blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 10.06.2006, Blaðsíða 2
2 I FRÉTTIR LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2006 blaöið blaöiö= Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700* www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Jónas Garðars- son segir af sér mbl.is | Jónas Garðarsson hefur sagt af sér formennsku í Sjómannafélagi Reykjavíkur. Jónas var sakfelldur fyrr í vik- unni í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp af gáleysi er maður og kona létust. Segir Jónas að þessi ákvörðun sé tekin til að koma í veg fyrir að sín persónulegu mál í kjölfar þess hörmulega slyss, sem varð þann ío. september 2005, trufli hagsmunabaráttu sjómanna. Ævaforn smokkur Sænskir rannsóknarmenn halda.því fram að þeir hafi fundið smokk frá árinu 1640, sem myndi að öllum líkindum vera elsti smokkur sem til er í heiminum. Smokkurinn er óskadd- aður, sem og leiðbeiningar ritaðar á latínu sem fylgja með honum. í leiðbeining- unum má lesa að gott geti verið að dýfa smokknum í heita mjólk áður en hann er notaður. Smokkurinn fannst í Lundi í Svíþjóð og er gerður úr svínagörnum. Smokkurinn verður til sýnis á austurrísku kynlífsfornminjasafni í sumar. Dómari í Baugs- málinu tekur sér frest Dómari í Baugsmálinu mun úrskurða um það næsta mánudag hvort Sigurður Tómas Magnússon, settur rík- issaksóknari í málinu, og Helgi I. Jóns- son, dómstjóri Héraðsdóms Reykja- víkur, muni bera vitni fyrir dómi. Málflutningur í Baugsmálinu fór ffam i Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar og Tryggva Jónssonar kröfðust þess í vikunni að fá að spyrja Sigurð og Helga út í samskipti þeirra áður en endurákærur í Baugsmálinu voru gefnar út. Leikur þeim hugur á að vita hvers vegna Pétur Guðgeirsson, héraðsdómari, var ekki skipaður dómsformaður í þeim hluta Baugs- málsins sem er tilkominn vegna end- urákæru í málinu. Pétur var dómstjóri í Baugsmálinu hinu fyrra þegar hinir ákærðu voru sýknaðar og þekkir þar af leiðandi vel til allra málsgagna. Þá skipaði héraðsdómari í gær tvo sérff æðinga til að meta hvort að þeir tölvupóstar sem lagðir hafa verið ffam í málinu séu ósviknir. Segja frið ríkja innan Framsóknar Miðstjórn Framsóknarflokksins samþykkti í gær einróma að halda flokksþing þriðju vik- una í ágúst. Ekki liggur fyrir hvort Guðni Ágústsson bjóði sig fram til formanns. Harður árekstur í Kópavogi Blaðið/SteinarHugi Harður árekstur varð við gatnamót Smárahvammsvegar og Hlíðarsmára um fjögurleytið í gær. Tveir bílar skullu saman og voru tveir fluttir í kjölfarið á slysadeild til aðhlynningar. Sáttarandi ríkti við upphaf fundar miðstjórnar Framsóknarflokksins sem fram fór á Hótel Sögu í gær. I setningarræðu sinni lýsti Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra og for- maður flokksins, þvi yfir að allur ágreiningur milli hans og Guðna Ágústssonar, varaformanns, væri úr sögunni. Hjálmar Árnason, þing- flokksformaður Framsóknarflokks- ins, segir deilur innan flokksins hafa tekið sinn toll og spillt miklu. Ekki liggur fyrir hvort Guðni Ágústsson hyggst bjóða sig fram til formanns þegar flokksþing Framsóknarflokks- ins verður haldið þriðju vikuna í ágúst. Bera klæði á vopnin Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra og formaður Framsóknarflokks- ins, hvatti flokksmenn sína til að bera klæði á vopnin í setningarræðu sinni við upphaf fundar miðstjórnar flokksins á Hótel Sögu í gær. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa staðið yfir harðvítugar deilur millri ólíkra arma flokksins allt frá því að Halldór lýsti því yfir á föstudaginn í síðustu viku að hann hygðist segja af sér formennsku. í ræðu sinni gær sagðist Halldór bera vissa ábyrgð á hvernig mál þróuð- ust en sagði ennfremur að sátt hefði náðst milli hans og Guðna Ágústs- sonar. „Það eru til erfiðari aðstæður en árásir utan frá og það er misklíð í Blaðlð/Frikkl Guöni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir klöppuðu eftir aö Halldór Ásgrímsson hafði lokið ræðu sinni í gær. okkar eigin röðum. Við höfum ekki alltaf borið gæfi til að vera samstíga, til að standa saman þegar á móti blæs [...] Sú ókyrrð sem einkennt hefur umræðuna í flokknum undanfarið er að sjálfsögðu ekki góð og skapar vandamál í okkar röðum. Ég ber auð- vitað einhverja ábyrgð á slíku sem for- maður flokksins.“ Fyrir miðstjórnarfundinum í gær lá aðeins fyrir að taka ákvörðun um hvenær halda skyldi flokksþing til að kjósa nýja forystusveit. Var ein- róma samþykkt að það þing skyldi haldið þriðju vikuna í ágúst og er það samkvæmt samkomulagi milli Halldórs og Guðna sem kynnt var á fimmtudagskvöldið. Guðni hafði áður lýst því yfir að hann teldi eðlilegra að þingið yrði haldið eins fljótt og auðið er. Ekki liggur fyrir hvort Guðni muni bjóða sig fram til formanns á flokksþinginu í ágúst en á þinginu í gær sagðist hann meta sína stöðu þegar nær drægi. Eitt framboð leit þó dagsins ljós í gær þegar Haukur Logi Karlsson, lög- fræðinemi og fyrrverandi formaður Sambands ungra Framsóknarmanna, lýsti því yfir hann hygðist sækjast eftir embætti ritara flokksins en því starfi gegnir nú Siv Friðleifsdóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra. Tekið sinn toll Hjálmar Árnason, þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins, fagnar þeirri sátt sem nú hefur náðst innan flokksins. Hann segir þær deilur sem staðið hafa yfir hafa tekið sinn toll. „Menn hafa lært af þeirri misklíð sem hefur verið að undanförnu. Það hefur tekið sinn toll og spillt miklu. Núna eru menn staðráðnir í því að snúa bökum saman.“ Þá sagðist Hjálmar ekki kannast við það að stjórnarslitum hefði verið hótað næðist ekki sátt milli hans og Guðna eins og fram kom í Blaðinu í gær. „Þegar svona misklíð eru í gangi þá verða til svo margar getgátur og sögusagnir sem ýta undir hugmynda- flugið. Þess vegna er gott að sættir hafa orðið.“ Jónína Bjartmarz, þingmaður, kveðst einnig ánægð með þá sátt sem hafi náðst innan flokksins. Hún segir að lítill stuðningur hafi verið innan flokksins fyrir því að halda flokks- þing fyrr. „Þegar fólk fór að tala saman kom í ljós að tillaga þess efnis að halda flokksþing um mitt sumar hafði frekar lítinn stuðning innan flokksins.“ 0 Heföskfrt —. léttikýjaö.->«Jk. Skýjaö Alskýjaö^* Rigning,lltllsháttai^^RlgninB-É^>Súld Snjúkoma^)» siydda^i Cnjötl^?- Algarve Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Dublin Frankfurt Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal NewYork Orlando Osló Paris Stokkhólmur Vín Þórshöfn 22 25 22 20 11 22 25 22 22 17 19 26 25 26 11 14 25 25 26 17 17 11 Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstof u (slands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.