Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Blaðsíða 1

Hvalfjarðargangan - 21.06.1962, Blaðsíða 1
Reykvíkingar! Mðtmælum kaf- bátastöð og atomvopnum á islandi! Fjölmennum í Hvalfjarðargönguna! Um þrjúleytið á laugardag hefst tveggja daga mótmæla- ganga úr Hvalfirði til Reykjavíkur. Vegalengdin er rúmir 60 km og verður gengið á Kjalarnes fyrri daginn og gist þar í tjöldum. Um hádegi á sunnudag hefst gangan til Reykja- víkur, 30 km leið. Notum þetta tækifæri og mótmælum öll, að kjarnorkukafbátastöð verði reist í Hvalfirði! Förum þúsundum saman til móts við göngumenn og fylgjum þeim inn í bæinn á fundarstað! Göngumenn munu leggja upp frá Hvítanesi i Hvalfirði eftir stuttan fund þar. I seinustu heimsstyrjöld var Hvalfjörður mikið notaður af Bandamönnum og flestar skipalestir á leið yfir norðanvert Atlantshaf komu þá við í Hvítanesi. Þar reis upp út- lendur bær á skömmum tíma en íslenzkir ábúendur hröktust á brott. Nú er Hvítanes í eyði og byggingar allar komnar í rúst. Enn á ný beinast augu manna að Hvalfirði og Hvítanesi. Banda- rikjamenn girnast hinn djúpa, þrönga fjörð og vilja koma þar upp bækistöð fyrir kjarnorkukaf- báta. 1 mörg ár hefur að þessu verið stefnt: Bandaríski flotinn hefur tekið við Keflavíkurflugvelli af land- liernum og lóransstöð' verið byggð á Snæfeilsnesi í þeim yfirlýsta tilgangi að auðvelda kafbátum miðanir. Hernum hefur verið leyft að mæla upp og kortieggja allan Faxaflóa. Rætt er um auknar „varnir“ í stjórnarblöðunum, jafn- vei eldflaugar og vetnisvopn á fslandi. Og loks má nefna, að í frumvarpi rikisstjórnarinnar í vetur um almannavarnir var rætt um FLOTASXÖÐ í Hvalfirði og svæðið umhverfis Hvaifjörð talið væntanlegt hættusvæði. Þessi maraþonganga, kröfu- ganga hernámsandstæðinga úr Hvalfirði, er farin til að benda á þá hættu, sem stafar af dvöl hins erlenda hers í landinu, en þó sér- staklega til að vekja athygli á fyrirætlunum Bandaríkjamanna i Hvalfirði. Sá hópur Islendinga, sem hefja mun gönguna á laug- ardag, leggur það eríiði á sig að ganga 60 km í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka undir kröfuna um vopnlaust og friðlýst land. Notum þetta tœkifœri: Komum til móts við göngumenn og sýnum þannig vilja okkur að standa sameinuð gegn hvers kon- ar erlendri ásœlni. Styðjið gönguna með fjárframlögum! Mótmælagangan úr Hval- firði er samstillt átak fjöld- ans, sameiginleg viljayfirlýs- ing um hagsmunamál okkar allra. Framkvæmd göngunnar kostar mikið starf og enn meira f jármagn, — kostnaður- inn nemur tugum þúsunda króna. Andstæðingar herset- unnar hafa til engra að leita nema sjálfra sín um stuðning og því verður hver og einn sem telur þessi mál nokkru skipta að leggja eitthvað af mörkum. Á miðvikudag er blaðið fór i prentun hafði safnazt i pen- ingum og peningaloforðum, sem nemur um þriðjung kostn- aðar. Enn vantar þó mikið, enda er t. d. útgáfa þessa blaðs mjög kostnaðarsöm. Seld verða merki i göngunni og al- menn fjársöfnun verður í lok útifundarins. Fjárframlögum er veitt móttaka í skrifstofu hernámsandstæðinga Mjó- stræti 3, símar 23647 og 24701. Einnig er mikils virði að fá loforð um framlög, enda þótt greiðsla fari ekki fram fyrr en um næstu mánaðamót. Minnumst þess: Margt smátt gerir eitt stórt! Leggjum öll nokkuð að mörkum! LAN LKiiI i.' 'a A b A!' li 245S00 ÍSLANDS

x

Hvalfjarðargangan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hvalfjarðargangan
https://timarit.is/publication/961

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.