Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 4

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 4
HEIMILISHAGFRÆÐI Heimilishagfræði fjallar um búskap einstaklinga og fjölskyldna. Með góðum búskap er átt við það, að menn reyni að notfæra svo hyggilega sem tök eru á allt það, sem fellur til búsins. Húsmæður þurfa að hagnýta það, sem fellur til búsins, þær eru neyzlustjórar á heimilinu, ef svo mætti að orði kveða. Áður fyrr var, eins og kunnugt er, allur matur skammtaður og var það verk hús- móðurinnar og sömuleiðis hefur hún séð hverjum heimilismanni fyrir fatnaði. En þá fór öll framleiðsla á fatnaði og allur matartilbúningur fram á heimilinu sjálfu og bjó hvert heimili sem mest að sínu. Nú er þetta allt öðruvísi. Framleiðsla á heimilunum hefur stórum minnkað og hefur iðnaðurinn tekið við mörgum heim- ilisstörfum. Framleiðslan er nú mjög fjöl- breytt og verður fjölbreyttari með hverju ári, svo að segja má, að það sé miklu erf- iðara að vera ,,neyzlustjóri“ en áður fyrr. Svo sem kunnugt er hefur frú Eiríka Friðriksdóttir, hagfræðingur undanfarin ár rannsakað neyzluna á íslandi á vegum framkvæmdabankans. Niðurstöður henn- ar voru birtar í tímariti Framkvæmda- bankans ,,Úr þjóðarbúskapnum“. Held ég að fróðlegt sé að athuga þessar nið- urstöður nánar. Þegar smásöluverð er reiknað á öllum hlutum, sem notaðir hafa verið, var það árið 1958 samtals fyrir alla Islendinga 4.096 millj. kr. á öllum neyzluvörum. (Smáleiðréttingar hafa komið fram seinna) Stærsti liðurinn er að sjálfsögðu maturinn. I hann eyddum við 1163 millj. eða um 28% af öllum kostnaði. Til sam- anburðar má geta þess að föt og skófatn- aður okkar kostaði 499 millj. Þar sem húsmæður hafa mest áhrif á matarkostn- aðinn, skal hann gerður að umtalsefni hér. Hefur frú Eirika skipt þeim kostn- aði í níu flokka, eins og sýnt er í töflu I. Til þess að gera það auðveldara að fá yf- irlit yfir allar þessar tölur, hef ég ein- ungis skrifað þær upp í heilum milljónum króna og getur því numið nokkrum hundruðum þúsunda króna til eða frá. Kornvörur og brauð kr. millj. króna 102 Kjöt og kjötvörur - 313 Fiskur og fiskmeti - 73 Mjólk, ostar og egg - 279 Olía og feitmeti _ _ - 96 Ávextir og grœnmeti - 130 Kaffi, te, kakao - 55 Sykur, sulta og sœlgœti _ _ - 100 Önnur matvœli - 15 Fyrir kornvörur og brauð var borgað 102 millj. kr. eða um 9% af matarkostn- aðinum. Af þeirri upphæð var borgað 63 millj. fyrir brauð og kökur keyptar í búð, en 39 millj. fyrir mjöl og grjón. Kök- urnar kostuðu 23 millj., en rúgbrauðið ekki nema 5 millj. Það er því skiljanlegt að brauðbaksturinn sitji á hakanum hjá bökurum. Fyrir kjöt og kjötvörur voru greiddar 313 millj. kr. eða um 28% af matarkostn- aðinum. Skiptist þessi liður í allmarga flokka, sem ég skal ekki gera að umtals- efni hér. Virðist fara í vöxt að kaupa full- tilbúið álegg og ýmsar kjötiðnaðarvörur eins og pylsur o. þ. u. 1., og er ekki nema gott eitt um það að segja, þegar notað er kjöt í það, sem annars færi til spillis. En margt af þessu tlbúna áleggi getum við sparað stórfé á með því að búa það til sjálfar. T. d. kostar tilbúin rúllupylsa í dag 90,50 kr, hvert kg en 35-40 kr. hvert kg heimatilbúin. Ef við gerum ráð fyrir 4 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.