Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 18
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Þetta kalda vor tekur sinn toll
og hafa mófuglarnir orðið illa úti, í
orðsins fyllstu merkingu. Lóur og
hrossagaukar hafa ekki þolað hret-
ið og hafa fundist króknaðir úti.
Börnin hafa tekið litlu kroppana og
jarðað, sorgmædd yfir örlögum
þeirra. Hjá bændum þýðir svona
veðrátta mikla vinnu og erfiði við
sauðburð margfaldast. Lítið var
hægt að setja út af lambfé og stutt
í heyleysi hjá sumum. Mannfólkið
flaug hins vegar til hlýrri landa,
allir á svipuðum tíma, svo mikið
fækkaði í byggðarlaginu á meðan.
Starfsfólk Ísfélagsins fór í hópferð
til Korfu, aðrir til Danmerkur og
starfsfólk grunn- og leikskóla fór
til Póllands til að heimsækja þar
skóla. Hlutfall barna af pólskum
uppruna er hátt í byggðarlaginu,
um 30% á leikskólanum en um 17%
í grunnskólanum svo áhugi var á að
kynnast skólastarfi í Póllandi.
Grásleppuvertíðin var léleg
þrátt fyrir nokkuð hagstætt veður,
nær helmingi minni veiði en í fyrra.
Sjómenn muna vart eftir því að
ekki hafi þurft að hreyfa eða taka
upp net vegna veðurs, því aldrei
snerist í norðanátt fyrr en allra síð-
ustu daga vertíðar og bátar sem þá
voru eftir fengu slæma verkun á
netin, sögðu sjómenn. Mikil þorsk-
gengd var í byrjun vertíðar en
þorskurinn vefur upp netin og fer
illa með þau og spillir því veiði.
Verð á hrognum fór hækkandi eftir
því sem leið á vertíðina og endaði í
þokkalegu verði, sem er ljósi punk-
urinn í þessu. Sjómenn á Þórshöfn
eru ósáttir við hugmyndir um tak-
mörkun á grásleppuveiðum á
næstu árum og telja litlar rann-
sóknir á bak við þá ákvörðun.
Lítið var um svartfugl í vor
og eggjatekja varð léleg vegna
ástands fuglsins þó eggjavertíð
færi vel af stað. Skegluvarp var al-
veg fyrir bý og svartfugla-
eggjatekja var minni en í fyrra.
Lítið var um svartfugl, segir Sæ-
mundur Einarsson, grásleppukarl
og sigmaður, en hann telur alveg
tímabært að takmarka eggjatöku
hjá bjargfugli.
Bygging á sex raðhúsaíbúðum
stendur nú yfir á Þórshöfn en langt
er síðan þar var síðast byggt íbúð-
arhús. Veður hefur tafið fram-
kvæmdir en grunnar eru tilbúnir
og verið er að ganga frá lögnum.
Stefnt er að því að reisa húsin upp
úr miðjum júní en stór hluti hús-
eininganna er kominn á staðinn.
Nokkur styr stóð um bygginguna í
upphafi en íbúafundur var haldinn
vegna málsins þar sem sveitar-
stjórn kynnti aðdraganda og fram-
kvæmd og svaraði spurningum. Á
Þórshöfn hefur verið húsnæðis-
skortur og nokkrar fyrirspurnir
eru þegar komnar vegna íbúðanna,
bæði til kaups og leigu.
Mófuglar illa úti á köldu vori
Morgunblaðið/ Líney Sigurðardóttir
Skortur Bygging á sex raðhúsaíbúðum stendur nú yfir á Þórshöfn.
Grunnur Húsagrunnar í Miðholti eru tilbúnir, vinna við lagnir stendur yfir.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011
Nýjung Komið nýtt boltagerði.
Við Dalskóla í Úlfarsárdal hefur
verið komið fyrir boltagerði, eða
gervigrasvelli. Boltagerðið, sem er
300 fermetrar, er með gervigrasi
og lýsingu en óupphitað. Það er á
framtíðarlóð grunnskólans í hverf-
inu. Við Dalskóla er einnig unnið
við að færa kennslustofur á vett-
vang. Áður en kennsla hefst að nýju
næsta haust verða fjórar stofur til-
búnar. Í Dalskóla er samrekinn
leik- og grunnskóli, ásamt frí-
stundaheimili.
Völlur við Dalskóla
Alþingi kaus í gær átta dómara í
landsdóm og átta varamenn til
næstu sex ára.
Kosin voru: Ásgeir Beinteinsson,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Bryn-
hildur G. Flóvenz, Sigrún Blöndal,
Hjörtur Hjartarson, Jónas Þór Guð-
mundsson, Eva Dís Pálmadóttir og
Þuríður Jónsdóttir.
Varamenn eru Heiða Björg
Pálmadóttir, Ragnhildur Rós Indr-
iðadóttir, Þorgerður Jóhannsdóttir,
Jónína Benediktsdóttir, Aðalheiður
Ámundadóttir, Páley Borgþórs-
dóttir, Svanhildur Hólm Valsdóttir
og Halldóra Kristín Hauksdóttir.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, lýsti
sig algerlega andvíga því að Al-
þingi sjálft tilnefndi enn og aftur í
landsdóm. Sagðist hún óska þess
við þingheim að hann legði á kom-
andi þingi niður landsdóm þannig
að ekki þyrfti að koma til annarra
eins dómsmála og nú séu í farvatn-
inu á hendur Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra.
Morgunblaðið/Golli
Réttur Fyrsta mál sem rekið er fyrir landsdómi er dómsmálið gegn Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, vegna aðgerða hans og aðgerðaleysis í aðdraganda hrunsins.
Alþingi kaus átta dómara og átta
varamenn í landsdóm til næstu sex ára
Annan í hvítasunnu, þann 13. júní
kl. 15:00, mun Dorrit Moussaieff
forsetafrú formlega opna Æðarset-
ur Íslands í Norska húsinu í Stykk-
ishólmi. Byggðasafn Snæfellinga
og Hnappdæla hefur nú aðsetur í
húsinu og komu fjölmargir heima-
menn að undirbúningi setursins.
Æðarsetrið verður opið daglega
í sumar frá kl. 12-17. Í eldhúsinu í
Norska húsinu verður hlunn-
indasýning þar sem gamalt hand-
verk er sýnt og gömul áhöld sem
notuð voru við hreinsun á æðar-
dúni. Þá verða gamlar ljósmyndir
og kvikmyndir sýndar sem gerðar
hafa verið um varp og dúntekju í
gegnum tíðina. Í Mjólkurstofunni
verður fræðslusýning um lífríki
æðarfuglsins og vágesti hans auk
þess sem munir sem tengjast æð-
arfuglinum verða þar til sölu og
sýnis.
Leitað hefur verið til listamanna
úr Stykkishólmi til að þróa list-
muni fyrir safnið sem verða þar til
sölu í sumar, auk þess sem hægt
verður að kaupa æðardúnssængur
í ýmsum stærðum og útfærslum.
Morgunblaðið/Golli
Ungi Hægt verður að kaupa Dúnssængur í
Æðasetri Íslands í Stykkishólmi.
Æðarsetur Íslands
opnað í Hólminum
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiða-
fjarðar stendur nú fyrir bátahátíð súðbyrtra
trébáta á Breiðafirði dagana 2.-3. júlí nk.
Félagið hefur súðbyrðinginn í öndvegi og
vinnur að verndun hans og kynningu, auk
þess að hafa undanfarin þrjú ár staðið fyrir
siglingu slíkra báta um Breiðafjörð. Einnig
stendur félagið að sýningunni „Bátavernd
og hlunnindanytjar“ sem opnuð var á Reyk-
hólum hinn 1. júní sl.
Fyrirkomulagið verður þannig að siglt
verður fyrri daginn bæði frá Reykhólum og
frá Stykkishólmi í Rauðeyjar og Rúfeyjar. Á seinni deginum er ráðgert að
sigla til Akureyjar. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til
aðstæðna við Breiðafjörð og verða eyjarnar skoðaðar undir leiðsögn
manna sem þekkja þær vel. Allir súðbyrðingar eru velkomnir.
Bátahátíð súðbyrðinga á Breiðafirði
Bátadagar Falleg eyja- og báta-
sýn frá Flatey á Breiðafirði.
Borgarráð hefur samþykkt tillögur
að breytingu á aðalskipulagi
Reykjavíkur og deiliskipulagi Há-
skóla Íslands vegna svokallaðra
Vísindagarða á svæðinu. Gert er
ráð fyrir að á svæðinu rísi byggð
með stúdentaíbúðum, starfsemi Há-
skóla Íslands og Vísindagörðum.
Svæðið sem um er að ræða markast
að Eggertsgötu, Oddagötu og
Sturlugötu.
„Byggðin býr yfir mikilvægum
vistvænum kostum auk þess sem
hún gerir þekkingarfyrirtækjum
kleift að koma sér fyrir á há-
skólasvæðinu. Með þessu skipulagi
er stigið skref til að gera Reykjavík
vistvænni og efla hana sem þekk-
ingarborg,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Skipulag samþykkt
STUTT
Jón Sigurðsson
Blönduós
„Úr smiðju vefarans mikla“ nefnist yfirlitssýning á verk-
um Guðrúnar J. Vigfúsdóttur veflistakonu frá Ísafirði
sem var opnuð í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi um
liðna helgi. Það var dóttir listakonunnar, Eyrún Ísfold
Gísladóttir, sem gerði í stuttu máli grein fyrir verkum
móður sinnar og þeim hugmyndum sem á bak við þau
standa. Á sýningunni má m.a. sjá handofna glæsikjóla og
listavel gerð veggteppi og hökla úr Digraneskirkju sem
einstök saga er á bak við. Kjólarnir eru eins og hannaðir
í dag og er gaman að geta þess að hinn landsfrægi fata-
hönnuður Steinunn Sigurðardóttir hefur sótt innblástur
í verk Guðrúnar. Einnig má sjá síðustu veggteppin sem
Guðrún óf, þá orðin 86 ára. Fjöldi manns lagði leið sína í
safnið þegar sýningin var opnuð en opnunin markar líka
sumaropnun safnsins. Lára Sóley Jóhannsdóttir og
Hjalti Jónsson skemmtu gestum með söng og spili og að
lokum þáðu gestir kaffi og kleinur. Eins og fyrr greinir
er sýning Guðrúnar í Heimilisiðnaðarsafninu á Blöndu-
ósi og verður opin í allt sumar á afgreiðslutíma safnsins.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Listakona (F.v.) Eyrún Ísfold, dóttir veflistakonunnar, Margrét Arna Vilhjálmsdóttir og Halla Víðisdóttir, starfs-
menn safnsins, og Elín Sigurðardóttir, forstöðumaður safnsins, virða fyrir sér verk á sýningunni á Blönduósi.
Handofnir glæsikjólar og vegg-
teppi í Heimilisiðnaðarsafninu