Fréttatíminn - 28.12.2012, Blaðsíða 45
Ríkissjónvarpið býður upp á hina frábæru,
frönsku bíómynd The Artist klukkan 20.50 að
kvöldi nýársdags. Myndin gerði stormandi lukku
á Íslandi í upphafi þessa árs. Hún hlaut fimm
Óskarsverðlaun fyrir árið 2011 þar á meðal sem
besta myndin, fyrir leikstjórn og besta leikarann
í aðalhlutverki en þar fer Jean Dujardin á kostum
sem George Valentin, ein skærasta stjarna þöglu
myndanna. Hann kynnist ungri dansmey, Peppy,
en með tilkomu talmyndanna hallar undan fæti
hjá honum en frægð hennar eykst.
Barátta Valentins við sjálfan sig og mótlætið
er mögnuð og tilfinningatjáning Dujardin, með
látbragði og svipbrigðum, er ótrúleg. Þá er Béré-
nice Bejo engu síðri í hlutverki Peppy.
Öllu er þessu komið til skila þegjandi en ekki
alveg hljóðalaust þar sem frábær tónlist gefur
tjáningu leikaranna mikilfenglega vængi og inn-
siglar þennan yndislega töfrahring sem hverfist
um áhorfendur.
The Artist fékk fjórar stjörnur í dómi í Frétta-
tímanum í janúar en þar sagði meðal annars að
það væri „ekkert nema stórafrek nú til dags að
segja dásamlega fallega ástarsögu sem fer með
áhorfandann upp og niður allan tilfinningaskal-
ann í svart/hvítri og þögulli bíómynd. Hér er
sögð svo heillandi og ógleymanleg saga, gerð af
svo mikilli fagmennsku og alúð að mann bók-
staflega sundlar af töfrunum sem bera fyrir augu
manns á hvíta tjaldinu. Í ofanálag er The Artist
svo undurfagur óður til einfaldari og horfinna
tíma.“
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
STÖÐ 2
07:00 Strumparnir / Villingarnir / Svampur
Sveins / Algjör Sveppi / Tasmanía / Tommi
og Jenni / Hundagengið / Ofurhetjusér-
sveitin
11:35 Victorious
12:00 Nágrannar
12:45 Legally Blonde
14:30 Far and Away
16:50 MasterChef Ísland (2/9)
17:40 60 mínútur
18:30 Fréttir Stöðvar 2
19:00 Um land allt
19:25 Wikileaks - Secrets & Lies
20:30 The Mentalist (5/22) Fimmta
þáttaröð af þessum sívinsælu þáttum
um Patrick Jane, sjálfstætt starfandi
ráðgjafa rannsóknarlögreglunnar í
Kaliforníu. Hann á að baki glæsilegan
feril við að leysa flókin glæpamál með
því að nota hárbeitta athyglisgáfu
sína.
21:15 Milk Mögnuð og áhrifamikil
mynd með Sean Penn í ógleyman-
legu hlutverki sem Harvey Milk,
fyrsti opinberlega samkynhneigði
embættismaðurinn í Kaliforníu.
23:20 Bridesmaids Fersk, frumleg og
hárbeitt gamanmynd. Annie fær það
hlutverk frá vinkonu sinni, Lillian, að
skipuleggja brúðkaupið hennar og
alla þá viðburði sem því fylgir.
01:20 Fargo
02:55 In the Name of the Father
05:05 The Mentalist (5/22)
05:50 Fréttir
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
12:15 Ísland - Noregur
13:40 Spænski boltinn
15:20 Sterkasti maður Íslands
16:30 Ísland á HM 2013
17:15 Meistaradeild Evrópu
20:00 The Royal Trophy 2012
4 5 6
allt fyrir áskrifendur
fréttir, fræðsla, sport og skemmtun
08:15 Arsenal - Newcastle
09:55 Sunderland - Tottenham
11:35 Norwich - Man. City
13:15 Everton - Chelsea
15:45 QPR - Liverpool
18:00 Sunnudagsmessan
19:15 Man. Utd. - WBA
20:55 Sunnudagsmessan
22:10 Everton - Chelsea
23:50 Sunnudagsmessan
01:05 QPR - Liverpool
02:45 Sunnudagsmessan
SkjárGolf
06:00 ESPN America
07:20 The Open Championship Official Film
2009
08:15 The Open Championship Official Film
2010
09:10 Opna breska meistaramótið 2012
01:00 ESPN America
30. desember
sjónvarp 45Helgin 28.-30. desember 2012
Dagskráin The arTisT
Þögul snilld í byrjun árs
Valentin og Peppy eiga misgóðu gengi að fagna í Hollywood.
Takk
fyrir frábærar móttökur á árinu sem er að líða.
Nýtt og spennandi ár er fram undan.
Gleðilegt ár.
HELGARBLAÐ
Dreifing inni í Fréttatímanum
er leið til að koma bæklingnum
þínu í hendur viðskiptavina.
Hikaðu ekki við að leita tilboða.
Verðið kemur á óvart.
Þarftu að dreifa bæklingi?
auglysingar@frettatiminn.is
Sími 531 3310