Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 29.06.2012, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 29. júní 2012 27 KÖRFUBOLTI Kvennalið Grindavík- ur sem leikur á ný í efstu deild kvenna í haust safnar nú liði fyrir átökin. Tvíburasysturnar Harpa Rakel og Helga Rut Hall- grímsdætur eru komnar heim eftir ársdvöl hjá Njarðvík annars vegar og Keflavík hins vegar. „Þetta var mjög auðveld ákvörðun. Ég er svo mikill Grind- víkingur að ég verð að vera í Grindavík. Ég var búin að sjá það,“ sagði Helga Rut í samtali við Fréttablaðið í gær. Grindavík missti flesta liðs- menn sína fyrir síðustu leiktíð er ljóst var að liðið myndi ekki tefla fram liði í efstu deild. Kornungt lið félagsins vann sigur í næst- efstu deild og tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu á ný. Jóhann Þór Ólafsson, þjálf- ari liðsins, staðfesti að liðið hefði rætt við landsliðskonurn- ar Petrúnellu Skúladóttur og Ólöfu Helgu Pálsdóttur um að snúa aftur til Grindavíkur. Þær stöllur urðu, líkt og Harpa Rakel, Íslands- og bikarmeistarar með Njarðvík á síðustu leiktíð. - ktd Grindvískar körfuboltakonur: Á leiðinni heim ÓVISS Petrúnella Skúladóttir er samn- ingslaus og veltir framtíðinni fyrir sér. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FRJÁLSAR Einar Daði Lárusson, tugþrautarkappi úr ÍR, hafnaði í 13. sæti á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum en keppni í tugþraut lauk í gær. Einar Daði hlaut 7.653 stig sem er hans næst- besti árangur og 245 stigum frá hans bestu þraut í Kladnó fyrir tæpum þremur vikum. „Það er rosalega gaman að keppa á velli með svona mörgum áhorfendum. Það er aldrei svona heima. Fjölskyldan og aðstand- endur mæta en það eru svo fáir að fylgjast með þessu heima. Hérna var alveg pakkað,“ segir Einar Daði sem var afar ánægður með þrautina. „Ég vildi fara í þessa þraut, fljóta í gegnum hana og klára. Upplifa stórmót og ná góðri niðurstöðu. Mér fannst þetta ganga mjög vel og mér líður rosalega vel,“ sagði Einar Daði að keppni lokinni. - ktd Einar Daði í 13. sæti: Flott frumraun HVÍLD FRAM UNDAN Einar Daði ætlar að gefa líkamanum kærkomið frí frá þraut á næstunni. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Ítalir tryggðu sér sæti í úrslitaleik Evrópumótsins í knatt- spyrnu þegar liðið lagði Þjóðverja 2-1 í undanúrslitaleiknum í Varsjá í gærkvöldi. Skrautfuglinn Mario Balotelli var hetja Ítala en fram- herjinn magnaði skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik sem gerðu svo gott sem út um leikinn. Mark Mesut Özil úr vítaspyrnu í viðbótartíma kom of seint og Ítalir fögnuðu. Bestu menn vallarins voru auk Balotelli miðjumaðurinn Andrea Pirlo og markvörðurinn Gianluigi Buffon sem voru einnig í liði Ítala sem varð óvænt heimsmeistari árið 2006. Martröð Þjóðverja gegn Ítöl- um á knattspyrnuvellinum heldur áfram en Þjóðverjar hafa enn ekki lagt Ítala að velli í stórmóti. Þetta var um leið fyrsta tap Þjóðverja í 16 leikjum en liðið vann alla leiki sína í undankeppninni og hafði eitt liða lagt alla andstæðinga sína að velli í lokakeppninni í Póllandi og Úkraínu. Spánverjar og Ítalir mætast því í úrslitaleik keppninnar í Kænu- garði á sunnudaginn. - ktd Ítalir lögðu Þjóðverja í undanúrslitum EM í Varsjá: Balotelli hetja Ítala ÚR AÐ OFAN Mario Balotelli hugsaði sig ekki tvisvar um áður en hann reif sig úr eftir að hafa komið Ítölum í 2-0. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.