Vísbending


Vísbending - 16.11.2009, Blaðsíða 2

Vísbending - 16.11.2009, Blaðsíða 2
Hver eiga skattleysismörk að vera? Hannes Hólmsteinn Gissurarson Prófessor r Islendingar greiða fast hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatt, þegar komið er yfir ákveðin skattleysismörk, sem hafa verið breytileg frá ári til árs. Ósjaldan heyrist, ekki síst fyrir kosningar, að hækka beri skattleysismörkin. Stefán Ólafsson félagsfræðiprófessor fullyrti í Morgunblaðinu 24. febrúar 2006, að „hin lævísa rýrnun skattleysismarkanna" væri „leynivopnið sem ríkisstjórnin hefur notað til að auka skattbyrði og í leiðinni hefur hún aukið ójöfnuðinn stórlega“. Taldi hann, að lækkun skattleysismarka að raungildi væri aðalskýringin á því, að skatttekjur ríkisins hefðu hin síðari ár hækkað í hlutfalli við landsframleiðslu. Þá er þess fyrst að geta, að skattleysis- mörk eru talsvert hærri á Islandi en í grannlöndunum, eins og sést á töflu 1, þar sem sýnd eru skattleysismörk í ýmsum löndum árið 2006 á sambærilegu verðlagi. Til dæmis voru skattleysismörk í Svíþjóð þá aðeins um einn níundi af því, sem þau voru á íslandi. Tafla 1: Skattleysismörk í ýmsum löndum 2006 Land Lágmark kr. Himark kr. island 948.647 948.647 Danmörk 450.980 536.490 Finnland 129.336 336.448 Noregur 730.247 1.048.644 Sviþjóð 110.249 288.343 Bretland 644.266 644.266 Óneitanlega skýtur skökku við í Ijósi þessara talna, þegar krafxst er hækkunar skattleysismarka á Islandi. I öðru lagi virtist Stefán Ólafsson ekki gera sér grein fyrir, að skatdeysismörk hafa frá 1995 verið vanreiknuð í opinberum tölum. Astæðan er sú, að árið 1995 var ákveðið, að lífeyrisgjöld launþega yrðu undanþegin álagningu tekjuskatts. Þetta jafngilti talsverðri hækkun skatdeysismarka. Arið 1999 var síðan ákveðið, að séreignar- sparnaður í lífeyrissjóðum yrði einnig undanþeginn álagningu tekjuskatts. Þetta jafngilti einnig hækkun skatdeysismarka (þótt séreignarsparnaður sé ólíkt lífeyris- gjöldum ekki lögboðinn, svo að ekki nýta sér hann allir). Sveinn Agnarsson hagfræðingur reiknaði haustið 2008 út, hver hin raunverulegu skattleysismörk væru að teknu tilliti til þessara atriða. I töflu 2 eru annars vegar opinber og hins vegar raunveruleg skatdeysismörk á verðlagi ársins 2007. Mynd: Skattleysismörk lækkuðu lítt eftir 1992 kl 2* (/> ‘=3 ■Q. 1500.0 5 :0 E 1000.0 (/> 'é. Ö> 500.0 *2 n 3 0.0 S1 ■c •< 1 Raunveruleg skattleysismörk á verölagi 2007 1988 1990 1992 1994 1996 1998 2000 2002 2004 2006 Heimild: Ríkisskattstjóri og Sveinn Agnarsson. Þegar borin eru saman raunveruleg skattleysismörk 1992 og 2007, sést, að munurinn er á föstu verðlagi aðeins um fjögur þúsund krónur á mánuði. I öðrum skrifum sínum vildi Stefán Ólafsson venjulega frekar miða við 1995, væntanlega af því að þá hvarf Alþýðuflokkurinn úr stjórn. En athyglisvert er, að skatdeysismörk hækkuðu í raun um fjögur þúsund krónur á mánuði frá 1995 til 2007. Þróun raunverulegra skattleysismarka sést enn betur á myndinni. Skattleysismörk lækkuðu mest árin 1988-1990, í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar. Þau lækkuðu aftur nokkuð 1992-1993, en gengu eftir það smávegis upp og niður allt tímabilið til 2007, þegar þau hækkuðu talsvert aftur. Frá og með 2007 voru skatdeysismörk bundin við vísitölu verðlags. En hæpið er, eins og Stefán Ólafsson virtist telja, að breytingar á skattleysismörkum hefðu ráðið úrslitum um afkomu ríkissjóðs frá 1991. Skatttekjur af þeim tekjum, sem voru skattlagðar vegna lækkunar skattleysismarka, en hefðu ella verið skattfrjálsar, námu aðeins broti af auknum tekjum ríkissjóðs á þessu tímabili. Stefán Ólafsson fullyrti í skrifum sínum árið 2006, að með lægri skattleysismörkum hefði skattbyrði hinna tekjulægstu þyngst. Það er rétt, en aðeins í þeim skilningi, að þeir öðluðust getu til að greiða skatt, sem þeir höfðu ekki áður. Ef hagur fyrirtækis, sem rekið var með tapi og greiddi þess vegna ekki tekjuskatt, vænkast, svo að það er rekið með gróða og greiðir þess vegna tekjuskatt, hefur þá eitthvað óæskilegt gerst? Ef hagur manns, sem hafði lág laun og greiddi þess vegna ekki tekjuskatt, vænkast, svo að hann tekur að greiða tekjuskatt, hefur þá eitthvað óæskilegt gerst? Stefán Ólafsson hélt því einnig fram, að tengja ætti skatdeysismörk við launaþróun frekar en verðlag. En það er óeðlilegt: Þá yrði alltaf sami tekjuhópurinn skattfrjáls (sá, sem var neðan skatdeysismarka fyrsta viðmiðunarárið, til dæmis 1995), jafnvel þótt Taíla 2: Skattleysismörk á íslandi 1988-2007 Ar Opinbor skattloysis- mörk / þús. kr. Raunvorulag skattloysis- mörk / þús. kr. 1988 1.387 1.387 1989 1.280 1.280 1990 1.219 1.219 1991 1.242 1.242 1992 1.225 1.225 1993 1.125 1.125 1994 1.103 1.103 1995 1.108 1.125 1996 1.085 1.125 1997 1.065 1.109 1998 1.073 1.117 1999 1.054 1.121 2000 1.047 1.138 2001 1.007 1.095 2002 996 1.082 2003 1.006 1.093 2004 998 1.085 2005 1.010 1.098 2006 996 1.083 2007 1.080 1.174 hann öðlaðist getu til að leggja sitt af mörk- um til þarfa þjóðarbúsins. Hitt er eðlilegra, að sem flestir greiði skatta. Þá er það sami hópxrr, sem ákveður skatta og ber þá. Að lokum er rétt að benda á, að með háum skatdeysismörkum er smíðuð skattagildra. Þeir, sem hafa tekjur rétt innan við þessi mörk, hugsa sig um tvisvar, áður en þeir auka við sig vinnu, hækka þannig tekjur sínar og þyngja með því skattbyrðina. Því lægri sem skatdeysismörkin em, því meiri líkur em hins vegar á, að menn losni úr slíkri skattagildru. Ef menn vilja í alvöru bæta kjör hinna tekjulægstu, þá er ekki markvissast að gera það með því að hækka skatdeysismörk, því að sú aðgerð nýdst ekki aðeins hinum fátækustu, heldur öllum skattgreiðendum, einnig hinum tekjuhæsm. Hitt er skynsamlegra, að lækka tekjuskatt og lækka skatdeysismörk, til dæmis um helming, svo að þau yrðu svipuð og í Danmörku, en hækka um leið bætur til hinna tekjulægstu. Þá hitta menn í mark, en ekki fram hjá því. Q 2 VÍSBENDING • +5. TBL. 2 0 0 9

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.