleif ekkert stöðva sig og allra síst hjólastólinn. Áður lét hún ekki slitna hásin hægja mikið á sér. „Ég lærbrotnaði þegar ég var áttræð og eftir það varð ég svo fyrir því óhappi á Kanaríeyjum að mikil og stór alda skall á hné mér. Í fram- haldinu haltraði ég í svona 15 ár og gat þá vart gengið lengur. Þá fyrst fóru læknar að mynda á mér hnéð og fundu það út að ég hafði verið lengi með slitna hásin,“ segir Þorleif. Þórleif tekur nú þátt í Kvenna- hlaupinu í áttunda skiptið og segist ótrauð halda áfram þátttöku á með- an hún lifir. „Það er mikil tilhlökkun í mér og ég bíð í eftirvæntingu eftir að taka þátt í Kvennahlaupinu þetta árið, eins og fyrr.“ Hleypur enn á tíræðisaldri  Ofurkona segir að útiveran sé allra meina bót Morgunblaðið/Eggert Hlaup Þórleif Sigurðardóttir býr sig undir Kvennahlaupið af kappi líkt og hún hefur gert undanfarin ár. Kvennahlaupið fer fram laug- ardaginn næstkomandi, 4. júní. Hlaupið er nú haldið í 22. skipti og í ár verður hlaupið á 84 stöðum á landinu. Hlaupið fer einnig fram í fjórtán löndum erlendis. Kvennahlaupið er haldið í samstarfi við styrkt- arfélagið Líf og slagorð hlaupsins er „Hreyfing allt lífið“. Styrktarfélagið Líf vinnur að því að styrkja fæðingarþjónustu á kvennadeild Landspítalans í Fossvogi. Markmið félagsins er að styrkja miðstöð fæðinga og kvenlækninga og mun miðstöðin sinna konum og fjölskyldum þeirra. Hægt er að skrá sig í hlaupið með því að kaupa treyju Kvenna- hlaupsins víða um land. Nánari upplýsingar á sjova.is. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ UPPLÝSINGAR UM KVENNAHLAUPIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.