Vera - 01.02.2005, Blaðsíða 49

Vera - 01.02.2005, Blaðsíða 49
emur þegar ■íknast - SEGIR KRISTÍN ÓMARSDÓTTIR Borgarleikhúsið sýnir nú á Nýja sviðinu leikritið Segöu mér allt eftir Kristínu Ómarsdóttur í leikstjórn Auðar Bjarnadótt- ur. Leikritið fjallar um 12 ára stúlku sem er í hjólastjól og lætur sig dreyma um aðra foreldra þegar foreldrar hennar eru of upp- tekin af eigin vandamálum til að gefa sér tíma til að tala við hana. Þú hefur verið afkastamikil undanfarið. Tvö leikrit á sviði samtímis og bók um síðustu jól. Er þetta uppsafnað efni eða fékkstu bara andann yfir þig? í eðli mínu er ég lítill sem enginn safn- ari. Ég elska að henda. Ég eiska að fara út með rusl. Ég vinn jafnt og þétt og andinn kemur þegar honum þóknast. Hann er skvísa, gæi, primadonna, frábær félagi. Takk, kæri andi. Ég skipti um útgefanda á siðasta ári. Ég sendi inn hugmynd tiL leik- hópsins í Nemendaleikhúsinu á svipuðum tíma. Borgarleikhúsið vildi taka upp leikrit- ið Segðu mér allt fyrir tveimur árum og það tók þennan tíma fyrir Segðu mér alLt að koma fyrir augu áhorfenda. Það vildi svo skemmtilega til að það geróist á sama tima og skáldsagan Hér var að koma út og frum- sýningin á Spítalaskipinu. Kannski er ég svona manneskja sem er boðið í mörg boð eina helgi og svo engin boð margar helgar i röð. Sumir eru þannig. Ég þekki nokkra. Leikritin fjalla um alvarleg samfé- lagsmál, strið, baráttu kynjanna og sam- skipti foreldra og barna. Sækir þetta efni sérstaklega á þig núna og hver er þá ástæðan? Þegar ég var unglingur var ég eitt sinn skömmuð fyrir að vera áhrifagjörn og þótti þaó eitthvað alveg hræðilega hræðiLegt hjá þeim sem skömmuðu mig. Og einhvers kon- ar áfaLL fyrir mig. Aó vera skömmuð svona. Annars veit ég ekki hvaðan hugmyndirnar koma en að minnsta kosti þá opnar maður ekki svo dagblað nú á tímum nema að stríð beri á góma og fréttir af ofbeldi á konum eru vikuLegar hér á Spáni tiL dæmis. En ég viLdi að ég vissi eitthvað meira en það sem stendur i dagbLöðunum. Þess óskaói ég mér heitt. Foreldrarnir í Segðu mér allt eru mjög upptekin af sjálfum sér og hafa lítinn tíma fyrir dóttur sína. Heldurðu að það sé algengt í íslensku samfélagi? Nei. Ég held að fóLk sé ekki öðruvisi á ísLandi en annars staðar i heiminum. Stelpan hugsar mikið um að undirbúa sig undir að verða kynvera. Heldurðu að stelpur hafi almennt miklar áhyggjur af þessu eða hefur hún meiri áhyggjur af því að hún er fötluð? SteLpur fá náttúru, einsog strákar, og þær eru örugglega bæði uppteknar af því og með áhyggjur. Með eftirvæntingu og kvíða. Þá skiptir engu máLi hvort maður er í hjóLastóL eða ekki. Svo eru Líka þeir tiL sem fá ekki náttúru, og kannski ég skrifi Leikrit um þá bráóum. En Leikritið fjaLLar öðrum þræði um einhvern sem hefur ekki sömu að- stöðu tiL að Leika sér með náttúru sína og þessi margumtaLaði „meirihLuti", sem er svo ekki tiL, hrein imyndun, tiLbúningur, búinn tiL fyrir visindamenn, eða er það ekki? Svona eins og pappírsviðskipti kannski, þessi venjulegi meirihLuti. Pabbi minn seg- ir: Ég er venjulegur. Og sama segir Guðrún i Leikritinu, hún segir: Ég er venjuLeg. Og hún finnur upp sitt eigið tívoLi fyrir náttúr- una sína. Eins og aLLir! Ertu að skrifa nýja bók núna - eða leikrit? Ég er að Lesa bækur í þessari viku. Ef ég á að vera skáLdLeg og tala eins og skáLd þá er það kannski þannig með skáLd að gott er að Lesa og Lesa og Lesa og lesa, eins og er fyrir LeigubíLstjóra að prufa fuLLt af bíLum, eða hvað? Ég kann ekki á Líkingarnar. Nú er ég sem sagt að Lesa og svoldið að teikna á meðan verkin sem hafa farið svona frá mér á síðustu vikum eru að hverfa úr höfðinu á mér Lika. vera / 1. tbl. / 2005 / 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.