Viðar - 01.01.1937, Blaðsíða 140
138
REYKJANESSKÓLI 1934—1937
[Viðar
Bændanámskeiðið 1936.
Eftir Pál Pálsson, Þúfum.
Hið fyrsta bændanámskeið, sem haldið var á vegum
Reykjanesskólans, var háð um miðjan marzmánuð vet-
urinn 1936.
Búnaðarfélag íslands sendi til fyrirlestrahalds ráðu-
nautana Ragnar Ásgeirsson, Ólaf Sigurðsson frá Hellu-
landi og Gunnar Árnason og Búnaðarsamband Vestfjarða
form. sinn, Kristinn Guðlaugsson frá Núpi. Þá flutti og
skólastjóri, Aðalsteinn Eiríksson, erindi.
Búnaðarnámskeiðið hófst með guðsþjónustu. Sóknar-
presturinn, síra Þorst, Jóhannesson í Vatnsfirði, prédik-
aði.
Ragnar Ásgeirsson talaði um garðrækt og notkun mat-
jurta, Ólafur Sigurðsson um fiskirækt og kynningarferðir
bænda, Gunnar Árnason um búpeningsrækt, og þá eink-
um nautgriparækt.
Kristinn Guðlaugsson ræddi um næringargildi fæðu-
tegundanna, búnaðarhætti o. fl.
Aðalsteinn skólastjóri talaði um starfskrá Reykjanes-
skólans og sveitafræðslu.
Námskeið þetta fór hið bezta fram. Voru fyrirlestrar
fluttir um miðjan daginn, en að þeim loknum hófust
kvöldfundir, þar sem rædd voru ýms mál og tillögur
bornar fram á þeim, og tóku þátt í þeim umræðum ýmsir
námskeiðsgestir, og urðu umræður hinar fjörugustu með
köflum. Var á þeim fundum rætt meðal annars nýbýla-
málið og þegnskaparvinnan, og var í hinu síðasttalda sam-
þykkt tillaga, er lýsti fylgi námskeiðsins við það mál.
Námskeiðið stóð yfir í 3 daga og sóttu það um 100
manns víðsvegar að úr héraðinu. Sá skólinn þeim fyrir
húsnæði og veitingum, eftir því sem með þurfti. Þeir sem
stytzt áttu heim voru heima hjá sér um nætur. Einnig