Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 Síðast en ekki síst DV Rétta myndin Hundur undir stýri. DV-mynd Pjetur. Guðjón vaxar á sér bringuna Það er löngu vitað að Össur Skarp- héðinsson er góður penni. Hann fer daglega á kostum á vefsíðu sinni. Áþriðjudaginn brálesendum hans við fyrirsögninni: „Geir Gillzenegger - Hnakki" en þar skrifar össur um Gillzenegger og tengingu hans við sjálfstæðismenn. Hann meðal annars skrifaði þetta um Guðjón Hjörleifsson, alþingis- mann Sjálfstæðisflokksins: „Gillzen- prJBCJ egger er ungur maður og L". fallegur. Hann vaxar á sér bringuna. Gilizenegger er fallega sól- stofubrúnn og með flottar strípur. Hann er semsagt flottur gæi. Alla unga menn dreymir örugglega um að verða einsog hann. Virðuiegir alþingismenn þora ekki að játa slíka drauma - opin- berlega. Guðjón Hjörieifsson, alþingis- maður og hrekkjalómur tír Vest- mannaeyjum, er þó með sm'pur. Ég gruna harm um að vaxa á sér bringuna en er ekki viss um hvort hann lítur á sig sem hnakka." össur skrifar um Geir H. Haarde og orð sem hann lét falfa á fundi síðast- liðna helgi um vamarliðið: „Maður fær ekki alltaf það sem maður vifl. Og þá verður maður að vinna úr því sem að maður þá fær í staðinn. Maður getur ekki alltaf farið með sætustu stelpuna heim af baliinu en stundum kannski eitthvað sem gerir sama gagn." Guðjón Hjör- leifsson Þing- maðurSjálf- stæðismanna vaxarásér bringuna og er með strípur ef grunur Össurs reynist á rökum reistur. össur segir karlana á fundinum hafa hlegið eins og vitskerta flóðhesta og ýjar að því að Sjálf- stæðisflokkurinn ætti1 að fá sálfræðing til að skoða Geir og^ flóðhestana sem hlógu. Össur Fer á kostum á vefsíðu sinni og ýjar að því að sálfræðing- urþurfi að líta á Geir H. Haarde Hvað veist þú um Glltni 1. Hvað heitir stjórnarfor- maður Giitnis? 2. Hvað hét bankastarfsemi Glitnis áður fyrr? 3. Hvaða fyrirtæki samein- * aðist Glitni árið 2000? 4. Hve mörg eru útibú Glitnis á íslandi? 5. Hvað merkir orðið Glitnir? Svör neðst á síðunni Hvað seqir mamma? „Hún hafði iMsnemma gam an afþvíað syngja.það kom í Ijós þeg arhún var mjög lltil, al- veg frá leik- skólaaldri," segirArna Vignisdóttir, móðirLáru Rúnarsdótt- ur söngkonu.„Það má jafn- velsegja að hún hafi verið byrjuð að ■ syngja áður en hún fór að tala. Tónlistin hefur fylgt henni alla tíð. Hún byrjaði snemma I tónlistarskóla. Fór þessa klass- > Isku leið. Byrjaði fyrst á blokkflautu, svoá þlanó.Þannig að hún hefur þennan grunn. Það eru margar perlur á þessum nýja disk hennar. Kann virkilega vel að meta það sem hún er að gera. Ég verð alltafmjög stressuð þegar hún syngur, örugglega stressaðari en hún. Ég treysti henni samt mjög vel. Ég lifi mig samt bara svo mikið inn Iþetta,jafnvelmeira en hún." Arna Vignisdóttir er móðír Láru Ragnarsdóttur söngkonu. Lára hélt tónleika I gær á Stúdentakjallaran- um, ásamt hljómsveit sinni. Eftir nokkrar vikur gefur hún út plötuna « Þögn. Lára var áður spræk körfuknattleikskona, en hefur nú lagt sönginn fyrir sig. sjoppum en ekki bara apótekum. SvörviU spumingum: 'sí. Einar Sveinsson 1 fslandsbanki 3. Fjárfestingarbanki atvinnulífsins 4. 25 5. Höll Forseta úr norrænni goða- fræði Inspector scholæ rænl Strið geysar milli MR og MH „Já, mér var rænt áðan. Nú hefur verið lýst yfir stríði milli Mennta- skólans við Hamrahlíð og Mennta- skólans í Reykjavík," segir Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, in- spector scholae í Menntaskólanum í Reykjavík. Eftir um viku verður haldin úrslitaviðureignin í Morfís, ræðu- keppni menntaskólanna. MH og MR munu þar keppa til sigurs og er farið að hitna verulega í kolunum. Fyrri- partinn í gær fóru nokkrir MH-ingar í bílum niður að MR- Þeir höfðu áður beðið Gunnar inspector um að hitta sig undir því yfirskini að hann ætti að koma fram í myndbandi fyrir Morfís. Þegar hann sýndi sig mætti hann aftur á móti grímuklæddum mönnum, sem hrintu honum inn í sendiferðabíl og bundu hendur hans með plaststrekkjurum. „Þeir voru fimmtán saman á nokkrum bílum og rétt náðu að halda mér. Ég vil annars sem minnst um þetta segja. Finnst þetta frekar leiðinlegt atvik," segir Gunnar, sem náði næstum því að sleppa úr bílnum. Kom ræn- ingjunum á óvart með fimi sinni og þeir rétt náðu að grípa hann þegar hann var kom- inn hálfur út um gluggann. Því næst var keyrt með Gunnar upp í Hamrahlíð þar sem nemendur skólans fylgdust með mann- ræningjunum lesa stríðsyfirlýsingu ýfir höfði hans. Einn þeirra sem varð vitni að atburðinum var Atli Már Steinarsson, meðlimur ræðuliðs MH. „Þetta eru stríðsreglur sem eiga að gilda þar til keppninni lýkur. Hann átti að skrifa undir þær en neitaði fyrst. Fékk penna í hendurn- ar og tókst skyndilega að nota hann til að losa hendurnar úr plaststrekkj- urunum og var næstum því slopp- inn aftur. Hann skrifaði síðan und- ir," segir Atli Már, hæstánægður með að MH-ingar standi upp gegn MR með svo táknrænum hætti. Stríðið er ofbeldis- og skemmd- arverkafrítt. I reglunum kemurmeð- al annars fram að MR skuli vera kall- aður Menntaskólinn í Reykjavík á meðan á stríðinu stendur. MH á hinsvegar að vera kallaður Mennta- skólinn, með greini, nafn sem MR- ingar nota jafnan um skólann sinn. „MH-ingar mættu nú vera aðeins frumlegri," segir Gunnar inspector. „í framhaldi af þessu eru fyrirfram ákveðnar varúðarráðstafanir farnar í gang, hannaðar til að bregðast við svona hlutum. Við munum bregðast við þessum stríðsyfirlýsingum en mér fannst þetta nokkuð slappt hjá þessu barnalega fólki." asgeir@dv.is. Allir fylgdust með þríburameðgöngunni „Ég var að vinna sem prestur á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þegar ég skfrði barnabörnin mín þrjú," segir séra Ólöf Ólafsdóttir, sem stendur þarna á myndinni ásamt barna- börnum sfnum þremur sem fædd- ust þríburar. „Með mér á myndinni eru for- eldrar barnanna í miðið, Stefán Sturla Svavarsson sonur minn og tengdardóttir mín, Inga Ingólfs- dóttir. Sá sem er með okkur er elsti sonur minn, Ólafur Bergmann Svavarsson," segir Ólöf, sem bað son sinn og tengdadóttur um að fá að skíra.bömin á Skjóli. „Það fylgd- ust allir vistmennimir á Skjóli grannt með fréttum af þríburameð- göngunni og þess vegna var þetta ennþá meira spennandi þegar þau vom síðan skírð á Skjóli. Gamla fólkinu þótti svo vænt um að fá að vera viðstatt. Ég bakaði margar marengstertur og sendi á allar hæð- irnar svo allir gætu fengið að smakka á skírnartertu." Börnin vom skírð Ólöf, Sara og Sindri og em 11 ára í dag. „Þau eru yndislega vel heppnuð börn. Athöfnin veitti mér mikla gleði. Mikill fjöldi var viðstaddur í skírn- inni og Ríkissjónvarpið og Stöð tvö komu líka. Þetta var svo sannarlega eftirminnilegt." Lárétt: 1 bás, 4 stefna, 7 fullkominn, 8 valsa, 10 stunda, 12 vön, 13 dansleikur, 14 lélegt, 15 tré, 16 kerra, 18 gráta, 21 kynstur, 22 skapi, 23 fengur. Lóðrétt: 1 kátur, 2 tíndi, 3 slétta, 4 húðsjúkdóm- ur, 5 ummæli, 6 feyskju, 9 kæk, 11 óhrein, 16 vigt, 17 ágæt, 19 eyri, 20 hraði. Lausn á krossgátu |se 0Í 'l!J 61 'Qpb L l '6oa 91 '6nujg>| [ i 'eueAB 6 'ery 9 'qjo 5 'eiuojjeunag f 'ipuapeg £ 'se| z 'jAq l ujajppn ’W íl '!Qa6 ZZ 'iuræpo \z 'b6jo 8 L 'u6ba 9 l '>)ia s l 'ltune f 1 '||eq £ 1 'ujoj z L 'e>ie! 01 'es?J 8 'Js6|e l 'poq f 'j|<?q L Véðrið ém§ f- Bfci.'BÖI B /> ✓ B sa£i Q& * * * * ^ __________ , O 'P * ” i Q UÖ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.