Bændablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 08.07.2008, Blaðsíða 1
20-21 32 íslenskir bændur opna dyr sínar almenningi 24 Yfirlit yfir hátíðir hins íslenska sumars 13. tölublað 2008  Þriðjudagur 8. júlí  Blað nr. 286  Upplag 17.000 16 Býflugnarækt er flókin búgrein, nú á Austurlandi Afar misjafnt útlit er með hey- skap á Norður- og Austurlandi. Ingvar Björnsson hjá Búgarði á Akureyri sagði í samtali við Bændablaðið að sprettan í Eyja- firði væri góð en misgóð austur um. Sprettan væri þokkaleg í Reykjadal og Þingeyjarsveit. Það hefði verið ágæt sprettutíð í vor, bæði í Skagafirði og Eyjafirði, þar væri fyrra slætti almennt lokið og útlit fyrir að bændur gætu slegið þrisvar í sumar. Nú væri byrjað að rigna á Norðurlandi og væri það vel því tún hefðu verið orðin mjög þurr víða og hægt hefði á sprettunni, en nú tæki hún við sér enda spáð hlýn- andi um helgina (5. og 6. júlí) og þeir sem ekki hefðu þegar byrjað slátt myndu fara á fulla ferð. Ekki byrjað að slá Sigurður Þór Guðmundsson, ráðu- nautur á norðausturhorni landsins, sagði að á sínu svæði væri heyskap- ur ekki hafinn. Það væri ekki venjan á þessu svæði að hefja slátt fyrr en í byrjun júlí og svo bættist nú við að spretta væri ekki meira en sæmileg. Sigurður sagði að á Norð-Austurlandi hefði verið rigning og kuldi í viku til 10 daga, en veðurspáin væri nú þann- ig að menn færu að hefja slátt. Hætta á að tún spretti úr sér Rúnar Ingi Hjartarson hjá Búnað- arsambandi Austurlands sagði að nokkrir bændur væru byrjaðir að slá en fæstir komnir langt. Nokkrir kúabændur hefðu náð upp nokkru af heyi fyrir viku til 10 dögum. Hjá þeim sem ekki heyjuðu væri útlit- ið tvísýnt því nú væri óþurrkur og spáin þannig fram að helgi (5. og 6. júlí) og hætta væri á að grasið sprytti úr sér. Rúnar sagði tíðarfarið hafa verið nokkuð sérkennilegt í ár. Það hefði aldrei komið neitt vor á Austurlandi en sumarið svo brostið á með krafti og grasspretta verið góð. En svo hefði komið óþurrkatíð og kuldi og sagði Rúnar að í raun vantaði bara hita á Austurlandi því það hefði rignt mun meira þar en menn ættu að venjast. Nú vantaði bara að það kæmi þurrkur og hiti, annars væri hætta á lélegu, úr sér sprottnu grasi. S.dór Sjá um þroska túngrasa á bls. 10 Misjafnt útlit með heyskap á Norður- og Austurlandi Bændablaðið í sumarfrí Þetta tölublað er síðasta blað fyrir sumarfrí Bændablaðs- ins. Næst mun blaðið birtast lesendum sínum laugardag- inn 23. ágúst á Landbúnað- arsýningunni á Gaddstaða- flötum. Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða einnig lokaðar vegna sumarfría dagana 21. júlí til 1. ágúst. Bændablaðið óskar lesend- um sínum ánægjulegs sumars. Dilkakjötsframleiðsla Útflutnings- skyldan 28% Hlutfallið óbreytt allt tímabilið Á fundi Markaðsráðs kinda- kjöts þann 3. júlí sl. var samþykkt að leggja til við stjórn Bændasamtakanna og sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra að útflutnings- skylda á dilkakjöti verði 28% í komandi sláturtíð. Tillagan gerir ráð fyrir því að sama hlutfall gildi allt tímabilið en verði ekki breytilegt eins og verið hefur undanfarin ár. Þetta er síðasta árið sem útflutningsskylda verður á dilkakjöti en samkvæmt gild- andi búvörulögum fellur hún niður 1. júní 2009. Þetta gildir bara um dilkakjöt, en kjöt af fullorðnu er ekki háð útflutn- ingsskyldu. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og stjórn Bændasamtakanna þurfa að staðfesta tillöguna til þess að hún öðlist gildi. Í september sl. ákvað Mark- aðsráð sumarálagsgreiðslur 2008. Þær verða eftirfarandi: Í vikum 23-32 verða greiddar kr. 1.100 á dilk, Í viku 33 kr. 800, í viku 34 kr. 500 og í viku 35 kr. 200. Greiðslur falla niður í viku 36. Landsmót hestamanna stóð yfir á Gaddstaðaflötum við Hellu alla síðustu viku. Hvassviðri lék mótshaldara grátt til að byrja með, en svo rættist úr veðrinu og mótið var allt hið glæsilegasta. Á myndinni er Rakel Nathalie Kristinsdóttir, einn af ungum afreksknöpum sem tóku þátt í glæsilegri hópreið 500 hrossa við setningu mótsins. Hesturinn heitir Leiknir frá Skarði. Bændablaðsmynd: Hulda G. Geirsdóttir – Sjá myndaopnu frá Landsmótinu inni í blaðinu á blaðsíðum 12-13 Garðyrkjubændur: Hafna ósk BÍ um notk- un á fánaröndinni Unnið hefur verið að því að koma á samræmdri upprunamerkingu á íslenskum búvörum. Á vegum Bændasamtakanna, í samráði við búgreinar, hefur verið stefnt að því að gera fánarönd Sambands garðyrkjubænda og vörumerki sambandsins að merki fyrir íslenskar landbúnaðarafurð- ir. Formlegt erindi var sent frá Bændasamtökunum til garð- yrkjubænda þar sem leitað var eftir samvinnu um notkun fána- randarinnar. Stjórn Sambands garðyrkjubænda hafnaði hins vegar ósk Bændasamtakanna og í svari þeirra segir að slíkt fyrirkomulag tryggi betur hags- muni garðyrkjubænda. Þórhallur Bjarnason, formað- ur Sambands garðyrkjubænda, segir að meginástæðan fyrir ákvörðun SG um að hafna ósk Bændasamtakanna sé ótti við mis- notkun á fánaröndinni. „Við höfum lagt mikla vinnu og fjármagn í að byggja upp vörumerkið og erum ekki tilbúnir að taka þá áhættu að útvíkka skírskotun þess. Því er ekki heldur að leyna að innan land- búnaðargeirans eru fyrirtæki sem garðyrkjubændur hafa barist við í gegnum tíðina, fyrirtæki sem hafa gefið til kynna að um íslenskar vörur væri að ræða þegar þær eru í raun erlendar,“ segir Þórhallur og á þar m.a. við sölu á erlendu græn- meti sem skolað er upp úr íslensku vatni eða merkt með íslensku letri á umbúðum. Sigurður Eyþórsson, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, hefur stýrt und- irbúningsvinnu Bændasamtakanna vegna samræmdra vörumerkinga á íslenskum landbúnaðarvörum. Hann sagði í samtali við blaðið að vissulega sé leitt að afstaða garð- yrkjubænda væri á þessa leið. „Ég tel að það hefði verið farsælast fyrir landbúnaðinn í heild sinni að sammælast um eitt merki. Nú þurf- um við að leita nýrra leiða en það er ljóst að þessi niðurstaða tefur framgang málsins.“ Megintilgangur samræmdra merkinga er að tryggja neytendum upplýsingar um íslenskan uppruna landbúnaðarvara. TB Líf og fjör á Landsmóti hestamanna á Gaddstaðaflötum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.