Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2005, Blaðsíða 17
DV Astogsamlíf FIMMTUDAGUR 12. MAÍ2005 17 Það er ekki alltaf tekið út meö sældinni aö vera ( sambandi þótt vissulega hafi allt s(na kosti og galla. Þú ættir hins vegar að njóta þess að vera á lausu þegar svo ber undir og hér eru nokkur ráö til þess: Njóttu þess að hitta vini þfna af gagnstæöu kyni án þess aö makinn verði afbrýðissamur. Þú getur notaö þ(na peninga (þaö sem þú vilt, ekki sólpall eöa frystikistu. Þú getur vallð hvaöa bfómyndir þú vilt sjá án nokkurra málamyndana. Þú þarft ekki aö hlusta á hrotur makans. Þú getur veriö ham- ingjusamur/hamingjusöm með að vera eins og þú ert (staö þess aö reyna aö vera eins og makinn vill aö þú sért. M Nýtur Iffsins á lausu Brad Pitt er einn eftirsóttasti piparsveinn heims en ekki hefur verið staðfest aö hann og Angelina Jolie séu par. „Rómantfskasta lagið, þvf er auðsvarað en það er lag eftir Adam Sandler og heitlr „Grow old with you" (myndinni „The Wedding Singer" en það er lagið sem hann syngur f flugvélinni, ekki (sjálfri brúðkaupsveislunni. Mérfinnst textínn ( laginu algerlega fullkominn og þetta er barnalega einfalt lag. Þetta er svona iag sem ég myndi helst vilja semja sjálfur því það er ekkert flókið við það eða einhverjar flóknar ástarsamlfkingar f laginu, titillinn segir allt sem segja þarf. Þegar ég gifti mig þá mun ég örugglega spila lagið sjálf- ur fyrlr konuna mína en við eigum ekkert sérstakt lag saman en þetta er svona lag sem vlð tengjum okkur við." „Við íslendingar vorum með hvað flest kynsjúkdómasmit mið- að við höfðatölu árið 2001, í sam- anburði við hin Norðurlöndin," segir Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnasviði Land- læknisembættisins en hún hefur tekið saman tölur um fjölda til- kynntra tilfella kynsjúkdóma til sóttvamalæknis hér á landi síð- ustu ár. „Þetta hefur þó sennilega breyst en klamidíusmitum hefur fækkað en þeim hefur aftur á móti Qölgað í Danmörku og Svíþjóð." Konur greinast frekar en karlar Konur og karlar, ungir sem aldnir geta greinst með kynsjúk- dóma en algengast er að fólk greinist með klamidíu en kynsjúk- dómurinn, lrkt og aðrir kynsjúk- dómar, smitast milii manna við kynlíf. Klamidía getur verið ein- kennalaus hjá báðum kynjum og því getur smitaður einstaldingur smitað aðra án sinnar vitundar. „Einkenni koma þó sfður fram hjá konum en körlum en það eru að- eins fleiri konur sem greinast með klamidíu en karlar. Ástæðuna fyrir þessu tel ég vera að konur leiti frekar til lækna til að fá getnaðar- varnir, vegna barneigna og annars en karlar," segir Guðrún. Klamidía langalgengasti kynsjúkdómurinn Lfkt og með aðra sjúkdóma geta tilfelli kynsjúkdóma verið mismörg frá ári til árs og stundum er hægt að tala um faraldur í þess- um efnum. „Það var mikil aukning á klamidíutilfellum upp úr árinu 2000 en árið 1998 og 1999 var mik- ill áróður í gangi gegn smiti kyn- sjúkdóma með veggspjöldum, auglýsingum og öðru. Svo virðist sem sú herferð hafi ekki skilað árangri. Læknanemar hafa farið í framhaldsskóla og verið með fræðslu og svo er einnig starfandi félagsráðgjafi hjá okkur sem er með fræðslu um forvamir. Það em hins vegar miklar sveiflur á klamidíutilfellum og því er ekki gott að meta árangur af forvarna- starfi." í 4. tölublaði Farsóttarfrétta sem Landlæknisembættið gefur út kemur fram að á síðasta ári hafi klamidíutilfellum fjölgað um 6% frá árinu 2003. Þar kemur einnig fram að klamidía sé al- gengust meðal einstaklinga í ald- urshópnum 15-29 ára. Fleiri stúlkur en strákar í aldurshópn- um 15-19 ára greinast með klamidíu en í aldurshópnum 20- 24 ára aukast klamidíutilfelh meðal stráka. „Nokkur tilfelU hafa komið upp þar sem fólk greinist með lekanda eða sárasótt en þeir einstaklingar. em yfirleitt að koma erlendis frá og þá jafnvel frá svæðum þar sem lekandi og sárasótt eru mun algengari en hér á landi, enda greinast ekki margir einstaklingar með þessa kynsjúk- dóma hér árlega," segir Guðrún. Klamidía er því langalgengasti kynsjúkdómurinn hér á landi. Líkamstjáning stór hluti af samskiptum kynjanna Líkamstjáning er gríðarlega stór hluti af samskiptum fóUcs og ekki hvað síst þegar kemur að samskipt- um kynjanna. Augnsamband skiptir miklu máli og er hvað mikilvægasti þátturinn þegar fólk er að reyna að ná athygli annarra að fyrra bragði. Fólki er tamt að líta í kringum sig en hvort augun staðnæmist frekar á einum einstakling ræðst meðal ann- ars af augnsambandi. Það er mis- jafnt hvernig strauma fólk gefur frá sér og það er ekki endilega þeir sem eru fríðastir sem fá mestu athyglina. Með því að sitja eða standa afslöpp- uð/afslappaður líður fólki betur í nærveru þinni en ef þú ert með krosslagðar hendur eða fætur virkar þú fráhrindandi fyrir þá sem eru að tala við þig. Talið er að 60-80% sam- skipta okkar við aðra séu án orða. Konur hafa fleiri „merki,“ svo sem að fikta í hári sínu, dilla rassinum og fleiri. Karlmenn hafa færri „merki“ en þeir hagræða stundum fötum sínum og laga til „vininn“. Talið er að konur eigi frumkvæði þegar kem- ur að samskiptum kynjanna með því að gefa merki um að hún hafi áhuga svo sem með augnsambandi eða öðrum merkjum. Karlmenn á hinn bóginn eru líklegri til að láta til skarar skríða eftir að konur hafa gef- ið færi á sér. SAMBANDS I• Hættu aö hugsa um gömlu góðu dagana og sjáðu lífið í réttu Ijósi. Hann/hún sagði þér upp og sættu þig við það. Ekki vonast eftir því að þið byrjið saman aft- ur. Ef þú hefur misst samband við vini þl'na hafðu þá samband við þá aftur. Reyndu að hitta vini og fara út á meðal fólks og dreifa huganum. J» Byggðu upp sjálfstraust þitt. Margir eru með sjálfstraust f mol- um eftir sambandsslit og því er mikilvægt að byggja upp sjálfið á 4« Ekki fela tilfinningar þínar. Ræddu líðan þína við vini og fjöl- skyldu, það þarf enginn að skammast sin fyrir að líða illa eft ir sambandsslit. 3» Ekki leita huggunar í áfengi og vímuefnum til að reyna að deyfa tilfinningar og líðan þina. O. Ef þér líður enn illa vegna sambandsslitanna mörgum mán uðum seinna þá skaltu leita að- stoðar lækna eða ráðgjafa. /• Hugsaðu jákvætt. Mundu að þú ert frábær og einstök per- sóna. ö. Njóttu þess að vera ein- hleyp/ur og hugsa um sjálfa/n þig. Ekki líta á það sem neikvætt þó að þú eigir ekki kær- ustu/kærasta. “• Farðu og stundaðu líkams rækt eða sinntu áhugamálum þínum. II/. Ný framtíð, nýjir móguleik- ar. Sambandsslit geta verið upp- hafið af einhverju enn betra og skemmtilegra í lífi þínu. Rómantískasta lagið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.