Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2006, Blaðsíða 18
78 FIMMTUDAGUR 2. MARS 2006 Sport py (Jrslitaleikur- inníkvöld Fram og Víkingur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla í Egilshöll í kvöld klukkan 19.00. Verði jafnt að loknum venjulegum leiktíma verður framlengt og verði enn jafiit eftir hana verður gripið til vítaspyrnu- keppni. Framarar höfnuðu í efsta sæti A-riðils og Víkingar í efsta sæti B-riðils og leika því til úrslita. Miðaverð fyrir 17 ára og eldri er kr. 500, en frítt er fyrir 16 ára og yngri. Framarar hafa 25 sinnum orðið Reykjavíkurmeistarar, síðast 2003, en Víkingar sem hafa unnið titilinn fimm sinnum hafa ekki spilað úr- slitaleik á mótinu í 23 ár. Hiddinktekur við Rússum Hollendingurinn Guus Hiddink verður næsti þjálfari rússneska landsliðsins í knatt- spymu en frá þessu var greint í rússnesk- um fjölmiðlum í gær. Hinn 59 ára núver- andi þjálfari hollenska liðs- ins PSV Eindhoven fer með Ástrala á HM í Þýskalandi í sumar og hefur áður gert góða hluti á undanfömum heimsmeistaramótum með bæði Holland (4. sæti 1998) og Suður-Kóreu (4. sæti 2002). Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur sett mikla peninga í rússneska boltann að undanfömu með það að markmiði að reyna að rífa upp rússneska lands- liðið sem komst ekki á HM í Þýskalandi næsta sumar. Melvin Scott í eins leiks bann Aganefnd KKÍ hefur úr- skurðað Melvin Scott, leik- mann KR í Iceland Express- deildinni, í eins leiks bann vegna brottvís- unar sem hann fékk í leik KR og Ham- ars/Selfoss sl. fimmtudag. Á fund- inum var einnig tekin fyrir kæra á hendur ÍR vegna skrílsláta áhorf- enda, en flösku var kastað inn á völlinn í leik ÍR og Skallagríms í Iceland Ex- press-deildinni í Seljaskóla þann 23. febrúar sl. Kæmnni var vísað frá þar sem hún barst nefndinni eftir að kærufrestur var runninn út. Kvennalið Grindavíkur hefur samið við engan venjulegan 188 sm miðherja frá Bandaríkjunum. Tamara Stocks á að leysa af Jericu Watson sem var með 29 stig, 16 fráköst og 4 varin skot að meðaltali í 16 leikjum sínum í Iceland Express deild kvenna i körfubolta í vetur. Playboy-stúlka spilar með Grindavík Tamara Stocks, hinn nýi erlendi leikmaður Grindavíkur í Iceland Express deild kvenna, á ekki bara feril að baki í WNBA- deildinni í körfubolta, heldur hefur hún einnig setið fyrir í karla- blaðinu Playboy og hefur einnig starfað sem fyrirsæta. Stocks sat fyrir í Playboy í mars 2001 eða vorið eftir að hún útskrifaðist úr Florida-háskólanum og skömmu áður en hún hóf leik með WNBA-liðinu Washington Mystics. Það eru liðin flmm ár síðan Tamara Stocks birtist fáklædd á síð- um Playboy-blaðsins en síðan hefur hún leikið bæði með Washington Mystics og Charlotte Sting í WNBA- deildinni sem og með liðum í efstu deild í Kína, Króatíu og nú síðast á Spáni þar sem að hún var að spila sitt annað tímabil. Vakti mikla athygli í Bandaríkjunum Mál Stocks vakti mikla athygli í Bandaríkjunum á sínum tíma því myndir af henni birtust skömmu eftir að annar leikmaður WNBA- deildarinnar, Lisa Harrison hjá Phoenix Mercury, hafði neitað að sitja nakin fyrir á mynd en Harrison hafði skömmu áður verið kosin kyn- þokkafylltsti leikmaður deildarinnar af lesendum blaðsins á heimasíðu Playboy. í umfjöllum fjölmiðla um málið kom fram að Stocks hafði set- ið fyrir á myndunum 30. mars 2001 eða 21 degi áður en hún var valin af Washington Mystics. „Þeir voru á háskólalóðinni og voru að leita að fyrirsætu. Ég ákvað að slá til en sá til þess að þetta væri smekklega gert,“ sagði Stocks í viðtali við ESPN á sínum tíma og bætti við: „Ég vildi samt ekki sýna allt sem ég hef.“ Myndin tekin í eldhúsinu í Playboy-blaðinu sést Stocks halla sér fram á eldhúsborðið fyrir framan skál með morgunkorni. í myndatextanum segir: „Hér sést hin 188 sm háa Tamara Stocks, nemi í Jm. íT '' GLOFAXIHF. ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 ÖÍLSKÚRS og iðnaðarhurðir * Hurðír til á lager • Smíðað eftir rháli • Eldvarnarhurðir • Öryggíshurðir í vetur Ný tæki - Betra verð! S3S5rc 17.900.- 12.900.- am.fyrir-kr.Qppinn HREYSTI almannatengslum, ná sér í orku fyr- ir baráttuna á körfúboltavellinum." Málið fór ekkert lengra en í fjöl- miðlana því Stocks fór í myndatök- una á milli þess að hún var nemi í Florida-háskólanum og að hún varð leikmaður Washington í WNBA- deildinni. „Þetta var ekki spurning um pening heldur bara af því að mig langaði til að gera þetta. Á þessari stundu ákvað ég að slá til og sjá hvort það væri ekki gaman að prófa þetta," sagði Stocks í fyrrnefndu við- tali. Þess má geta að Tamara Stocks er ekki eini leikmaður Iceland Ex- press deildar kvenna í vetur sem hefur setið fyrir hjá Playboy því Lovísa Guðmundsdóttir, leikmaður bikarmeistara ÍS, hefur einnig kom- ið fram á síðum þessa heimsfræga karlablaðs. Lék á Spáni fyrr í vetur Stocks var með 10,4 stig og 5,2 fráköst að meðaltali á sínum fjórum árum með Florida-skólanum og endaði í sjötta sæti yfir flest varin skot í sögu skólans. Stocks fékk ekki mikið að spreyta sig með liðum Washington Mystics og Charlotte Sting í WNBA-deildinni og hefur frá árinu 2002 reynt fyrir sér í Asíu og Evrópu. Stocks spilaði með liði Shangai í kínversku deildinni 2002-03, með PC Mendibil í spænsku deildinni 2003-04 og með FIBA Cup liðinu Gospic frá Króatíu í fyrravet- ur. Stocks lék með Cadí la Seu í spænsku deildinni | íýrri hluta vetrar og var þar með 8,5 stig og 6,2 fráköst að með- altali á 28,6 mínútum í leik en hún hitti úr 38% skota sinna og 69% vítanna. Cadí la Seu er í neðsta sæti deildarinnar og Stocks hætti að spila með lið- inu um áramótin. Fyrsti leikurinn gegn KR Tamara Stocks mun væntanlega spila sinn fyrsta leik með Grindavík gegn KR í DHL-Höllinni 8. mars næstkomandi en viku síðar fær Grindavík ná- granna sína í Keflavík í heimsókn í væntanlegum úr- slitaleik um 2. sætið í deild- inni og þar með heimavallar- rétt í einvígi liðanna í und- anúrslitum úrslitakeppn- innar. ooj@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.