Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 35
UV Sport LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 35 --------------------------e* DARREL GEGN KEFLAVÍK Grindavík og Keflavík hefja undanúrslitaeinvígi sitt í úrslitakeppni Intersport- deildarinnar í dag þegar Keflvíkingar heimsækja Röstina í Grindavík. Grindavík og Keflavík eru nú að mætast í úrslitakeppninni í áttunda skiptið á síðustu níu árum og leika sinn 29. innbyrðisleik í sögu úrslitakeppninnar í kvöld. Titilvörnin heldur áfram Keflavík tryggði séríslandsmeistaratitilinn í Röstinni í Grindavik í fyrra en það hefur Grindvikingum aldrei tekist. Þegar Grindavík varð íslandsmeistari i eina skiptið fyrir átta árum þá unnu þeir hann i sjötta leik i iþróttahúsinu i Keflavik. DV-mynd SigurðurJökull Grindavík og Keflavik hafa mæst þrisvar sinnum i vetur, tvisvar í Grindavík og einu sinni í Keflavík. Grindavík vann fyrsta leikinn í deildinni í Grindavík en Keflavík hefur unnið síðustu tvo leikina. Tölfræði liða i innbyrðisleikjum: Úrslit leikjanna: 1. des. deild, G Grindavik 92-90 17.jan. bikar, K Keflavík 107-97 20. feb. deild. K Keflavík 94-90 G= Grlndavfk, K=Keflav(k Leikhlutar 1. leikhluti Keflavík +4 2. leikhluti Grindavík +17 3. leikhluti Keflavík +1 4. leikhluti Keflavík +24 Tölfræðisamanburður. Stig Keflavík 291-279 Fráköst Keflavík 118-111 Sóknarfráköst Keflavík 53-41 Skotnýting Grindavík 50%-46% Vltanýting Keflavík 79%-75% Tapaðir boltar Keflavík 47-52 Varin skot Grindavík 12-9 Villur Grindavík 56-65 3ja stiga körfur Keflavík 23-16 Stig frá bekk Keflavík 55-30 Tölfræði leikmanna í innbyrðisleikjum: Hæsta framlag V Darrel Lewis, Grindavik 34,0 , DanTrammel, Grindavlk 34,0*' Derrick Allen, Keflavlk 33,0 Nick Bradford, Keflavík 27,7 Jackie Rogers, Grindavík 26,0* Falur Harðarson, Keflavík 21,0* Páll Axel Vilbergson, Grindav. 18,0 Flest stig að meðaltali Darrel Lewis, Grindavík 36,0 Derrick Allen, Keflavík 28,0 Falur Harðarson, Keflavík 24,0* Nick Bradford, Keflavik 21,7 Páll Axel Vilbergson, Grindav. 20,0 Flest fráköst að meðaltali DanTrammel, Grindavík 16,0* Derrick Allen, Keflavík 13,7 Nick Bradford, Keflavík 10,7 Jackie Rogers, Grindavík 10,0* Darrel Lewis, Grindavík 8,0 Flestar stoðsendingar: Nick Bradford, Keflavik 6,0 Darrel Lewis, Grindavík 5,3 Jackie Rogers, Grindavík 4,0* Helgi Jónas Guðfinnss., Grind. 3,5 4 K, Flestar þriggja stlga körfur Páll Axel Vilþergsson, Grindavík 11 ^alur Harðarson, Keflavík 7* Gunnar Finarsson, Keflavík 4 Halldór ðrn Halldórsson, Keflav. 3 Magnús Pór Gunnarsson, Keflav. Nick Bradford, Keflavík V Besta skotnýting (lágm. 6 hitt) Timothy Szatko, Grindavík 77,8% Gunnar Stefánsson, Keflavík 75% Dan Trammel, Grindavík 69,2% Darrel Lewis, Grindavík 54,1% Páll Axel Vilbergsson, Grind. 52,3% Besta vítanýting (lágm. 4 hitt) Nick Bradford, Keflavík 88,9% Darrel Lewis, Grindavík 86,7% Derrick Allen, Keflavik 85,7% Gunnar Einarsson, Kefiavík 85,7% Flestar villur að meðaltali Hjörtur Harðarson, Keflavík 5,0* Darrel Lewis, Grindavík 4,0 DanTrammel, Grindavík 4,0* Jackie Rogers, Grindavik 4,0* * Léku bara elnn lelk af þremur ekhi dngað hingað til mm Hfut J Óstöðvandi? jKt Darrel Lewis hefur ^SSm leikið stórkostlega gegn Keflavik i vetur, nHfiH skorað 36 stig að meðaltali iþremur MM leikjum og nýtt þar skotin WBW sín 54% og vitin 86%. í átta liða úrslitunum gegn KR varDarrel með 31,7 stig, 8,7 fráköst og 4,7 stoðsendingar að meðatali íleik auk þess að nýta 53% skotanna og 82% vita sinna. DV-mynd Teitur V hávegum hafður næstu tvær vikurnar þegar þessi nágrannalið glíma um hvort þeirra fer í úrslitaeinvígið ',vr ** annað árið í röð. ooi@dv.rs Darrel Lewis er án efa einn allra besti leikmaðurinn í Intersport- deildinni, það hefur hann sýnt margoft meðal annars í nýloknu einvfgi gegn KR og í þeim níu leikjum sem hann hefur spilað gegn Keflavík síðustu tvö tímabil. Þessi frábæra frammistaða Darrels hefur þó ekki dugað gegn Keflvíkingum því Keflavík hefur unnið 6 af þessum 9 leikjum og alla úrslitaleikina fimm, það er í útsláttarkeppnum. Darrel fékk góðan stuðning frá Anthony Q. Jones í átta liða úrslitunum gegn KR og saman komu þeir að 105 körfum Grindavíkur í þessum þrem'ur leikjum. Liðsinni jones, sem reynir nú á í fyrsta sinn gegn Keflavík í kvöld, dugar kannski Darrel og Grindvíkingum til að vinna loksins úrslitaleik gegn Keflavík en einvígi liðanna byrjar í Röstinni í Grindavík klukkan 16:00 í dag. Grindavík og Keflavík mætast nú í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í áttunda sinn á síðustu níu árum og leikurinn í dag verður 29. innbyrðisleikur liðanna í úrslitakeppni. Keflavík hefur unnið 17 af þessum 28 leikjum þar af 13 af síðustu 17 og unnu meðal annars úrslitaeinvígið um titilinn gegn Grindavík í fyrra 3-0. Þetta er ennfremur í níunda sinn sem Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindavíkur, stjórnar því í einvígi gegn Keflavík í úrslitakeppninni og lið hans hafa haft betur í helmingi skiptanna. Það fylgir þó sögunni að Keflvíkingar hafa slegið út lið hans í þrjú síðustu skipti, þar af, 6-1, tvö síðustu tímabil. Sigur í einvígi gegn Keflavík hefur samt verið liður í öllum þremur fslandsmeistara- titlunum sem Friðrik Ingi hefur unnið sem þjálfari en hann stefnir nú að því að verða sá fyrsti sem gerir fjögur lið að meisturum eftir úrslitakeppni. Tvö lið Keflvíkinga Keflvíkingar virðast vera með tvö lið þessi misserin, eitt sem spilar leiki iiðsins á Sunnubrautinni og hefur unnið 28 ieiki í röð gegn íslenskum liðum og hitt sem ferðast á útileiki og hefur tapað 8 af 12 leikjum í Intersport-deildinni í vetur (deild og úrslitakeppni). Ætli Keflvíkingar sér áfram í úrslitaeinvígið þurfa þeir að mæta með Sunnubrautar-liðið í útileikina í Grindavík en þess ber að geta að Keílavík hefur haft gott tak á Grindavík í úrslitakeppninni undan- farin ár, unnið 4 af síðustu fimm einvígum 12-2 en Grindavfk hafði betur í átta liða úrslitunum árið 2000 sem var eitt slakasta tímabil Keflvíkinga í langan tíma. Sterkir inn í teig Styrkur Keflvíkinga gegn Grindavík liggur mikið inn í teig þar sem þéir hafa frábæran bandarískan leikmann í Derrick Allen og landsliðsmanninn Fannar Ólafsson sem báðir eru vanir að ríkja undir báðum körfum. Það mun því reyna mikið á þá Jackie Rogers og Guðmund Bragason sem voru hvað eftir annað í villuvandræðum í einvíginu gegn KR. Keflvíkingar áttu hinsvegar í miklum vandræðum með bakverði Tindastóls, þá Clifton Cook og David Sanders (lítill framherji) sem gerðu þeim oft lífið leitt í einvíginu. Það boðar ekki gott því bakverðir Grindvíkinga í dag, þeir Darrel Lewis og Anthony Jones, eru engir meðalmenn og ættu líka að eiga gott með að losa um Pál Axel Vilbergsson sem sá varla körfuna í einvíginu gegn KR. Páll Axel ætti að eiga auðveldara um vik gegn lágvaxnari leikmönnum Keflavíkur. Darrel Lewis hefur spilað níu leiki gegn Keflavík frá því að hann kom til landsins og hefur kappinn farið mikinn í þessum leikjum. Tölur Darrel gegn Keflavík: Leikir 9 Leikir 30 stig eða meira 8 Stig íleik 35,4 Fráköst í leik 10,0 Stoðsendingar í leik 5,8 Skotnýting 51,9% Vítanýting 86,0% Tölur gegn Keflavík 2003-04: Leikir 3 Leikir 30 stig eða meira 3 Stig íleik 36,0 Fráköst i leik 8,0 Stoðsendingar í leik 5,3 Skotnýting 54,1% Vítanýting 86,7% Leikir Grindavíkur og Keflavikur síðustu ár hafa verið hraðir og skemmtilegir og mannskapurinn sem liðin tefla fram að þessu sinni gefur engin tilefni til að ætla annað en að hraður og skemmtilegur körfubolti verði í HAFA MÆST ÞRISVAR Stórleihip Darrels hala ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Rafmagnsgítar magnari poki, ól- snúra -stillir Rafmagnsgítarsett 29.900,- stgr. Söngkerfi Trommusett frá frá 59.900,- 49.900,- stgr. Gítarinn ehf. Stórhöfða 27, sími 552-2125 og 895 9376 www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is Klassískir gítarar frá 9.900,- stgr. ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.