Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 2011 ✝ Þorsteinn Sig-urðsson fædd- ist á Hjaltastöðum í Skagafirði 16. mars 1918. Hann lést á Heilbrigðisstofn- uninni á Sauð- arkróki 1. júní 2011. Hann var elsta barn hjónanna Sig- urðar Einarssonar, f. 1890, d. 1963, og konu hans Margrétar Þorsteins- dóttur, f. 1889, d. 1999, sem bjuggu lengst af í Stokkhólma og á Hjaltastöðum í Akrahreppi í Skagafirði. Systkini Þorsteins eru: Pétur, f. 1919, Hjalti, f. 1920, d. 1995, Leifur, f. 1921, d. 2006, Halldór, f. 1925, d. 2003, og Jórunn, f. 1926. Þorsteinn eignaðist soninn Sigurð Helga, rafvirkjameistara, f. 1950, d. 1997, með Þóru Helgadóttur, f. 1924, d. 2008. Hinn 31.12. 1951 kvæntist Þorsteinn eftirlifandi eiginkonu um og voru þeir Stokk- hólmabræður þekktir fyrir að vera kappsamir á því sviði. Kenndi Þorsteinn á tímabili sund, m.a. við Víðivallalaug. Þorsteinn var lipurlega vaxinn og léttur á fæti og þótti góður gangnamaður. Hann var eftir- sóttur til fjárleita í sinni sveit og voru göngur og eftirleitir nokk- uð sem hann hafði mikla ánægju af. Búið í Hjaltastaðahvammi var ekki stórt og bar ekki mik- inn bústofn og því var nauðsyn- legt að drýgja tekjurnar. Vann Þorsteinn ýmis störf utan bús- ins, meðal annars í vegavinnu víða um Skagafjörð. Eins og tíðkaðist meðal Norðlendinga langt fram á síðustu öld fór Þor- steinn marga vetur á vertíð. Fór hann þá oftast til Vest- mannaeyja, en einnig til Akra- ness og Keflavíkur. Söngvinn var hann og söngelskur eins og Skagfirðinga er siður og söng bæði með Karlakórnum Heimi og einnig Karlakórnum Feyki, sem á tímabili starfaði í Akra- hreppi. Þorsteinn var til margra ára meðhjálpari í sóknarkirkju sinni á Flugumýri og gegndi því starfi af mikilli alúð. Frá þeirri kirkju verður hann nú jarðsung- inn 13. júní 2011 kl. 14. sinni, Sigríði Má- rusdóttur, f. 1.3. 1930. Þau eign- uðust dóttur sem lést tveggja vikna gömul. Þorsteinn ólst upp við venju- bundin sveitastörf hjá foreldrum sín- um, fyrst í Stokk- hólma en síðar flutti fjölskyldan í Hjaltastaði þar sem þeir bræður Pétur, Hjalti og Þorsteinn hófu búskap í félagi við föður sinn. Síðar fluttu Þor- steinn og Sigríður í Hjalta- staðahvamm, reistu sér þar hús og bjuggu síðan þar allan sinn búskap. Tvo vetur (1934-1936) gekk hann ásamt Pétri bróður sínum í Bændaskólann á Hólum og lauk þaðan búfræðiprófi. Veturinn 1938-1939 nam hann við Reykjaskóla í Hrútafirði. Þorsteinn hafði gaman af íþrótt- um og stundaði ýmsar íþróttir með bræðrum sínum á yngri ár- Fyrsta minning mín um Steina föðurbróður minn var þegar hann kom á heimili foreldra minna í Reykjavík. Hann var þá í leiðangri ásamt Siggu konu sinni og afa að sækja nýjan blæju-willysjeppa sem átti að nota við bústörf og flutninga á Hjaltastöðum. Ég var fimm ára gamall og Steini fór að gantast með það að hann ætti að ráða mig sem kaupamann. Tók ég hann á orðinu og sleppti ekki gest- unum úr augsýn til þess að vera viss um að ég yrði ekki skilinn eft- ir. Einhvern veginn tókst að hola mér niður með dótinu aftur í jepp- ann og norður fór ég. Var það fyrsta ferðin í sumardvöl hjá Steina og Siggu en þar var ég síð- an á hverju sumri fram undir fermingu. Gamli Hjaltastaðabær- inn var merkilegt hús, tvílyft steinhús með torfþaki sem Þor- steinn faðir ömmu hafði steypt upp ásamt sonum sínum og hófst vinnan við húsið 1909. Í bænum bjuggu fjórar fjölskyldur og var hver fermetri vel nýttur. Fljótlega byggðu bræður pabba sín eigin íbúðarhús og fluttust Sigga og Steini í Hjaltastaðahvamm þar sem þau bjuggu æ síðan. Ég leit afskaplega mikið upp til Steina á þessum árum og vildi allt gera eins og hann og þótti móður minni stundum nóg um. Eitt haustið hafði ég tekið upp þann sið að spýta um tönn eins og ég hafði séð Steina gera. Ég hafði þá nýlega misst tvær framtennur og Steini hrósað mér fyrir hvað ég væri kominn með flott „spýtuskarð“. Í þessu sambandi er gaman að geta þess að við frændsystkinin versl- uðum við Steina með barnatenn- urnar. Hann keypti þær af okkur fyrir tvær krónur en hann sagðist vera að safna tönnum þangað til hann yrði gamall og tannlaus. Þá ætlaði hann að láta setja þessar lausu í sig. Þessi skondnu viðskipti átti hann einnig við börn okkar og barnabörn. Steini var jafnan léttur í lund og löðuðust krakkar að honum. Hann gaf okkur skringileg nöfn, gekk ég undir nafninu Kaupi og svo voru: Blimma, Hnífla, Fótur, Abígel og allskonar nafnleysur sem hann stríddi okkur með. Þegar frá leið fékk Steini mér meira krefjandi verkefni, s.s. að reka kýrnar, smala úr túninu og vinna við heyskap. Seinni hluta sumars var farið fram í Stokk- hólma til heyskapar og var stund- um farið ríðandi sem var óhemju spennandi. Þá var til siðs að draga fyrir silung í Héraðsvötnunum og var það gert á hestum. Steini var lunkinn við veiðarnar enda höfðu þeir bræður alist upp við þessa iðju. Steini reið oftast út í með net- ið og kom þá fyrir að hesturinn þurfti að grípa til sunds þegar dýpkaði. Einstaklega minnisstæð eru þó sumarkvöldin þegar heyvagnarnir héldu drekkhlaðnir heim. Steini keyrði dráttarvélina, Sigga sat aftan á og saman sungu þau falleg íslensk sönglög. Þá hríslaðist gæsahúð með stráunum niður eft- ir bakinu, heyilmur fyllti vitin, sól- in gyllti norðurhimininn og blund- ur seig á brá. Ég þakka Þorsteini frænda mínum fyrir hvað hann var mér í mótun minni og uppeldi. Sigga mín, Guð blessi þig ævinlega. Guðm. Ingi Leifsson. Ég á margar minningar frá Hvammi en ég var svo heppin að fjölskylda mín dvaldi á hverju ein- asta sumri hjá Siggu og Steina meðan ég var að vaxa úr grasi. Það var ekki aðeins skemmtilegt fyrir borgarbarn að fá tækifæri til að njóta skagfirskrar náttúru og samveru með þessu góða fólki, heldur líka áhrifavaldur. Fyrstu minningarnar um Steina frænda eru af honum með bros á vör, eitt- hvað að gantast, að læða brjóst- sykursmola að börnunum. Síðar hef ég dáðst að mörgu í fari hans, eiginleikum sem hafa kostað ákveðinn aga. Hann skrif- aði dagbók á hverjum einasta degi, ekki sjálfhverfar hugleiðing- ar netskrifa nútímans, heldur var þarna að finna gagnlegar upplýs- ingar um veður, heimsóknir og þess háttar. „Ég gái að þessu í dagbókinni.“ Eitthvað á þá leið svaraði hann þegar upp kom vafa- mál um til dæmis hvenær hryssa kastaði. Hann fór líka í göngutúra á hverjum einasta degi, sem er áreiðanlega stór þáttur í því hversu heilsuhraustur hann var lengst af. Þetta eru tveir góðir vanar sem gott væri að tileinka sér. Það var alltaf eitthvað íþrótta- mannslegt við hann og hefur pabbi sagt mér sögur af því hvern- ig hann arkaði upp á fjall, „nánast hljóp“ en formið var svo gott. Heillandi saga fyrir bæði skrif- stofublókina og barnið. Svo yrði einhver ríkur af því að skrifa „lífsstílsbók“ um mataræði Steina frænda, því hann var sís- vangur og alltaf nartandi í eitt- hvað en þrátt fyrir það tággrann- ur. Ennfremur var hann hæfilega sérvitur, eiginleiki sem ég óttast að sé að deyja út með þessari kyn- slóð en vonandi verður Skaga- fjörðurinn áfram uppspretta þeirra sérvitringa sem heimurinn þarfnast. Mér finnst ég mjög heppin að hafa ekki aðeins átt góðan afa heldur líka afabróður sem ég kynntist svona vel. Það var alltaf með trega sem ég horfði á Blöndu- hlíðarfjöllin hverfa á bak við Vatnsskarðið á leiðinni í bæinn að lokinni sumardvöl. Sömuleiðis finn ég fyrir söknuði núna. Takk fyrir samfylgdina Steini frændi. Inga Rún Sigurðardóttir og fjölskylda. Aðeins örfáum dögum eftir að við fengum frumburðinn í hend- urnar kvaddir þú þennan heim. Þó var það okkur ákveðin ánægja að vita að þú hefðir náð að fá fréttir af litla drengnum áður. Þegar við hittum þig seinast bæði og sögð- um þér frá því að Sonja væri ófrísk sagðirðu okkur að þú hefðir alltaf hugsað þér að fylgjast með börnum í Hvammi í framtíðinni. Það þótti okkur vænt um að heyra og vitum að þú munt standa við orð þín. Minningar frá hversdeginum í Hvammi koma ósjálfrátt fyrst upp í hugann þegar við hugsum til baka, enda voru þeir ófáir dagarn- ir sem við eyddum þar saman. Spjall um daginn og veginn, veðr- ið, fjallið, fréttir úr sveitinni og sögur frá þínum yngri árum eru verðmætar minningar að eiga. Ein skemmtilegasta minningin er þó þegar þið Sonja tókuð snúning á ættarmóti fyrir nokkrum árum. Þú yngdist allur upp á augabragði og þið svifuð um gólfið létt í spori. Þér þótti gaman að velta fyrir þér folöldunum okkar í Hvammi og gekkst stundum með okkur til að virða þau fyrir þér. Þú hafðir mætur á góðu geðslagi, reistum makka og sperrtum hreyfingum. Þú hafðir líka unun af hundinum ykkar Siggu, honum Mósa. Hann veitti þér ánægju og gleði og held- ur nú Siggu áfram félagsskap. Nú er komið að kveðjustund. Við þökkum þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum sam- an. Hvíldu í friði. Friðrik og Sonja. Þorsteinn Sigurðsson HINSTA KVEÐJA Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Bjarni Stefán Konráðsson.) Þakka fyrir vináttu þína. Samúðarkveðjur, Helga Bjarnadóttir frá Frostastöðum. ✝ Ástkær faðir minn, afi og bróðir, JÓHANNES ÞÓR EGILSSON framkvæmdastjóri, Lækjargötu 13, Siglufirði, sem lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar aðfaranótt laugardagsins 28. maí, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 18. júní kl. 14.00. Fyrir hönd ættingja, Sigríður Eddý Jóhannesdóttir, Jóhannes Markús Magnússon, Geirlaug Egilsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á Kjarnalundi föstudaginn 3. júní. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Kjarnalundi fyrir góða umönnun. Elín Skúladóttir, Oddfríður Skúladóttir, Kristinn Skúlason, Anna Pétursdóttir, Jóhann Skúlason, Skúli J. Skúlason, Þórhildur Höskuldsdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG SIGURÐARDÓTTIR, Lindasmára 39, áður Laufbrekku 27, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ þriðjudaginn 7. júní. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 15. júní kl. 13.00. Erlendur Guðjónsson, Sigríður Guðjónsdóttir, Ingólfur Arnarsson, Karl Guðjónsson, Bára Guðjónsdóttir, Jóna Guðjónsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Óskar Guðjónsson, Ásta S. Guðnadóttir, Sigurður Guðjónsson, Katrín S. Guðjónsdóttir, Vilhjálmur Á. Ásgeirsson, Sigrún Guðjónsdóttir, Jón Davíð Hreinsson, Guðlaug Guðjónsdóttir, Guðni Þór Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, MAGNÚS DANÍELSSON fyrrv. lögregluvarðstjóri, Strikinu 8, Garðabæ, lést á Landspítalanum Fossvogi laugar- daginn 4. júní. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ þriðjudaginn 14. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknar- og hjálparsjóð Landssambands lögreglumanna. Elín Ringsted, Guðmundur Ringsted Magnússon, Þórunn A. Pétursdóttir, Guðríður Kristín Magnúsdóttir, Kristján G. Hálfdánarson, Daníel Þorkell Magnússon, Hrönn Magnúsdóttir, Guðmundur Skúli Hartvigsson, Geirlaug Magnúsdóttir, Theodór Ásgeirsson, Magnús Már Magnússon, Sigríður Kristín Hafþórsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, HALLDÓRA ANNA TRAUSTADÓTTIR frá Grímsey, Mýravegi, Akureyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 5. júní. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 14. júní kl. 10.30. Óli Hjálmar Ólason og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, GARÐAR KARLSSON flugvirki og gítarleikari, lést á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 8. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þuríður Helga Guðjónsdóttir, Viðar Garðarsson, Ólöf Sigurgeirsdóttir, Agnes Garðarsdóttir, Gísli Ólafsson, Jón Sigurður Garðarsson, Helga Þorkelsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir, Bjarki Halldórsson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri STEFÁN LÁRUS JÓNSSON, Skúlagötu 78, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi miðvikudaginn 8. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 21. júní kl. 13.00. Eggert Már Stefánsson, Jón Stefánsson, Elínborg Jónsdóttir, Sigrún I. Jónsdóttir, Ágúst Halldórsson og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG STEFANÍA ÞORVALDSDÓTTIR, Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík, lést sunnudaginn 29. maí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Helgi Gunnarsson, Þorbjörg Ásgrímsdóttir, Egill Helgason, Hrönn Huld Baldursdóttir, Ásgrímur Haukur Helgason, Helga Nína Aas, Ingibjörg Helga Helgadóttir, Ólafur Árni Sveinsson, Guðrún Helgadóttir og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.