Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2006, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10.JANÚAR2006 Sport DV Vináttulands- leikirvið Englendinga íslenska kvennalandslið- ið leikur vináttulandsleik gegn Englandi 9. mars næst- komandi og fer leikurinn fram í nágrenni Lundúna. Liðið leikur því tvo vináttu- leiki í vor, gegn Englandi í mars og gegn Hollandi í april. Stelpumar em að und- irbúa sig fyrir næstu leiki í undankeppni HM 2007 og koma þessir leikir í stað Al- garve-mótsins. Portúgalska knattspymusambandið samþyldcti ekki þátttöku ís- lenska liðsins í mótinu, þar sem ísland og Portúgal em saman í riðli í undankeppni HM 2007. Mahoneykom- intil Hauka Kvennalið Hauka hefur fengið til sín bandaríska leik- manninn Megan Mahoney sem fyllir skarð það sem KeKe Tardy skildi eftir sig. Tardy stökk á stærri samn- ing við þýsku meistarana í TSVWasserburg. Mahoney lék í fjögur ár við góðan orð- stír við Kansas State-háskól- ann sem var í fremstu röð öll árin. Mahoney sem er fjöl- hæfur ffamherji var með 10,1 stig, 6,2 fráköst og4,6 stoðsendingar að meðaltali í 129 leikjum í háskóla. Tardymeð 8 stig í fyrsta leik KeKe Tardy, fyrr- verandi leikmaður Powerade-meistara Hauka í kvennakörf- unni, skoraði 8 stig og tók 7 fráköst á 20 mínútum í sínum fyrsta leik með TSV Wasserburg í þýsku úrvals- deildinni í körfubolta um helgina. Tardy og nýju félag- amir hennar unnu yfir- burðasigur á BC Wolfen- buttel, 102-29, og em áfram með fjögurra stiga fomstu á toppi deildarinnar. Tardy nýtti 4 af 11 skotum sínum auk þess að gefa 2 stoðsend- ingar og verja 1 skot. Jökull semur viðVíkinga Jökull Etisarbetar- son, sem hefur alið allan sinn feril hjá KR, samdi um helgina við nýliða Víkings í Landsbankadeild karla. Jökull hefur leikið 61 leik fyrir KR í efstu deild og varð ís- landsmeistari með KR 2002 og 2003. Jökull kemur frítt til Víkinga en hann var án samnings. Á heimsíðu Vík- inga er haft eftir Magnúsi Gylfasyni þjálfara liðsins að að hann ætli sér að nota Jökul sem miðjumann en hann hefur spilað sem bak- vörður með KR. Dregið var í 16-liða úrslit í ensku bikarkeppninni í gær þó enn eigi eftir að knýja fram úrslit í nokkrum leikjum í 32-liða úrslitunum sem fóru fram um helgina. Þrjú utandeildarlið eru enn með í pottinum þó það verði að teljast ólíklegt að þau vinni sína leiki eftir að hafa náð jafntefli um helgina. Bikar- meistarar Arsenal mæta Bolton á útivelli. Enska bikíij\eppnm 4. umfc't Arsenal sló Bolton út ífyrra Arsene Wenger (til vinstri) tekurhér ihöndina á Sam Allardyce eftir sig- urArsenal á Reebok-vellinum íátta liða úrslitum enska bikarsins I fyrra. on Villa-Port vale on-Arsenai V ,v.;h.-A<r-r nventrv-Nuneaton/MlddiesDroug anchéster Clty-Wiga Engir stórleikir litu dagsins ljðs þegar dregið var í 16-liða úrslit um ensku bikarkeppninnar í gær. Bikarmeistarar Arsenal dróg ust gegn Bolton á útivelli en liðin áttust einnig við í fjórðungs úrslitum í fýrra. Þeir leikir, sem lauk með jafn- tefli um helgina þegar 32-liða úr- slit fóru fram, verða endurteknir í næstu viku á heimavelli þess liðs sem lék á útivelli um helgina. Þannig er ekki enn ljóst hvaða 16 lið komast áfram í fjórðu umferð keppninnar en þrjú utandeildar- lið fá tækifæri til að komast þang- að með því að vinna andstæðing sinn í næstu viku. Frægastur var leikur utan- deildarliðsins Burton Albion og Manchester United sem lauk með jafntefli á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Nú fá leikmenn Burton tækifæri til að spreyta sig á Old Trafford sem hefur oft verið nefnt leikvangur draumanna. Leikur- inn verður einnig sýndur beint á BBC sem þýðir að félagið fær að minnsta kosti sem nemur 50 milljónum króna í sinn snúð fyrir leikinn. En sigurvegari þess leiks mætir svo Wolves. „Við megum vera heppnir ef við ætlum okkur á Molineux-leik- vanginn (heimavöll Wolves) - en við ætlum að gera okkar besta. Ef við komumst alla leið þangað verður það annar frábær leikur fyrir okkur." Nuneaton náði að knýja fram jafntefli gegn Middlesbrough á heimavelli sínum um helgina og mæta þeim aftur í síðari viku. Coventry verður andstæðingur þess liðs sem vinnur þá viðureign og þá mun annað hvort Barnsley eða Walsall mæta Tamworth ef liðið vinnur sigur á íslendingafé- laginu Stoke City. Nágrannafélag Stoke, Port Vale, datt í lukkupottinn með því að mæta öðru grannaliði, Aston Villa. Félagið á nefnilega í mikl- um fjárhagserfiðleikum og segir Bill Bratt, stjórnarmaður Port Vale, að þó svo að félagið sé ekki á barmi gjaldþrots hafi hann ekk- ert á móti því að ná jafntefli í fyrri leiknum og knýja fram aðra viðureign. Sá leikur yrði sýndur í sjónvarpi með tilheyrandi tekj- um. „En ég er ekkert að hugsa um svoleiðis - við ætlum að vinna leikinn." Leicester, félag Jóhannesar Karls Guðjónssonar, mætir South- ampton eftir að liðið vann góðan ace toke/Tamworth-Bamsley/waisa Wolvév 3-2 sígur á Tottenham um helg- ina. Jóhannes Karl lagði upp tvö mörk í leiknum, þar á meðal sigur- markið. Aðeins tveir leikir verða þar sem eingöngu úrvalsdeildarlið koma við sögu - það eru leikir Liverpool og Portsmouth annars vegar og West Ham og Blackburn hins veg- ar. Það er þó ekki útséð með það þar sem til að mynda Chelsea mætir annað hvort Everton eða Millwall í sinni viðureign. Mark Xabi Alonso frá eigin vallarhelmingi gerði einn Breta að ríkum manni Græddi 2,7 milljónirá lokamarki Liverpool gegn Luton Spánverjinn Xabi Alonso skoraði tvö mörk með miklum langskotum í 5-3 sigri Liverpool á Luton í ensku bikarkeppninni um helgina. Seinna markið skoraði hann af eigin vallar- helmingi í uppbótartíma en mark- vörður Luton hafði þá hætt sér fram í hornspyrnu. Markið skoraði Xabi lfklega af um 60 metra færi en fyrra mark hans var af um miðjum vallar- helmingi Luton og skoraði Alonso því tvö mörk af samtals um 100 metra færi í þessum ótrúlega leik. Það er eldd nóg með að seinna mark hans hafi verið afar óvenjulegt þá gerði það einn stuðningsmann- inn sérstaklega ánægðan. Ekki vegna þessi að markið gulltryggði Liverpool áfram í næstu umferð eftir að hafa lent 1-3 undir á útivelli held- ur aðallega vegna þess að pyngja hans þyngdist til mildlla muna. 42 ára stuðningsmaður Liver- pool, Adrian Hayward, hafði nefni- lega sett 200 pund á það að Xabi myndi skora mark frá eigin vallar- helmingi á tímabilinu. Líkurnar voru einn á móti 125 að Spánveijinn myndi skora slíkt mark en Hayward sagðist hafa tekið eftir því að Álonso reyndi nokkrum sinnum að skora frá eigin vallarhelmingi á síðasta tíma- bili. „Eftir að ég skilaði inn þessu veð- máli sá ég alltaf fyrir mér hvað myndi gerast þegar markvörður mótherjanna myndi koma fram í hornspyrnu. Það var líklegast að slíkt myndi gerast í bikarleik þar sem liðin höfðu engu að tapa," sagði Hayward í viðtali við Reuters-fréttastofuna. „Ég trúði því varla þegar mark- vörður Luton hljóp fram í hornspyrnunni. Það var að líða yfir mig af spennu og þeg- ar boltinn fór inn missti ég al- gjörlega stjórn á mér,“ bætti Hayward við en hann græddi 2,7 milljónir íslenskra króna á þessu marki Alonso. Skoraði af 60 metra færi Spánverjn Xabi Alonso skoraði tvö mörk afsamtc um 100 metra færi gegn Luton um hel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.