Árbók VFÍ - 01.01.1992, Blaðsíða 178
4-4
Gunnar Herbertsson
Ammoníakgeymar
1 Inngangur
Vorið 1988 hóf Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns hf. hönnun nýs ammoníakgeymis fyrir
Aburðarverksmiðju ríkisins íGufunesi. Geymirinn vartekinn í notkun snemma árs 1991. Vegna
þeirrar umræðu, sem verið hefur að undanförnu um Áburðarverksmiðjuna og geymslu ammoníaks
þar, er þessari samantekt ætlað að varpa nokkru ljósi á helstu gerðir ammoníakgeyma, en þeim
má skipta í tvo meginflokka. Annars vegar er um að ræða svokallaða kælda geyma („refrigerated
storage“), en það hafa þeirgeymar verið kallaðir, sem geyma ammoníak við mínus 33°C og and-
rúmsloftsþrýsting, en hins vegar er um að ræða þrýstigeyma („pressure storage" og „semipressure
storage“). Mismunandi gerðir kældra geyma hafa þróast en þrýstigeymarhafalítiðbreystígegn-
um árin.
Ammoníak er litlaust gas, nokkru léttara en loft við venjulegt andrúmslofts hitastig og
þrýst-ing. í opnu íláti sýður það við mínus 33,4°C, en frýs við mínus 77,9°C. Það þekkist af
sterkri lykt. Hreint ammoníak myndar sprengifima blöndu í andrúmslofti ef styrkur þess er á
bilinu 16-25% miðað við rúmtak. Ammoníak er eitrað og getur verið banvænt ef styrkur fer
upp fyrir ákveðin mörk.
Ammoníak er geymt í vökvaformi. Hægt er að breyta því í vökva með tvennu móti. Annars
vegar með því að kæla það niður í mínus 33°C, og hins vegar með því að auka þrýsting án þess
að breyta hitastiginu. Ef fyrri aðferðin er notuð er ammoníakið geymt í kældum geymum en f
þrýstigeymum ef seinni aðferðin er valin.
2 Þrýstigeymar
Þessi geymsluaðferð er gjaman notuð þegar um er að ræða lítið magn eða allt að 3.000 tonnum.
Ef magnið er um 100 tonn eða minna eru venjulega notaðir hefðbundnir sívalir þrýstikútar með
Gunnar Herbertsson lauk prófi í vélaverkfræði
frá Háskóla íslands 1982 og MSc prófi í burðar-
þolsfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole í
Kaupmannahöfn 1984.
Verkfræðingur hjá Verk-
fræðistofu Guðmundar
og Kristjáns hf. síðan.
Verkefnisstjóri við bygg-
ingu nýja ammoníak-
geymisins við Áburðar-
verksmiðju ríkisins í
Gufunesi.
kúptum botnum. Ef magnið er á bilinu 500
til 3.000 tonn eru geymarnir kúlulaga,
sambærilegirgamlaammoníakgeyminum í
Gufunesi, sem nú hefur verið tekinn úr not-
kun. Kúlulaga þrýstigeymar eru venjulega
á stálfótum, sem hvíla á steinsteyptri undir-
stöðu, sjá mynd I.
Einnig eru dæmi þess, að sjálf kúlan
sitji á steinsteyptri undirstöðu.
Þrýstingur er mettunarþrýstingur amm-
oníaksins við hita andrúmsloftsins hverju
sinni. Til dæmis er mettunarþrýstingur