Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 26
Gleði, sorgir og almennt
fjör á hjónadjöflaeyjunni
Fallega og fræga fólkið í Hollywood kom til landsins í stríðum straumum á árinu. Eitthvað virtist dvöl sumra fara illa með hjónabönd
þeirra en þeir Tom Cruise og Russell Crowe skildu báðir í kjölfar Íslandsdvalarinnar. Þótt frægðarfólkið frá Bandaríkjunum hafi verið
frekt til fjörsins í fréttum af fólki á árinu voru íslenskar konur áberandi á öftustu opnu Fréttatímans þar sem meðal annars Þórdís
Nadia Semichat loftaði út typpafýlunni á hiphop-senunni og hjúkrunarkonan sagði frá nánu og heitu sambandi sínu við Guð.
Augu allra á Íslandi
Komst ekki á Reða-
safnið
Leikkonan unga, Emma
Watson, sem þekktust er
fyrir að leika Hermione
Granger í Harry Potter-
myndunum heiðraði eins
og kunnugt er Íslend-
inga með nærveru
sinni í sumar þegar
hún lék í stórmynd
Darrens Aronofsky,
Noah. Þegar heim
var komið úttalaði
leikkonan sig um
miður geðslega
íslenska elda-
mennsku og stór-
furðulega drykkjusiði
þjóðarinnar í fjölmiðlum
ytra. Þá upplýsti hún að
henni hafi ekki gefist tími
til að skoða hið einstaka
íslenska reðasafn. „Ég
heyrði af þessu en ég fór
ekki,“ sagði Watson í sjón-
varpsviðtali.
Engin afmælisveisla
Tom Cruise varð fimmtugur á meðan
hann dvaldi á Íslandi við tökur á fram-
tíðarspennumyndinni Oblivion. Mikið
var fjallað um hugsanlega stórveislu
sem gert var ráð fyrir að leikarinn
myndi slá upp á landinu og einhverjir
gerðu sér vonir um að stórstjörnur
myndu hrúgast til landsins af tilefninu.
Því var spáð að David og Victoria
Beckham myndu láta sjá sig en ekkert
varð úr húllumhæinu og ekki er útilokað
að óvæntur skilnaður Cruise og Katie
Holmes hafi sett þar strik í reikninginn.
Cruise afréð í það minnsta að fagna
með sínum nánustu í íslensku sveitinni.
Cruise keypti úlpur
Tom Cruise hélt sig mest norður í landi
þar sem atriði fyrir Oblivion voru tekin
upp. Hann sýndi þó landi og þjóð mikinn
áhuga og hreifst mjög af klæðaburði
Íslendinga á tökustaðnum og þá ekki
síst úlpum frá 66°norður og lét sig ekki
muna um að kaupa tvær slíkar til að
klæðast við tökurnar.
Hrár fiskur, súrt epli
Veitingastaðurinn Sushisamba var í
brennidepli í skilnaðarfréttum af Tom
Cruise og Katie Holmes en þar snæddi
leikarinn síðustu máltíðina með Katie
áður en hún fór fram á skilnað. Erlent
fjölmiðlafólk flaug til landsins í kjölfar
fréttanna og kom vitaskuld við á Sus-
hisamba og reyndu að fiska fréttir af
látbragði hjónanna. „Við gefum engin
svör,“ sagði Eiður Mar Halldórsson yfir-
matreiðslumaður en lét þess getið að
fjöldi gesta sem kæmu á staðinn bæði
um að fá að sitja í sætunum sem Cruise
og Holmes vermdu þetta örlagaríka
kvöld í júnílok.
Datt í lögfræði á milli
verkefna í leiklistinni
Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir sýndi öflugan
en lágstemmdan leik í Djúpinu, kvikmynd
Baltasars Kormáks. „Öll hlutverk eru erfið
og þetta er ótrúleg saga,“ sagði Þorbjörg
Helga við Fréttatímann eftir frumsýningu en
hún fer með hlutverk konu sem missir mann-
inn sinn á sjó í Djúpinu, og fékk mikið lof
fyrir frammistöðu sína. Þorbjörg hefur sjálf
ekki farið á sjó en þekkir heiminn ágætlega.
Afi hennar heitinn, Sveinn Þórðarson, var
á sjó og mamma hennar var kokkur á sjó
á sínum tíma: „Þannig að þetta er alveg í
blóðinu,“ útskýrir Þorbjörg sem útskrifaðist
úr Leiklistarskólanum 2009 og fór beint í
Borgarleikhúsið en söðlaði svo um og klár-
aði fyrsta árið í lögfræði við Háskóla Íslands.
Crowe ógnað
með íslensku sverði
„Ég veit ekki hvað kom til. Kannski gleymdi leik-
munadeildin sverðunum sínum í Bandaríkjunum,“
sagði Gunnar Víkingur, jarl í víkingafélaginu Ein-
herjum, þegar Fréttatíminn innti hann eftir því hvað
varð til þess að hann og félagar hans voru beðnir
um að lána sverð sín í tökur á biblíusögumyndinni
Noah. „Ég veit heldur ekki hvað varð til þess að
kvikmyndaliðið leitaði til okkar. Ætli við séum ekki
bara svona flottir.“
Gunnar sagði útsendara leikstjórans Darrens
Aronofsky hafa hrifist mjög af sverðinu sínu. „Mér
var sagt að ein aðalpersónan myndi nota það. Það er
víst eitthvert illmennið,“ sagði Reykjavíkurjarlinn
stoltur og vongóður um að sverð hans myndi komast
í návígi við Russell Crowe sem leikur Nóa.
Gunnar og félagar lánuðu sverðin sín fúslega og
afþökkuðu alla leigu fyrir afnotin. Þeir gerðu bara
kröfu um að fá þau aftur. „Ég bað líka um mynd af
leikaranum sem mun nota það með sverðið á lofti
og að hún væri árituð. Ég sagðist líka ekkert hafa
á móti því að fá eiginhandaráritun frá þessum aðal
köllum, Russell Crowe og Anthony Hopkins.“
Passaðu þig á
kvenfyrirlitningunni
Þórdís Nadia Semichat fékk sig fullsadda
af þrúgandi karlrembu typpaveldisins
sem liggur eins og mara yfir íslenskri hip
hop-menningu sem hún sagði í sumar
löðrandi í kvenfyrirlitningu. Í andófi sínu
samdi hún hip hop-lagið Passaðu þig þar
sem remburnar fengu það óþvegið.
„Það er svo mikil typpafýla af þessu
öllu,“ sagði Nadia við Fréttatímann. „Karl-
arnir eru eiginlega allsráðandi á þessari
senu og konurnar eru mjög fáar og ég fíla
bara alls ekki þessa endalausu kvenfyrir-
litningu sem þeir eru með. Þetta er líka
oft bara einhverjir aular sem reykja bara
gras allan daginn og tala um hvað typpið
á sér sé stórt. Og ef þeir tala um konur
þá er það oftast í einhverju kynferðislegu
samhengi þar sem þeir hlutgera þær. Ég
er að dissa það í laginu Passaðu þig.“
Nadia hafði ekkert unnið að tónlist áður
en hún sendi Passaðu þig frá sér. „Ég er
bara búin að fá nóg. Poppið allt yfir höfuð
er svo klámvætt og það er frekar erfitt að
eiga við eitthvað eins og hip hop-senuna
þar sem þeir sem gera tónlistina eru 90%
karlmenn. Maður getur ekki bara setið
og hlustað á þetta og hvað á maður þá að
gera? Hringja í þá og tala við þá? Maður
verður bara að ganga sjálfur í málið og ég
hvet fleiri stelpur til að stíga fram og gera
eitthvað sjálfar.“
Skilnaður eftir fjörugt sumar
Russell Crowe var áberandi á meðan á Íslandsdvöl hans
stóð en hann fer með aðalhlutverkið í mynd Darrens
Aronovsky um örkina hans Nóa. Crowe heillaðist mjög af
landi og þjóð og tjáði sig með ljóðrænum smáskilaboðum
á Twitter. Hann lyfti lóðum af kappi hjá Mjölni, hámaði í
sig skyr og hjólaði á milli bæjarhluta. Þá tók hann lagið
á Menningarnótt við mikinn fögnuð. Hann var svo varla
kominn aftur til Bandaríkjanna þegar fréttist að hann væri
að skilja við Danielle Spencer eftir níu ára hjónaband.
Spencer og Crowe eiga tvo syni, Charles og Tenny-
son, átta og sex ára. Fréttir af skilnaðinum komu eins og
þruma úr heiðskíru lofti því hjónin þóttu mikið fyrirmynd-
arpar, sérstaklega á Hollywood-mælikvarða.
Málaði bæinn svartan
Bandaríski leikarinn og leikstjórinn Ben
Stiller gerði góða heimsókn til Íslands
og virðist hafa sloppið við öll meiriháttar
skakkaföll. Honum var vel tekið í Stykk-
ishólmi þar sem hann tók upp atriði fyrir
mynd sína The Secret life of Walter Mitty.
Hann tók sig til og lét mála Ráðhúsið í
Hólminum svart. Þá breytti hann Geira-
bakaríi við Digranesgötu í Borgarnesi í
pitsustað sem vantaði í leikmyndina.
Stiller hreifst af landi og þjóð og
skemmti sér ágætlega þegar hann lenti í
hávaðaroki og birti af sér mynd á netinu
þar sem hann var við það að fjúka út í
buskann. Í spjallþætti Jimmy Kimmel
sagði hann landið fallegt, að sólin settist
aldei og fólkið liti mjög vel út.
Og svo
birtist Shania
Gestir og gangandi á
Nordica hótelinu við Suður-
landsbraut ráku upp stór augu
einn fagran sumarmorguninn
þegar þeir sáu hinni feiki-
vinsælu kanadísku kántrís-
öngkonu Shania Twain bregða
fyrir. Söngkonan sást á spjalli
við tónleikahaldarann Ísleif
B. Þórhallsson sem hafði, að-
spurður um hvort Twain væri á
Íslandi á hans vegum þetta eitt
að segja: „No comment.“
Shania dvaldi á landinu í
viku ásamt eiginmanni sínum,
Svisslendingnum Frédéric
Thiébaud, en þau komu hingað
gagngert til þess að slappa af
og borða heilsufæði.
Einhverjir íslenskra aðdá-
enda söngkonunnar gera sér
vonir um að hún hafi hrifist svo
af Íslandi að hún muni leggja
leið sína hingað síðar og slá þá
upp tónleikum.
Fann Guð og blómstr-
ar sem kynvera
Hjúkrunarfræðingurinn Ingibjörg
Torfadóttir sendi frá sér bókina Ást-
arsamband við Guð fyrr á þessu ári
en þar segir hún frá því hvernig hún
komst í náið og milliliðalaust sam-
band við Jesús. Líf hennar breyttist
til hins betra í framhaldinu. Hún
sprakk út sem kynvera, losnaði við
þunglyndi og öðlaðist innri ró.
Lýsing Ingibjargar í bókinni á
því þegar hún fann Jesús er nokkuð
erótísk og hún segist ekki sjá neitt
óeðlilegt við það. Síður en svo enda
sé kynlífið Guðs gjöf. „Eftir að ég
kynntist Jesú finnst mér kynlífið
í fyrsta lagi hafa batnað og mér
finnst ég einhvern veginn vera meiri
kynvera. Þegar ég hef verið mikið
í andanum og mikið að tala við
Jesús þá er ég opnari fyrir kynlífi
og í meira stuði til þess að stunda
kynlíf,“ sagði Ingibjörg við Frétta-
tímann og bætti við að kærleikurinn
sé frá Guði kominn og að kynlíf sé
hámark elskunnar.
Ingibjörg Torfadóttir komst í náið, pers-
ónulegt samband við Guð og heimsækir
hann ekki í kirkju: „Ef þú vilt fara í kirkju
til að næra sálina þá er það fínt en þú ert
ekki að gera það fyrir Guð. “
Þórdís Nadía fékk sig full-
sadda af karlrembunni í
íslenskri hip hop-tónlist og
svaraði karlpeningnum fullum
hálsi með laginu Passaðu þig.
Russell Crowe í hlutverki
arkarsmiðsins Nóa sem
væntanlega mun þurfa að
vinda sér undan íslensku
víkingasverði í öflugri
sveiflu í biblíusögumynd
Darrens Aronofskys, Noah.Ben Stiller setti sterkan
svip á bæjarbraginn í
Stykkishólmi og víðar.
Hjónakornin
Shania Twain
og Frédéric
Thiébaud
slöppuðu
af fjarri
frægðar-
innar glaumi
á Íslandi.
Gunnar Víkingur
í fullum skrúða
með sverðið
góða sem end-
aði í höndum
illmennis sem
gerir Russell
Crowe lífið leitt
í Noah.
Þorbjörg
Helga Þor-
gilsdóttir
þótti standa
sig vel í
Djúpinu sem
eiginkona
manns sem
ferst á sjó.
26 uppgjör Helgin 28.-30. desember 2012