Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 4

Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 4
kg 27 SEK 3 5 7,5 Það er magnaður stígandi í þessari. Rauðar kúlur með hala sem springa út í þéttar silfraðar stjörnur, stígandi ljósagangur sem endar síðan með miklum hávaða og látum. Ein af þeim betri. 2 veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Hvasst og snjókoma á vestfjörðum, en annars Hægur vindur og væg þíða. Höfuðborgarsvæðið: Smá rigning með köflum og hiti ofan froStmarkS. mjög Hvöss n-átt og Hríðarveður um landið nv- og v-vert. mun skárra a-til. Höfuðborgarsvæðið: norðan Stormur og dálítil Snjókoma um tíma. enn Hvasst og með Hríð eða slyddu, sérstaklegar um nv-vert landið. Höfuðborgarsvæðið: allhvaSSt og Slydda, en Snjór hærra uppi. líkur á aftakaveðri á laugardag Það lítur út fyrir eina allra dýpstu lægð ársins hér við land í nótt og á morgun. talsverð óvissa er enn með veður eftir landshlutum, en margt bendir til aftakaveðurs, n-átt með stórhríð og mikilli ofankomu á vestfjörðum og vestantil á norðurlandi. eins snjókoma vestan- og suðvestanlands og vindur a.m.k. af stormstyrk um landið vestanvert. mun skaplegra verður og hiti ofan frostmarks austan og suðaustantil. Þetta ill- viðri mun vara fram á sunnudag, þegar tekur aftur að lagast. 3 0 1 4 4 -1 -3 2 5 0 2 -1 1 4 3 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is má heita kjói en ekki Christa Samkvæmt Þjóðskrá heita þrjár konur Christa og sú elsta þeirra er fædd 1981. Það er ekki nóg til að nafnið fáist samþykkt samkvæmt íslenskum lögum og því hefur manna- nafnanefnd hafnað beiðni þess efnis. nefndin samþykkti hinsvegar á dögunum jean og Carlo ásamt nöfnunum adelía og íseldur. Þá má nú nefna drengi nafninu kjói því það tekur íslenska beygingu í eignarfalli; kjóa.  Jól tíu í neyðarathvarFi Fyrir þolendur heimilisoFbeldis Fimm börn héldu jól í Kvennaathvarfi Fimm konur og fimm börn undir tíu ára aldri héldu jólin í Kvennaathvarfinu því þau áttu í engin önnur hús að venda. Sum börnin hafa dvalið mánuðum saman í athvarfinu ásamt mæðrum sínum. F imm konur og fimm börn á aldrinum 0-10 ára héldu jól í Kvennaathvarfinu því þau áttu í engin önnur hús að venda eftir að hafa flúið heimili sitt vegna ofbeldis af hendi maka. Sumar kon- urnar hafa dvalist í nokkra mánuði Kvennaathvarfinu því þær telja öryggi sínu og barna sinna best borgið þar. Aðrar leituðu skjóls í athvarfinu fáeinum dögum fyrir jól, að sögn Sigþrúðar Guðmundsdóttur, fram- kvæmdastýru Kvennaathvarfsins. „Að sjálfsögðu hefðu allir gestirnir viljað vera ein- hvers staðar annars staðar en í neyðarathvarfi á að- fangadag en okkur tókst að gera kvöldið hátíðlegt,“ segir Sigþrúður. Gestirnir settust við jólaborðið rúmlega sex og gæddu sér á kalkúni í boði velgjörðar- manns. „Þetta var allt mjög hefðbundið fyrir utan það að hér var ekki hefðbundin fjölskylda að fagna saman jólunum,“ segir hún. Óvenjumikill erill hefur verið í Kvennaathvarfinu í desember en jafnframt mikil jólastemning. „Margir hugsuðu til okkar á aðventunni og voru ýmsir jóla- englar á ferðinni með glaðning til okkar,“ segir Sig- þrúður. Hún segir að það hafi einkennt árið að konur hafa dvalið mjög lengi í Kvennaathvarfinu en það komi lík- lega fyrst og fremst til af því hve húsnæðismarkaðurinn sé erfiður. Konur, sem hafi ákveðið að hefja sjálfstætt líf, séu lengi að finna húsnæði vegna lítils framboðs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu höfuðborgar- svæðisins var lögreglan kölluð út fjórum sinnum á aðfangadagskvöld og aðfararnótt jóladags vegna heimilisofbeldis. Ofbeldismennirnir voru fjarlægðir af heimilum sínum og látnir gista í fangageymslum lög- reglunnar. Tvö mál fara til rannsóknar þar sem ofbeld- ið eða skemmdarverkin voru það alvarleg að þoland- inn varð fyrir skaða eða eignarspjöllin voru veruleg, að sögn Björgvins Björgvinssonar, aðstoðaryfirlög- regluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. sigríður dögg auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is lögreglan var kölluð út fjórum sinnum vegna ófriðar á heimili á aðfaranótt jóladags og fjarlægði heimilisfeður vegna ofbeldis eða hótana um skemmdarverk. tvö mál voru svo alvarlegs eðlis að þau fara í rannsókn. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages OYSTER PERPETUAL DATEJUST Michelsen_255x50_D_0612.indd 1 01.06.12 07:21 vilhjálmur Birgisson, verka- lýðsforingi á akranesi, er vestlendingur ársins 2012. Hann hlaut flestar tilnefningar í kjöri lesenda tímaritsins Skessuhorns. „vilhjálmur hefur á árinu vakið athygli landsmanna fyrir skörulega framgöngu í málefnum launafólks. hann hefur ekki síst látið til sín taka í umræðunni um afnám núverandi forms verðtryggingar og um skuldamál heimilanna,“ segir í umfjöllun Skessu- horns um vilhjálm sem gegnt hefur formennsku í verkalýðsfélagi akraness frá árinu 2003. Þetta er fimmtánda árið í röð sem Skessuhorn stendur fyrir vali á vest- lendingi ársins. lesendur blaðsins tilnefndu alls 24 einstaklinga að þessu sinni. vilhjálmur valinn vestlendingur ársins vilhjálmur Birgisson var kampakátur þegar Skessuhorn útnefndi hann vestlend- ing ársins. 4 fréttir helgin 28.-30. desember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.