Fréttablaðið - 02.04.2012, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 02.04.2012, Blaðsíða 56
2. apríl 2012 MÁNUDAGUR32 sport@frettabladid.is ÞÓR ÞORLÁKSHÖFN OG STJARNAN geta í kvöld tryggt sér sæti í undanúrslitum úrslita- keppni Iceland Express-deildar karla. Þór sækir þá Snæfell heim í Hólminn á sama tíma og Stjarnan spilar í Keflavík. Þór og Stjarnan unnu fyrstu leiki sína í rimmunum en tvo sigra þarf til að komast áfram. IE-deild karla: Njarðvík-Grindavík 76-87 Njarðvík: Cameron Echols 19/8 fráköst, Travis Holmes 18/7 stoðsendingar, Elvar Már Friðriksson 17/8 fráköst/5 stoðsendingar, Páll Kristinsson 10/5 fráköst, Maciej Stanislav Baginski 9, Ólafur Helgi Jónsson 3. Grindavík: Þorleifur Ólafsson 17, Giordan Watson 17/5 fráköst/9 stoðsendingar, J’Nathan Bullock 13/7 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 13/4 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 11, Sigurður Gunnar Þor- steinsson 10/10 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 2, Ólafur Ólafsson 2, Ryan Pettinella 2/4 fráköst Tindastóll-KR 81-89 Tindastóll: Curtis Allen 25/5 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 15/5 fráköst, Friðrik Hreinsson 10, Þröstur Leó Jóhannsson 8, Igor Tratnik 8/6 fráköst, Svavar Atli Birgisson 7/4 fráköst, Maurice Miller 6, Hreinn Gunnar Birgisson 2,. KR: Dejan Sencanski 27/4 fráköst, Joshua Brown 18/9 fráköst/7 stoðsendingar, Finnur Atli Magnusson 14/5 fráköst, Robert Lavon Ferguson 10/5 fráköst, Martin Hermannsson 8, Hreggviður Magnússon 7, Skarphéðinn Freyr Ingason 3, Jón Orri Kristjánsson 2. IE-deild kvenna: Snæfell-Njarðvík 78-79 Snæfell: Jordan Lee Murphree 22/13 fráköst, Hildur Björg Kjartansdóttir 22, Kieraah Marlow 16, Alda Leif Jónsdóttir 9, Berglind Gunnarsdóttir 5, Hildur Sigurðardóttir 4/7 fráköst. Njarðvík: Lele Hardy 27/23 fráköst, Shanae Baker-Brice 27/6 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 19/5 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 4, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 2/4 fráköst/6 stoðsendingar. N1-deild kvenna: FH-HK 22-21 Mörk FH: Kristrún Steinþórsdóttir 8, Ingibjörg Pálmadóttir 5, Aníta Mjöll Ægisdóttir 2, Birna Íris Helgadóttir 2, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 2, Margrét Ósk Aronsdóttir 2, Indíana Nanna Jóhannsdóttir 1. Mörk HK: Elín Anna Sveinsdóttir 8, Emma Havin Sardarsdóttir 3, Heiðrún Björk Helgadóttir 3, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 2, Arna Björk Almarsdóttir 2, Guðrún Erla Bjarnadóttir 1, Gerður Arinbjarnar 1, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 1. KA/Þór-Valur 22-30 Mörk KA/Þórs: Martha Hermannsdóttir 7, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Kolbrún Einarsdóttir 3, Ásdís Sigurðardóttir 2, Hulda Tryggvadóttir 2, Erla Tryggvadóttir 2, Arna Valgerður Erlingsdóttir 1. Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 6, Dagný Skúladóttir 5, Karólína Lárusdóttir 4, Anna Úrsula Guðmundsdóttir 4, Þorgerður Anna Atladóttir 3, Rebekka Rut Skúladóttir 2, Kristín Guðmunds- dóttir 2, Hildur Andrésdóttir 1, Nataly Valencia 1, Þórunn Friðriksdóttir 1, Ragnhildur Rósa Guð- mundsdóttir 1. Haukar-ÍBV 21-24 Mörk Hauka: Marija Gedroit 7, Agnes Ósk Egils- dóttir 4, Karen Helga Sigurjónsdóttir 2, Ásta Björk Agnarsdóttir 2, Viktoría Valdimarsdóttir 2, Ásthildur Friðgeirsdóttir 2, Gunnhildur Péturs- dóttir 1, Erla Eiríksdóttir 1. Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 9, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 3, Ivana Mladenovic 3, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Grigore Ggorgata 3, Hildur Dögg Jónsdóttir 1, Aníta Elíasdóttir 1, Sandra Gísladóttir 1. Stjarnan-Grótta 31-27 Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 13, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 3, Þórhildur Gunn- arsdóttir 3, Rut Steinsen 2, Hildur Harðardóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 2, Arna Dýrfjörð 2, Helena Örvarsdóttir 1. Mörk Gróttu: Sunna María Einarsdóttir 13, Eva Björk Davíðsdóttir 5, Laufey Ásta Guðmunds- dóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 3, Björg Fenger 2, Elín Helga Jónsdóttir 1. LOKASTAÐAN: Valur 16 15 0 1 496-335 30 Fram 16 14 0 2 448-331 28 ÍBV 16 11 0 5 423-377 22 Stjarnan 16 9 0 7 454-433 18 HK 16 8 0 8 441-432 16 Grótta 16 4 2 10 373-440 10 KA/Þór 16 4 1 11 359-424 9 Haukar 16 3 0 13 400-494 6 FH 16 2 1 13 333-461 5 ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Það verða Njarðvík og Haukar sem leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í kvenna- flokki í ár. Haukastúlkur voru þegar búnar að tryggja sér sæti í úr- slitunum og Njarðvík tók hitt sætið um helgina er liðið vann eins stigs sigur á Snæfelli í dramatískum leik. Njarðvík vann þar með einvígi liðanna, 3-1. - hbg Iceland Express-deild kvenna: Njarðvík og Haukar í úrslit FRJÁLSAR Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson varð um helgina þriðji frjálsíþrótta- maðurinn sem tryggir sig inn á Ólympíuleikana í London í sumar. Áður höfðu spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir og maraþon- hlauparinn Kári Steinn Karlsson tryggt sig inn á leikana. Óðinn kastaði þá 20,22 metra á innanhúsmóti í Kaplakrika. Ólympíulágmarkið er 20 metrar. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem Óðinn kastar yfir 20 metra á sínum ferli. Hann átti best fyrir helgina 19,84 metra. - hbg Fjölgar í ÓL-hópnum: Óðinn á leið til London ÓÐINN BJÖRN Náði draumakastinu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HANDBOLTI Deildarkeppni N1- deildar kvenna lauk um helgina og Valskonur tryggðu sér deildar- meistaratitilinn með öruggum sigri á Þór/KA. Grótta tók lokasætið í úrslita- keppninni þó svo liðið hafi tapað. Þar sem Þór/KA tapaði héldu Gróttustúlkur sjötta sætinu. Tvö efstu lið deildarinnar – Valur og Fram – sitja hjá í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en þá mætast ÍBV og Grótta annars vegar og Stjarnan og HK hins vegar. Úrslitakeppnin hefst þann 12. apríl næstkomandi. - hbg N1-deild kvenna: Valskonur unnu deildina BIKAR Á LOFT Valskonur eru duglegar að lyfta bikurum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SUND Anton Sveinn McKee stóð sig afar vel á spænska meistara- mótinu í sundi sem fram fór um helgina á Málaga. Anton tvíbætti Íslands- met sitt í 400 metra fjórsundi sama daginn, fyrst um tæpar 4 sekúndur og svo um 27 hundraðs- hluta úr sekúndu. Metið er því 4:26,37 mínútur. Þessi tími dugði Antoni í fjórða sætið á mótinu. - hbg Anton Sveinn McKee: Heitur í Málaga BADMINTON Ragna Ingólfs dóttir skráði nafn sitt gylltu letri í bad- mintonsögunni í gær þegar hún vann sinn níunda meistara titil í einliðaleik. Það hefur engri annarri konu tekist að afreka á Íslandi. R ag na lagði Snjólaug u Jóhannsdóttur mjög sann færandi í tveimur lotum í úrslitaleiknum í gær. Loturnar vann hún 21-9 og 21-3. Snjólaug var að keppa til úrslita í fyrsta skipti og hafði ekkert að gera í badminton- drottningu Íslands. Kári Gunnarsson lagði Magnús Inga Helgason af velli í einliða- leik karla. Kári þurfti, rétt eins og Ragna, aðeins tvær lotur til þess. Kári hafði gríðarlega yfirburði í fyrstu lotunni sem hann vann, 21-7. Magnús Ingi byrjaði aðra lotuna af krafti og komst í 9-3. Kári hóf þá endurkomu sína sem endaði með 21-19 sigri og Íslands- meistaratitillinn þar með hans. Magnús Ingi hafði þó betur í tvíliðaleiknum gegn Kára. Þar unnu Magnús Ingi og Helgi Jóhannesson þá Kára og Atla Jóhannesson í þrem lotum. Ragna varð einnig meistari í tví- liðaleik með Katrínu Atlad óttur. Þær lögðu Tinnu Helgad óttur og Erlu Björgu Hafsteinsdóttur. Tinna meiddist í annarri lotu og því þurftu þær Erla að gefa leikinn. Tinna átti einnig að keppa til úrslita í tvenndar- leiknum með Magnúsi Helga, sem er bróðir hennar, en þau urðu að gefa leikinn vegna meiðslanna. Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir fögnuðu því sigri í tvenndarleiknum. - hbg Ragna Ingólfsdóttir setti met og Kári Gunnarsson vann sinn fyrsta titil: Níu meistaratitlar í húsi hjá Rögnu DROTTNINGIN Ragna er badminton- drottning Íslands og hefur stimplað nafn sitt rækilega í sögubækurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KÖRFUBOLTI Grindavík tryggði sæti sitt í undanúrslitum Iceland- Express deildar karla í körfu- bolta þegar liðið vann Njarðvík, 87-76, í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum. Jafnræði var á með liðunum fyrstu þrjá leikhlutana en í þeim fjórða stungu Grind- víkingar af. Grindvíkingar voru sterkari til að byrja með og náðu fljótlega góðu forskoti 14-9. Njarð víkingar voru alls ekki á því að gefast upp og komust aftur inn í leikinn. Staðan var 25-24 eftir fyrsta leik- hlutann. Bæði liðin fundu taktinn vel öðrum leikhluta og voru að spila vel. Það var mikill hiti í leiknum í fyrri hálfleik og einu sinni þurfti að stía mönnum í sundur eftir að slagsmál brutust út. Jafnt var á öllum tölum út hálf- leikinn og var staðan 45-43 fyrir Grindavík þegar menn gengu til búningsherbergja. J‘Nathan Bullock, leikmaður Grindavíkur, datt heldur betur í gang í síðari hálfleiknum og fór á kostum í upphafi hálfleiksins. Þegar þriðja leikhlutanum var lokið var staðan 61-61 og Njarðvík- ingar jafnir deildar meisturunum. Elvar Friðriksson, leikstjórnandi Njarðvíkur, var frábær í gær og stjórnaði leiknum eins og hann hefði verið í meistaraflokki í mörg ár. Það var eins og heimamenn væru orðnir bensínlausir í fjórða leikhlutanum og voru Grindvík- ingar hreinlega bara of sterkir. Breiddin hjá Grindavík er gríðar- leg og álagið dreifist svakalega á milli manna. Lokamínúturnar voru Grindvík- inga sem unnu sanngjarnan sigur. „Ég er bara rosalega sáttur,“ sagði Helgi Jónas Guðfinns- son, þjálfari Grindavíkur, eftir sigurinn í gær. „Ég vissi að þessi leikur yrði gríðarlega erfiður sem var síðan raunin en við sýndum góðan karakter í lokin og kláruðum dæmið. Mér fannst við oft á tíðum heldur værukærir í leiknum og það átti ekkert að koma okkur á óvart að þeir kæmu dýrvitlausir til leiks. Við náðum smá forskoti í byrjun leiksins en slökuðum síðan allt of mikið á. Þetta hefur verið ákveðið vandamál hjá okkur í vetur og við verðum að lagfæra það fyrir næsta einvígi. Við erum með flotta breidd og það er erfitt að halda út gegn okkur í 40 mínútur, menn verða þreyttir á meðan við höldum áfram af fullum krafti. Ég vildi alls ekki fara í oddaleik því þar getur allt gerst,“ sagði Helgi. „Mér fannst við spila virkilega góðan körfubolta í 35 mínútur í kvöld,“ sagði Einar Jóhannsson, annar þjálfari Njarðvíkur, eftir leikinn í gær. „Það vantaði ofboðslega lítið upp á hjá okkur í kvöld. Grindavík er bara með virkilega breiðan hóp og rosaleg gæði í nánast öllum leik- mönnum liðsins. Við erum með fullt af flottum strákum hér í Njarðvík sem hafa öðlast mikil- væga reynslu í vetur, það mun skila sér. Það verður gaman að sjá hvernig þessir strákar koma til leiks á næsta tímabili. Grindavík er ein- faldlega með besta liðið á landinu í dag og ég held að þeir fari alla leið í ár.“ KR vann svo sannfærandi sigur á Króknum. Var alltaf skrefi á undan og sigurinn aldrei í hættu. - sáp Grindavík og KR sópuðu Húnum og Stólum í frí Deildarmeistarar Grindavíkur lögðu Njarðvík öðru sinni í hörkuleik í Ljóna- gryfjunni í Njarðvík og eru þar með komnir í undanúrslit Iceland Express- deildar karla. KR fór í Síkið á Sauðárkróki og sópaði Stólunum í frí. KOMDU MEÐ SÓPINN Páll Axel og félagar eru komnir í undanúrslit eftir tvo sigra á nágrönnum sínum frá Njarðvík. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.