Morgunblaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hörð deila er komin upp á Spáni vegna þess að
yfirvöld hafa látið taka 15 mánaða barn af konu
sem þau saka m.a. um að hafa gefið stúlkubarninu
allt of oft brjóst og án tillits til svefnþarfa, einnig
að hún hafi látið barnið sofa hjá sér á nóttunni, að
sögn breska blaðsins Guardian. Konan er 21 árs
gömul og mun heita Habiba. „Hún notar brjósta-
gjöfina eins og snuð og leikfang, gefur henni
brjóst í hvert skipti sem stúlkan grætur og hvar
sem er, tímapunkturinn og aðstæður skipta engu
máli,“ er fullyrt að standi í skýrslu um málið frá
félagsmálayfirvöldum.
Að sögn heimildarmanna hjá félagsmála-
yfirvöldum er Habiba þjökuð af sálrænum vanda-
málum, hún hafi verið árásargjörn, hafi fleygt
hlutum í aðrar ungar mæður, sleppt því vikum
saman að baða barnið og farið út með stúlkuna illa
klædda. Hún hafi auk þess átt erfið samskipti við
föðurinn sem hafi verið fangelsaður fyrir að ráð-
ast á hana. En samt vilji Habiba búa með honum
og ekki á heimili fyrir fórnarlömb heimilis-
ofbeldis. Barnið, Alma, hafi verið tekið af Habibu
til að tryggja öryggi þess.
Alma var færð á
barnaheimili snemma í
mánuðinum og Habibu
sagt að fara þótt yf-
irvöld viðurkenni að
sögn að samband henn-
ar við barnið sé afar
ástúðlegt. „Barnið
reynir stöðugt að koma
auga á móður sína og
nokkur uggur kom upp
þegar skilnaður þeirra nálgaðist,“ segir í skýrsl-
unni umræddu.
Spænskir barnalæknar hafa brugðist ókvæða
við ummælunum um brjóstagjöfina í skýrslu yfir-
valda og mæðrafélög í Bretlandi og Bandaríkj-
unum og víðar berjast nú einnig fyrir því að Ha-
biba fái barnið sitt aftur. „Það er brýnt að afhenda
móðurinni strax þetta barn og [Alma] ætti að fá að
sjúga hvenær sem hún vill,“ sagði Sheila Kitz-
inger, bresk baráttukona fyrir góðu barnauppeldi.
Hart deilt um brjóstagjöf
Yfirvöld á Spáni tóku 15 mánaða barn af ungri konu og sökuðu hana meðal
annars um að gefa barninu allt of oft brjóst og láta það sofa hjá sér á nóttunni
Brjóstamjólkin sögð hollust
» Fyrr á öldum fengu heldri konur gjarn-
an barnfóstrur til að gefa nýfæddum börn-
um sínum brjóst.
» Nútímafólk hefur yfirleitt sannfærst
um að móðurmjólkin sé besta fæðan fyrir
ungbörn og betri en mjólkurduft í vatni.
» Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna
mæla með henni, a.m.k. fyrsta hálfa árið,
síðan megi bæta við öðrum fæðutegundum.
Brjóstagjöf Algjör veisla!
Andófs-
maður laus
úr haldi
Kínverski and-
ófsmaðurinn Ai
Weiwei var í gær
látinn laus gegn
tryggingu en
hann var fangels-
aður fyrir tveim
mánuðum, sak-
aður um skatt-
svik og eyðingu
gagna. Að sögn
ríkisfréttastofunnar kínversku, Xin-
hua, gekkst Ai við broti sínu. Gagn-
rýni hans á mannréttindabrot
stjórnvalda í Peking vakti á sínum
tíma heimsathygli.
Stuðningsmenn hans segja að um
hafi verið að ræða upplognar sakir,
raunverulega ástæðan fyrir hand-
tökunni hafi verið gagnrýni hans á
mannréttindastefnu stjórnvalda.
Ai var í haldi á leynilegum stað og
fékk ekki að ræða við lögfræðing
sinn á meðan hann var fangi. Hann
sagðist í samtali við fréttamann
BBC vera kominn heim til sín og
vera við góða heilsu. Hann mætti
ekki tjá sig við fjölmiðla en vildi
þakka þeim fyrir að sýna máli sínu
áhuga.
Ai varð þekktur myndlistarmaður
þegar á níunda áratugnum og tók
mikinn þátt í að hanna Fuglahreiðr-
ið, aðalvettvang Ólympíuleikanna í
Peking árið 2008. kjon@mbl.is
Ai Weiwei
Ai sagður hafa
játað á sig skattsvik
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mikill ágreiningur er nú kominn upp
meðal ríkjanna sem standa að loft-
árásunum á Líbíu og ástæðan er
mannfall í röðum óbreyttra borgara.
Egyptinn Amr Moussa, fráfarandi
framkvæmdastjóri Arababandalags-
ins, hvatti í vikunni til vopnahlés og
friðsamlegrar lausnar. Hann fékk í
vor bandalagið til að styðja aðgerðir
gegn Muammar Gaddafi.
Franco Frattini, utanríkisráð-
herra Ítalíu, hvatti einnig til vopna-
hlés í gær en Frakkar sögðu brýnt að
halda árásunum áfram, hlé myndi
gefa Gaddafi tíma til að endurskipu-
leggja varnir sínar. „Þegar upp er
staðið munu það verða óbreyttir
borgarar sem munu þjást ef við sýn-
um minnsta veikleikamerki,“ sagði
Bernard Valero, talsmaður franska
utanríkisráðuneytisins.
Anders Fogh Rasmussen, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, NATO, harmaði fall nokkurra
vopnlausra borgara í árásunum. En
hann sagði að árásunum yrði haldið
áfram, ella myndi fjöldi fólks týna lífi.
Átti hann þá við að hermenn Gaddaf-
is myndu geta hert enn sóknina gegn
illa búnum og nær óþjálfuðum upp-
reisnarmönnunum.
Moussa, sem hyggst bjóða sig
fram í forsetakosningum í Egypta-
landi í haust, segir nú að myndir af
barnslíkum eftir loftárásir NATO á
sunnudag og mánudag hafi reynst
sér ofraun. Og hann sagðist í viðtali
við breska blaðið Guardian ekki sjá
fyrir sér að hrein og klár niðurstaða
myndi nást með áframhaldandi hern-
aði sem sumir eru farnir að líkja við
pattstöðu. Koma yrði á vopnahléi
undir alþjóðlegu eftirliti.
„Gaddafi myndi vera áfram við
völd meðan vopnahlé stæði yfir …
Síðan yrðu tekin skref í átt að um-
skiptaskeiði … til að ná samkomulagi
um framtíð Líbíu,“ sagði Moussa.
Vilja að samið verði um vopnahlé
Ítalir taka undir tillögu Amr Moussa um vopnahlé af mannúðarástæðum
Nokkrir óbreyttir borgarar féllu í loftárásum NATO um síðustu helgi
Reuters
Léttvopn Uppreisnarmaður býr sig
undir árás í borginni Kikla.
Gaddafi gefst ekki upp
» Mistök og bilanir geta
ávallt haft í för með sér mann-
fall í röðum óbreyttra borgara.
» Fátt bendir til þess að
Gaddafi sé að gefast upp.
» Kostnaðurinn við loft-
hernaðinn er svo gríðarlegur
að þingmenn í ýmsum NATO-
ríkjum segja útilokað að halda
honum áfram.
Litlu stúlkurnar tvær, sem rænt var
í Noregi á þriðjudag, fundust heilar
á húfi í Hönefoss í gær. Sex menn
eru í haldi vegna málsins. Faðir
stúlknanna er einn þeirra en ránið
mun tengjast hörðum deilum hans
við móðurina um ýmis mál.
Börnin eru eins og þriggja ára og
voru með móður sinni á skrifstofu
barnaverndaryfirvalda í Brandbu
þegar tveir menn réðust þar inn og
tóku börnin með sér. Beitt var raf-
byssu við ránið til að deyfa móð-
urina og aðra konu. Lögreglan hóf
þegar mikla leit og skýrði frá því í
gær að upplýsingar frá almenningi
hefðu loks leitt hana á rétt spor.
Umrætt fólk mun allt vera Kúrd-
ar frá Írak. Faðirinn hefur búið í
Noregi í nokkur ár og hefur að
sögn Aftenposten tvisvar hlotið
dóm fyrir hótanir. kjon@mbl.is
Fundust heilar á
húfi í Hønefoss
Þúsundir manna héldu áfram að mótmæla fyrirhug-
uðum niðurskurði útgjalda og einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja við þinghúsið í Aþenu í gær. Hér sparkar lög-
reglumaður í einn mótmælendanna. Ríkisstjórn Georgs
Papandreou fékk stuðning 155 þingmanna af 300 við
traustsyfirlýsingu á miðnætti á þriðjudag en eftir er
önnur og mikilvægari atkvæðagreiðsla í næstu viku. Þá
verður tekist á um tillögur um enn frekari niðurskurð
sem er meðal skilyrða evruríkjanna og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins fyrir auknum lánveitingum.
Ýmsir hagfræðingar segja að aðstoðin muni aðeins
fresta óumflýjanlegu greiðslufalli ríkisins. Margir
Grikkir taka nú út bankainnistæður sínar af ótta við að
aðstoðin muni ekki hindra ríkisgjaldþrot og þá um leið
bankahrun. Sumir kaupa gull en margir leggja pening-
ana inn á reikninga erlendis.
Reuters
Lög og regla í Aþenuborg
Ef marka má nýja könnun í Bret-
landi vill meirihluti breskra kjós-
enda nú að Bretland segi skilið við
Evrópusambandið. Samkvæmt
niðurstöðunum vilja 48% yfirgefa
sambandið en rúmur þriðjungur,
eða 35%, að Bretar verði áfram að-
ilar að því.
Fyrirtækið YouGov sá um könn-
unina. Sé aðeins miðað við þá sem
taka afstöðu með eða á móti eru
tæp 58% Breta á því að yfirgefa
ESB en 42% vilja vera áfram í sam-
bandinu. Meirihlutinn vill þjóðar-
atkvæði um aðildina. kjon@mbl.is
Meirihluti Breta vill
yfirgefa ESB
Glastonbury-tónlistarhátíðin hófst í
Somerset í Englandi í gær og ekki
er hægt að segja að veðrið hafi leik-
ið við gestina. En sumir létu rign-
ingu og leðju á svæðinu ekki á sig
fá og ösluðu kátir áfram með pinkla
sína.
Botnleðja?