Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 29

Húsfreyjan - 01.01.1963, Blaðsíða 29
fred Áslander dósent í Stokkhólmi segir svo um sýrustig nokkurra matvæla og drykkja: Súrmjólk 4,32, youghurt 3,96, epli 3,2—3,5, tómatar 4,35, appelsínur 3,84, sítrónur 2,26, súrbrauð frá ýms- um löndum 4,2—4,6, gosdrykkir (límon- aði) 2,64, Kóka kóla 2,5 o. s. frv. Með öðrum orðum: Þetta er allt mjög súrt (skyrið líka). En skemmir þetta „súr- meti“ allt tennurnar? Varla. Farið er að efast um algildi sýrugerlakenningarinn- ar, en leggja áherzlu á heilnæmt fæði, er í séu öll nauðsynleg næringarefni fyrir tennurnar. Það sé aðalatriðið. Ofneyzla hreinsaðs sykurs og sælgætis eflaust skaðleg og því hættulegri, sem fæðið er lélegra. Munið það. Suður í Vestur-Indí- um og víðar naga börnin daglega syk- urreyr, það er þeirra „sleikjupinnasæl- gæti“. En ekki skemmir það tennur krakkanna. Sykurreyrinn er nefnilega steinefnarikur og það ræður úrslitum. En fullorðna fólkið þarna í suðvestrinu er gráðugt í hreinsaðan sykur, nærri eins og við — og það þjáist af tannpinu! Bandarískir tannlæknar ráðleggja sér- hverjum manni að snæða epli eftir mál- tíð og hafa mjólk og hrátt grænmeti í aukamáltíðir. Þar vaxa epli nær hvar- vetna. — Á íslandi má eta hráar gulróf- ur og gulrætur með sama árangri. Þetta hreinsar tennurnar á við góða burstun og er mesta hollmeti, en ,sælgæti‘ er fjörefnasnautt og tanskemmandi. Brúk- unarleysi tanna og kjálka er líka athug- unarvert ,,menningarfyrirbæri“. Fólkið vill helzt mjúkmeti og margur nennir varla að tyggja! Erlendis hafa nýlega verið gerðar tilraunir í barnaskólum með tyggingu. Börnin voru látin tyggja vandlega gróft brauð, án þess að drekka neitt fyrr en á eftir. Kunnu sum varla að tyggja að gagni og kvörtuðu fyrst 3 stað. En tennur og kjálkar styrkjast ekki eðlilega nema á þá sé reynt. Harð- fiskur, gróft brauð, hrátt grænmeti o. s. frv. er líka hollmeti að þessu leyti, þ. e. styrkir tennurnar. Græðgi barna og unglinga í sælgæti stendur oft í sam- bandi við ófullnægjandi fæði. Og krökk- um er eðlilegt að reyna á tennur og kjálka. Þau ,,jórtra“ tyggigúmmí heldur en ekki neitt. Fæðið var mjúkt og reyndi ekkert á. Það eru í rauninni engin vina- hót að gefa krakka sælgæti og mikinn sykur. Þvert á móti er það skaðlegur ávani. Styrkið tennur og kjálka heldur á harðfiski, hráum rófum, gulrótum og margskonar grænmeti. Tannskemmdir eru að öllum líkindum aðallega hörgul- kvilli; þ. e. nauðsynleg efni vantar í dag- lega fæðu; svo sem fjörefni, kalk, fosfór o. s. frv. Áður fyrr borðuðu menn brjósk og lin bein til hollustu. Farið er að gera tilraunir með beinamjöl í þess stað og blanda í ýmsa rétti. Flúorblandað drykkjarvatn er sums staðar reynt. En flúor um of er á hinn bóginn eitur. Nær- ingarríkt fæði verður eflaust aðal hjálp- arhellan. Og garðyrkjumenn geta átt drjúgan þátt í bættu mataræði þjóðar- innar. I greinargerð Tannlæknafélags Is- lands 17.2. 1962 segir m. a. svo: Að komast hjá tannskemmdum er það sem árangursríkast er, þegar barizt er gegn tannskemmdum. Tannviðgerðir mætti frekar líta á sem neyðarúrræði, er grípa verður til við þær tennur, sem skemmast. Sem dæmi um, hve mikil áherzla er lögð á þetta atriði, t. d. í Osló og víðar, má nefna, að öllum barnaskólabörnum þar er veitt ókeypis máltíð, sem saman- stendur af grófu brauði, hörðu skonroki, gulrót og mjólk. Þetta verður að borð- ast eftir vissum reglum í skólanum. Fyrst er brauðið borðað þurrt, síðan er mjólkin drukkin og að lokum gulrótin nöguð. Eftir að þetta fyrirkomulag var tekið upp, tók uppundir klukkutíma fyr- ir sum börnin að borða skammtinn sinn. Margir af kennurunum áttu einnig í erfið- leikum með að tyggja þurra bitana. Enda skiljanlegt með tilliti til þess að vaninn var orðinn sá að tyggja fæðuna ekki, heldur renna bitunum niður ótuggðum með mjólk, kaffi eða ein- hverju öðru. Slíkt leiðir aftur á móti HÚSPREYJAN 29

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.