Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 30
Sprengt í þágu málstaðarins E Enn eitt árið er að hverfa í aldanna skaut, eins og menn segja þegar þeir setja sig í hátíðlegar stellingar um áramót – og nýtt tekur við með nýjum áskorunum og tækifærum. Við kveðjum það gamla og fögnum því nýja með því að kaupa flug- elda og kökur og kveikja í öllu drasl- inu með tilheyrandi eldglæringum og litaflúri. Jafnvel útlendingar eru farnir að koma hingað í hópum til þess að fylgjast með þessum ósköpum þegar himininn logar norður hér. Slíkt fíriverk leyfist víst ekki annars staðar. Þar eru flugeldasýn- ingar í boði opinberra aðila. Hér skjóta allir sem vettlingi geta valdið, ungir sem gamlir. Ungviðið er spennt, hvellir og blossar eru freistandi. Margir hinna eldri ganga í barndóm þetta sérstaka kvöld. Eini munurinn er sá að sprengjurnar eru stærri, litskrúðugri og háværari en hjá börnunum. Flugeldasýningin er í boði þjóðarinnar í þeirri von að menn skaði sig ekki meðan á hasarnum stendur. Húsdýr og annar búfénaður er hafður á húsi. Ella er hætta á að hundar og kettir tryllist og hestar fælist og hlaupi til fjalla, eins og andskot- inn sé á hælum þeirra. Allt er þetta gert í þágu góðs málefnis, að styrkja björgunarsveitirnar. Þær eiga allt gott skilið enda eru björgunarsveitar- félagar um land og mið tilbúnir til að að- stoða fólk í nauðum við verstu aðstæður. Ég var ekki mikill sprengjumaður í æsku, sótti frekar rakettuprik eins og aðrir strákar. Ég neita því þó ekki að nokkurt yndi hafði ég af kínverjum, Bandíttar hétu þeir og báru nafn með rentu, smyglvarningur ef rétt er munað. Forboðnir hlutir eru alltaf spennandi. Hvellurinn af þeim gerði fólki dásamlega bylt við. Á fullorðinsárum hef ég heldur ekki verið öflugur sprengjumaður. Keypti í mesta lagi lítinn fjölskyldupakka svo krakkarnir hefðu úr einhverju að moða á sínum tíma. Það þykist ég þó vita að strákarnir, að minnsta kosti, hafi laumað sér í eitthvað kraftmeira en stjörnuljós án þess að ráðfæra sig við pabba gamla. Á því hef ég fullan skilning og í þeirri stöðu eiga foreldrar ekki aðra von en að prakkararnir skaði sig ekki. Miklir púðurflutningar eru varasamir, svo ekki sé meira sagt. Nú nýt ég þess að nýjar kynslóðir foreldra hafa tekið við keflinu. Hlut- verk afans felst einkum í því að horfa á aðra sprengja og í mesta lagi að skaffa stjörnuljós fyrir allra yngstu kynslóðina. Stjörnuljósin henta vel hinum yngstu og líka þeim sem komnir eru á virðulegan aldur. Þau bjóða bara upp á fallegt ljós, enga hvelli. Árið 2012 er að kveðja, farsælt ár og á því bættist okkur hjónum barnabarn, hið áttunda. Það er mikill fjársjóður. Það er því glatt á hjalla þegar allir hittast. Amman stjórnar þeim skara öllum með blíðu og elskusemi. Börnin sækjast því í vist hjá okkur, hvort heldur er heima eða í sveitinni. Við látum svolítið eftir þeim, eins og vera ber, svolítið nammi eða snakk á kvósíkvöldi eða andlitslit svo þau geta verið ýmist gul, brún eða rauð í framan þegar foreldrarnir koma og sækja þau eftir styttri heimsókn eða nætur- gistingu. Hvert ár líður æ hraðar, að okkur finnst. Nánast er eins og síðasta gamlárs- kvöld hafi verið í gær eða í mesta lagi í fyrrakvöld. Í vor minntumst við skóla- félagarnir þess að fjörutíu ár eru liðin frá því að við útskrifuðumst með hvíta kolla frá Menntaskólanum við Hamra- hlíð, þriðji útskriftarárgangur þess ágæta skóla. Leiðirnar okkar lágu síðan í allar áttir. Frægir tónlistarmenn eru í hópn- um, Stuðmenn sem héldu í haust upp á stórafmæli hinnar eilífu unglingahljóm- sveitar með því að margfylla Eldborgar- sal Hörpu. Hljómsveitarmeðlimirnir eru dæmi um það að aldur er afstæður. Aðrir skólafélagar urðu læknar, hjúkrunarfræð- ingar, verkfræðingar auk nokkurra sem gerðu blaðamennsku að ævistarfi sínu, auk margs annars. Eina grein lét þessi hópur þó afskipta- lausa að mestu, stjórnmál. Einhverjir hafa að vísu komið að sveitarstjórnarmálum og aðrir sest sem varamenn á þing en, ef rétt er munað, hafa þeir ekki verið í hópi kjörinna alþingismanna. Á því verður sennilega breyting í kosningunum í vor því tveir úr hópnum, karl og kona, hafa náð þeim árangri í prófkjörum að undan- förnu að heita má nokkuð öruggt að þau setjast á næsta þing. Sennilega er þessi góði hópur svo seinþroska að hann hefur ekki látið til sín taka á þessum vettvangi fyrr en nú. Þá kann að vera að loksins hafi þessum góðu skólasystkinum mínum verið nóg boðið og ákveðið að bæta and- rúmsloftið á Alþingi. Ekki veitir af. Þau fara fram fyrir sitt hvort stjórnmálaflokk- inn. Annar flokkurinn er í stjórn, hinn í stjórnarandstöðu. Vonandi tekst þessu góða fólki að sýna öðrum starfsfélögum á komandi þingi hvernig vinna á saman. Samheldni hefur nefnilega einkennt þann góða hóp sem útskrifaðist úr MH fyrir fjörutíu árum, síðhærður og til í allt. Það hefur ekki breyst þó hárið hafi styst, gránað hjá sumum eða jafnvel horfið af höfðum annarra. Við sláum því í klárinn á gamlárskvöld, fírum upp í þágu björgunarsveitanna eða kveikjum í stjörnuljósi með barnabörn- unum í þeirri von að árið 2013 reynist okkur farsælt. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Te ik ni ng /H ar i Birtingahúsið er leiðandi fyrirtæki á sviði birtinga- ráðgjafar og frumkvöðull á sínu sviði hér á landi. Það sinnir markaðsráðgjöf fyrir mörg af þekktustu vörumerkjum landsins, bæði innlend og erlend. Birtingahúsið er skipað snjöllu starfsfólki og hefur ítrekað verið valið fyrirmyndarfyrirtæki VR. Við óskum eftir bókara í hlutastarf (50%) Ef þú hefur brennandi áhuga á bók- og reikningshaldsstörfum og okkar umhverfi þá fögnum við umsókn frá þér. Verkefni bókara eru meðal annars: Færsla bókhalds, afstemmingar, reikningagerð, kostnaðar- eftirlit, samskipti við viðskiptavini ásamt öðru tilfallandi. Bókari þarf að búa yfir: - Frumkvæði og góðri samskiptahæfni. - Afburða talnagleggni, öguðum vinnubrögðum og aðlögunarhæfni. - Getu til að takast á við fjölbreytt og skemmtilegt umhverfi, vinna sjálfstætt sem og í hópi. Menntunar- og hæfniskröfur: - Víðtæk reynsla af bókhaldsstörfum og þekking á helstu bókhaldsforritum, m.a. DK hugbúnaðinum. - Menntun sem nýtist í starfi (viðurkenndur bókari eða önnur haldgóð menntun á sviði bókhalds). - Almenn og góð tölvukunnátta er skilyrði og gert ráð fyrir að viðkomandi hafi mjög góð tök á Excel. Umsóknir og ferilskrár sendist með tölvupósti á framkvæmda- stjóra Birtingahússins, Huga Sævarsson (hugi@birtingahusid.is), merktar „bókari”. Tekið er á móti umsóknum til og með 11. janúar 2013. Öllum umsóknum verður svarað. L a u g a v e g i 1 7 4 S í m i : 5 6 9 3 8 0 0 w w w . b i r t i n g a h u s i d . i s 30 viðhorf Helgin 28.-30. desember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.