Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 24

Dagfari - 01.12.1961, Blaðsíða 24
Fullveldisdagurinn misnotaður ár eftir ár! DAGFARI 1. tbl 1. desember 1961 1 . árg 1 dag, fyrsta desember, á afmæli fulivetdisins, er Bjarni Bene- diktsson, ráðherra, aðalræðumaður dag'sins og talar um „vestræna samvinnu.“ Þessi tvö nefndu orð hafa svo sem kunnugt er hlotið nýja merkingu eftir taumlausa misnotkun og tákna nú á máli NATO- manna: áframhaldandi hernám lslands. Þennan hátíðadag íslenzku þjóðarinnar á enn einu sinni að misnota með því að þekktur stjórn- málaforingi heldur áróðursræðu í þágu síns flokks. DAftFABI hefur leitað álits nokkurra stúdenta á vestrænni samvinnu, hernámsmálunum og þeim áróðursbrögðum, sem nú eru viðhöfð. Haraldur Henrysson: Við spurðum Harald Henrys- son, stud. jur., hvernig á því stæði, að stúdentar hefðu sam- þykkt slíka ráðstöfun á degin- um. - Það er tæplega hægt að segja, að þetta hafi verið sam- þykkt af stúdentum. Þessu var í rauninni laumað í gegn án þess, að mikill meirihluti stúd- enta hefði hugmynd um. Þetta var auðsjáanlega löngu ákveðið og undirbúið. Fundurinn var haldinn óvenju snemma, örfáum dögum eftir að kennsla hófst og var hann auglýstur á hinn fyrirferðaminnsta hátt með ?ja daga fyrirvara. Ég sótti t.d. kennslu þessa daga, en hafði ekki hugmynd um fundinn fyrr en mér var sagt af honum nokkr- um tímum áður en hann hófst, og var það vegna smalamennsku Vöku. Enda var varla mætt annað á honum en einlitt lið, sem smalað hafði verið þangað. Ég tel því hæpið að túlka ákvörðun þessa fundar sem vilja meirihluta stúdenta og leyfi mér reyndar að álita, að val aðalræðumannsins sé í al- gerri óþökk meirihluta stúdenta. Jakob Ármannsson: — Hvað segirðu um dagskrá stúdenta við. 1. desember hátíða- höldin? — Ég tel það óhæfu, að þekkt- ir stjórnmálaleiðtogar haldi ræð- ur 1. desember, sjálíum sér og flokki sínum til framdráttar. Eft- ir að pólitískar listakosningar til stúdentaráðs voru afnumdar er málefnum stúdenta í raun og veru stjómað á einkafundum Vöku. Mér er til dæmis kunnugt um, að snemma í haust var þegar búið að ákveða að leyfa Bjama Ben að halda aðalræðuna 1. des. — löngu áður en stúdentafundur var haldinn og dagskrárnefnd kjörin. — Hvað segirðu annars um herstöðvamálið ? — Ég er ekki sérlega pólitískur maður, en auðvitað er ég eindreg- inn andstæðingur hersetunnar. Jónatan Þórmundsson: — Að mínu áliti er mikill mun- ur á því hvort aðalræðan 1. desember fjallar um stjórnmál eða er flutt af þekktum stjóm- málamanni. Það er auðvitað erf- itt að koma í veg fyrir að rætt sé um stjórnmál, en ég tel það mjög óeðlilegt og óheppilegt að umdeildir stjómmálamenn hafi framsögu um það efni sem valið hefur verið. — Hvað segirðu um herstöðva- málið? — Ég var nú lengi þeirrar skoð- unar, að herliðið ætti að vera hér, en við tilkomu hinna nýju vopna, eldflauga og vetnis- sprengja hafa viðhorfin breytzt. Ég tel því enga vernd í hemum eins og nú er komið. En ég vil gera skýran greinar- mun á hersetunni og aðild okkar að NATO. Fyrri samningurinn er uppsegjanlegur með IV2 árs fyrir- vara en samningurinn um At- lantshafsbandalagið er gerður til 1969. Og ég vil taka það fram, að mín samúð er öll vestan meg- in. Ég er mjög fylgjandi vest- rænni samvinnu, enda þótt ég telji að Islendingum beri að stefna að því að verða hlutlausir í hernaðarátökum. Jón Jakobsson: Jón Jakobsson, stud. med., dvaldist siðastliSinn vetur í Þýzkalandi við nám. Við spurð- um hánn frétta af gangi mála þar í landi og urðum margs vísari. Hann sagði okkur frá umræðum í þýzkuin blöðum um Markaðs- bandalagið og frá þjóðflutningum ítalskra atvinnuleysingja norður á bóginn. Jón fórdæmdi eindregið þá til- högun að láta forsætisráðherra flytja áróðursræðu um herstöðva- málin 1. desember, j-afnvel þótt dulbúið vifcri í fínu orðalagi, eins og „vestræn samvinna“. — Hvað segirðu annars um her- námsmálin? — Ég segi eins og heimspeking. urinn frægi, Berti'and Russel: „Rather red than dead“. Ekki svo að skilja, að ég sé áfjáður i komm- únisma fremur en Russel. En ég álít, að lifinu sé ekki fórnandi fyrir baráttu gegn kommúnism- anum. Hvernig sem allt veltur, munu timarnir breytast. Lífið er fyrir öllu. Og fátt er lráleitara fyrir ís- lendinga en að blanda sér í þennan ægilega leik. Allir vita, að þessi hernefna getur aldrei varið okkur. Enda eru menn liættir að beita þeim rökum. Nú hugsa menn um efnahagshliðina, um gróðann af hernum. Það er það háskalegasta. Ef ég má aft- ur vitna i inerkan mann, þá segi ég eins og biskupinn okkar, séra Sigurbjörn: „Sá sem selur sjálfan sig, selur alltaf með tapi.“ Starf samtakanna Nú er lokið fyrsta áfanga í undirskrifasöfnuninni gegn hernámi, en söfnun undir- skriftanna var stærst þeirra verkefna, er Samtök hernáms- andstæðinga settu sér að vinna og ákveðin voru við stofnun samtakanna á Þingvallafundi 1960. Þetta ár hefur höfuðáhcrzl- an verið Iögð á söfnun undir- skriftanna úti um land í sveit- um og þorpum og er árangur- inn víðast mjög góður. I f jölda sýslna hefur mcirihluti fólks þegar undirritað kröfur her- námsandstæðinga um brott- vísun hernámsliðsins og hlut- leysi fslands. Framkvæmd undirskrifta- söfnunar sem þessarar er hins vegar mjög mikið verk, sem scint verður fullunnið og er enn býsna ógert sérstaklega í þéttbýli. Reynsla þeirra, sem mikið hafa unnið að söfnun undir- skriftanna er sú, að eftir því sem fleiri skrifa verði þeim mun auðveldara að fá með, sem hikandi voru í fyrstu. Meö því að sýna styrk sam- takanna, ciningu þeirra og öflugt starf munum við vinna nýja sigra. Síðar verður skýrt nánar frá undirskrifasöfnuninni. Kjarnorkusprengingar Eins og alþjóð er kunnugt, tilkynntu Sovétríkin um mán- aðamót ágúst—september s. 1., að þau myndu rjúfa það hlé, sem verið hafði á tilraunum þeirra með kjarnorkuvopn frá því á árinu 1958, er þau áttu frumkvæði að því, að slíkum tilraunum var hætt. Fram að þeim tíma höfðu Fundur í miðnefnd Samtaka hernámsandstæðinga verður haldinn miðviku- daginn 6. desember í Aðalstræti 12 og hefst kl. 20.30. Áríðandi mál á dagskrá. Framkvœmdanefnd. Samtök hernámsandstæðinga ekki látið alþjóðleg deilumál til sín taka, enda verksvið þeirra þröngt markað í grund- vallarreglum þeim, sem sam- tökunum voru settar á Þing- vallafundi: „Hlutverk samtak- anna er að berjast fyrir afnámi herstöðva á íslenzkri grund og hlutleysi íslands í hernaðar- átökum og standa gegn hvers- konar erlendri ásælni (2. gr.) Samtökin taka ekki afstöðu til annarra mála en þeirra, sem um getur i 2. gr. (4. gr.)“ En hér var um svo stórfellt alvörumál að ræða, að strax á fyrsta fundi miðnefndar eftir að tilraunir Sovétríkjanna hóf- Framhald á bls. 9.

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/967

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.