Morgunblaðið - 29.06.2011, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 9. J Ú N Í 2 0 1 1
Stofnað 1913 150. tölublað 99. árgangur
YFIRLITSSÝNING
Á MYNDUM
SIGMÚNDS SHELLMÓTIÐ Í EYJUM
ÍSLENSKUR MATUR
Í EKTA ÍSLENSKU
UMHVERFI
FJÖLMENNT OG FJÖRUGT ÍÞRÓTTIR LEGGUR LOKAHÖND Á GRILLMARKAÐINN 10SIGMÚND Á SÍNUM STAÐ 8
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Heimild til að taka út séreignarsparn-
að rann út í aprílbyrjun og gleymdist
að framlengja frestinn. Þó var vilji
fyrir því hjá öllum sem hlut áttu að
máli, bæði stjórnarliði og -andstöðu á
þingi, sem og lífeyrissjóðum og öðr-
um vörsluaðilum lífeyrissparnaðar.
„Það er mjög slysalegt að mínu
mati að þetta skuli ekki hafa komist
strax í gegn á vorþingi og verður að
taka það strax upp á haustþingi að
koma þessari breytingu á. Það er full-
ur vilji til þess hjá lífeyrissjóðunum
að framlengja tímann til áramóta,“
segir Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr-
issjóða.
Reytingur af fólki hefur ætlað að
taka út séreignarsparnað síðan frest-
urinn rann út. Hrafn segir lífeyris-
sjóði hafa orðið fyrir nokkrum óþæg-
indum vegna þess að heimildin er
ekki lengur fyrir hendi.
Ágreiningur um önnur atriði
Ákvæði um framlengdan frest var
sett inn í frumvarp fjármálaráðherra
í þinginu, en efnahags- og skatta-
nefnd bætti því við eftir 1. umræðu.
Samkvæmt heimildum strandaði
það frumvarp á ágreiningi á milli fjár-
málaráðuneytisins og Fjármálaeftir-
litsins, en hann snerist um önnur at-
riði þessu algerlega ótengd. Aðalefni
frumvarpsins var um hæfi stjórnar-
manna og framkvæmdastjóra lífeyr-
issjóða og fjárfestingarheimildir sjóð-
anna.
Tryggvi Þór Herbertsson, fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og
skattanefnd, segir það klúður að
gleyma þessu atriði. „Þetta er bara í
takt við annað. Þeir gleymdu olíuleit-
arfrumvarpinu og þeir gleymdu
þessu. Þetta sýnir bara hvað það eru
slæleg vinnubrögð þarna á stjórnar-
heimilinu,“ segir Tryggvi Þór.
Hvorki náðist í Helga Hjörvar, for-
mann efnahags- og skattanefndar, né
Steingrím J. Sigfússon fjármálaráð-
herra við gerð fréttarinnar.
Þingmenn gleymdu að framlengja heimild fólks til að taka út séreignarsparnað
Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða: „Mjög slysalegt að mínu mati“
Gleymdu að framlengja
Morgunblaðið/Kristinn
Séreign Getur brúað bil sumra.
Talsverðar tafir urðu á umferð í gær þegar starfs-
menn malbikunarstöðvarinnar Höfða unnu að mal-
bikun á Vesturlandsvegi. Um var að ræða tæplega
tveggja kílómetra langan kafla sem viðhalds-
aðgerðir náðu til. Ólafur Sigurmundsson verkstjóri
sagði ökumenn almennt hafa sýnt biðlund og tillits-
semi þegar umferðin gekk sem hægast.
Að sögn Ólafs hefur það færst í vöxt að ökumenn
sýni þolinmæði við tafir sem þessar. Malbikun hófst
í gærmorgun klukkan níu og tóku 18 vaskir starfs-
menn malbikunarstöðvarinnar þátt í verkinu.
Reiknað var með að unnið yrði til miðnættis. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu gekk umferðin að öðru leyti með ágætum.
Morgunblaðið/Ómar
Bíll við bíl á Vesturlandsvegi
Nærri þrír af hverjum fjórum einstak-
lingum sem lokið hafa starfsendurhæfingu
hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði eða yf-
ir 70% hafa öðlast getu á nýjan leik til að
fara út á vinnumarkaðinn. Flestir þeirra
eru aftur komnir í launað starf eftir að hafa
notið þjónustu
VIRK vegna sjúk-
dóma eða slysa.
Endurhæfing á
vegum VIRK hófst
haustið 2009 og
hefur vöxturinn
verið hraður. Á
sama tímabili hefur
dregið úr nýgengi
örorku sem eru
umskipti eftir
fjölgun öryrkja ár
frá ári.
Alls hafa 2.200
manns leitað til VIRK og af þeim hafa um
600 manns lokið þjónustu, skv. upplýs-
ingum Vigdísar Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra VIRK.
Búist er við að starfsemi sjóðsins eflist á
næstunni í kjölfar lagasetningar Alþingis á
dögunum, sem skyldar alla launagreið-
endur til að greiða 0,13% iðgjald til sjóðs-
ins. Lífeyrissjóðum verður líka gert að
greiða 0,13% af iðgjaldastofni frá 1. janúar
nk. Áætlað er að sú fjárhæð nemi um millj-
arði kr. en greiðsluskylda sjóðanna á þó
ekki að leiða til skerðingar á lífeyrisrétt-
indum, skv. upplýsingum sem fengust hjá
Landssamtökum lífeyrissjóða. Ef þjónusta
VIRK skilar áfram sama árangri og nú er
kominn á daginn mun það létta örorkubyrði
sjóðanna í framtíðinni. omfr@mbl.is »4
Flestir
aftur í
vinnu
Starfsendurhæfing
skilar árangri og hægt
hefur á tíðni örorku
VIRK
» 28 ráðgjafar á
vegum VIRK
starfa hjá stétt-
arfélögum um
allt land.
» 63% þeirra
sem leita til
VIRK eru konur
en karlar 37%.
Skólagjöld í
Verzlunarskóla
Íslands hækk-
uðu um 14%
milli ára og eru
nú tæpar 100
þúsund krónur.
Veturinn fyrir
bankahrun voru
gjöldin 70.200
krónur, en hafa hækkað vegna
verðbólgu. Það hefur þó lítil áhrif á
aðsóknina, því 466 nemar sóttu um
skólann í vor. Verzló er sem fyrr
vinsælasti framhaldsskólinn, en alls
þurftu átta skólar að vísa frá nem-
endum þar sem umsóknir voru
fleiri en pláss. »6
Skólagjöld 30%
hærri en í góðærinu
Fundur flugmanna og Icelandair
stóð enn á tólfta tímanum í gær-
kvöldi og hafði þokast nokkuð í átt
að niðurstöðu. „Það er verið að út-
færa ýmis atriði, en það er engin
niðurstaða komin ennþá,“ sagði
Kjartan Jónsson, framkvæmda-
stjóri FÍA, um samningaviðræð-
urnar. Það væri á valdi ríkis-
sáttasemjara að ákveða hvort
haldið yrði áfram fram á nótt.
Löng fundarseta og
mál þokast áfram
Fólk sem sækir um greiðsluað-
lögun hjá umboðsmanni skuld-
ara eftir 1. júlí fær ekki greiðslu-
skjól á meðan umsóknin er af-
greidd. Ákvæði fyrir nýja um-
sækjendur fellur úr gildi þar
sem reiknað var með að emb-
ættið yrði komið í fullan rekstur
og biðin orðin styttri.
„Úrræðið hefur í sjálfu sér
virkað en gengið allt of hægt,“
segir Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra. Fulltrúar um-
boðsmanns skuldara ræddu við
félags- og trygginganefnd Al-
þingis um að framlengja frest-
inn, en það var ekki gert. »18
Gengið allt
of hægt
GREIÐSLUSKJÓL
Kröfur í þrotabú
félagsins X-75 ehf.,
áður Bókabúðar
Máls og menningar
ehf., nema 114
milljónum króna.
Skiptastjóri segist
vonast til þess að
eignir finnist í
búinu fyrir for-
gangskröfum, sem eru 14 milljónir,
en telur að ekkert fáist upp í 100
milljóna króna almennar kröfur.
X-75 ehf. var stofnað í ágúst 2009,
þegar eigandi húsnæðisins á Lauga-
vegi 18, Kaupangur, keypti rekstur
búðarinnar. »16
Aðeins forgangs-
kröfur greiddar