Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 40
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður og Har-aldur Jónasson ljósmyndari fóru á kreik einn hrollkaldan haustmorgun nú í byrjun október-mánaðar. Í leit að útigangsmönnum. Á vegum SÁÁ-blaðsins. Nú vetrar hröðum skrefum og alveg einstaklega nöturlegt að vera heimilislaus. Leitin tók ekki langan tíma. Nánast má ganga að sjúklingunum sem halda til á götunni vísum. Leið lá niður á Austur- völl og fyrir framan Nasa stóð Van-bifreið. Gamalmenni fyrir aldur fram „Mikill meirihluti þeirra sem við sinnum eru alkóhól- istar af gamla skólanum,“ segir Hugrún Guðmunds- dóttir borgarvörður. Hún tilheyrir fjögurra manna teymi Reykjavíkurborgar, í samstarfi við lögreglu, sem fer um borgina og hugar að útigangsmönnum; keyrir þá milli staða, kemur þeim í Dagsetur úti á Granda, sem borgin rekur í samstarfi við Rauða krossinn, á slysavarðsstofu eða til lögreglu ef svo ber undir, já, eða þá í hendurnar á SÁÁ mönnum og þá á Vog. Valgerður Rúnarsdóttir, læknir SÁÁ á Vogi, þekkir þennan hóp vel. „Jújú, þeir koma hér oft og endurtekið.“ Þetta er hópur dagdrykkjumanna, margir hverjir hafa drukkið og dópað frá sér heilsuna og eru í raun, margir hverjir, orðnir gamalmenni fyrir aldur fram. „Þegar þú er orðinn eins og gamall maður en samt ekki 67 ára gamall er aðgengi að hjúkrunar- heimili ekki gott þó þú þurfir helst á því að halda.“ Hugrún var á ferð ásamt félaga sínum, Arnaldi Mána Finnssyni, og tíðindamenn Edrú fengu að hoppa upp í bílinn sem þau hafa undir starfsemi þá sem borgar- verðir sinna. Hugrún og Arnaldur höfðu fengið boð um það frá lögreglu að illa drukkin kona væri í reiði- leysi á Tryggvagötunni, hjá Nausti, en þegar til kom fannst hún ekki. Allir út yfir daginn Þrátt fyrir norðangarra voru heimilislausir alkóhól- istar engu að síður að koma sér fyrir á bekkjum við Austurvöll. Dúðaðir; í úlpum, með húfu, trefil og Harður heimur vímu- sjúkra á götunni Sjúkleg áfengisneysla skilar ríkissjóði miklum hagnaði Réttlæti Nýlegar bandarískar rannsóknir hafa í fyrsta sinn kortlagt áfengis- markaðinn og brugðið upp mynd af því hvernig áfengisneysla dreifist á ólíka þjóðfélagshópa. Niðurstöð- urnar sýna að áfengismarkaðurinn byggist á sjúklegri neyslu tiltölulega fámenns hóps áfengis- og vímuefna- sjúklinga sem skaða heilsu sína og lífsgæði sjálfra sín og fjölskyldna sinna með drykkjunni. Þegar nánar er rýnt í þessar rannsóknir kemur svo í ljós að það 2,5 prósent þeirra sem kaupa áfengi drekka 26 prósent af öllu áfengismagni í land- inu. Þetta er veikustu alkóhólistarnir, þeir sem eru í sjúkustu neyslunni. Niðurstöðurnar eru þessar:  20% fólks drekkur 88 prósent alls áfengismagnsins. Þetta eru áfengis- og vímuefnasjúklingar og annað of- drykkjufólk.  80% fólks drekkur 12 prósent af áfengismagninu. Neysla hófdrykkjufólksins er hverfandi hluti af heildarmyndinni. Áfengi skaðar ekki hófdrykkjufólkið, sem drekkur rauðvín með steikinni. En það leggur í rúst heilsu og líf þeirra 20 prósenta sem standa undir öllum þorranum af áfengisvið- skiptum. 20% fólks dRekkuR 88% af áfengismagninu 80% fólks dRekkuR 12% af áfengismagninu 2,5% fólks dRekka 26% af áfengismagninu sá hópuR sem eR veikastuR af alkóhólisma og veRst settuR eRu útigangsmenniRniR, dagdRykkjufólk sem eR oRðið gamalt um alduR fRam, að niðuRlotum komið. valgeRðuR RúnaRsdóttiR, lækniR hjá sáá, segiR að það sé í sjálfu séR enginn vandi að afeitRa menn en það getuR Reynst skammgóðuR veRmiR þegaR allt sækiR í sama faRið aftuR. sáRlega skoRtiR úRRæði sem duga. BoRgaRyfiRvöld geRa hvað þau geta til að Bæta úR BRýnustu neyðinni. pyttlu við höndina. Að sögn voru þeir að koma úr gist- iskýlinu í Þingholtsstræti. Þar er rekin neyðargisting fyrir fólk sem ekki getur gengið að öðrum úrræðum, svo sem gistingu í smáhýsum úti á Granda sem kom- ið hefur verið upp fyrir þennan hóp; fjórum stykkjum og rúma, ef tveir gista saman, átta manns alls. Um þau þarf að sækja sérstaklega með fulltingi félags- ráðgjafa og/eða þjónustumiðstöðva – menn ganga þar ekki inn beint af götunni. Starfsmaður skýlisins í Þingholtsstræti, þar sem er rými fyrir 20 karlmenn, sagðist ekki mega tjá sig um starfsemina en sagði þó það að þeir sem þangað leita séu mjög illa á sig komn- ir margir hverjir. Og ekki alveg allir í neyslu, því það standi misjafnlega á hjá fólki: Fólk sem kannski er að skilja, skítblankt, sumir eigi við geðrænan vanda að stríða en að stofni til eru þetta alkóhólistar og/eða vímuefnasjúklingar. Í neyðarskýlinu fá menn nær- ingu en yfir daginn, milli tíu og fimm, er lokað og næturgestum gert að yfirgefa skýlið. Þá eru Hugrún Þegar haustar reynist erfiðara en áður að draga fram lífið á götunni, eins og gefur að skilja. Ljósmynd/Hari. Þetta er þakk- látt og gott fólk. Fínar og góðar mann- eskjur þegar sá gállinn er á þeim. Frábært að fá að eiga í samskiptum við þetta fólk. alþjóðleg Ráðstefna ungRa í aa fólk úR öllum heimsins hoRnum væntanlegt sjötugur getur talist ungur í aa Fyrstu helgina í janúar, eða strax á næsta ári, stendur mikið til í Vonar- húsinu; alþjóðleg ráðstefna – Young People in AA – búist er við fjölda manns víða að. „Það er misskilningur að „Young People in AA“ sé einungis ungt fólk. Skilgreiningin er sú að þú hafir orðið edrú undir 30 ára aldri, þú getur þess vegna verið sjötugur og talist til þessa hóps,“ segir Arna Bech. Hún, ásamt með öðrum stendur fyrir ákaflega spennandi ráðstefnu í Vonarhúsinu fyrstu helgina í janúar á næsta ári; norræn ráðstefna sem þó telst alþjóðleg því væntanlegir eru þátttakendur víða að, meðal annars frá Bandaríkjunum og Bretlandi. En frá Norðurlöndum eru væntanlegir um 150 þátttakendur – en ráðstefnan er öllum opin. Þeim mun lengur sem tekst að fresta því að unglingar hefji áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að fólk þrói með sér alkóhólisma. Og þeim mun fyrr sem fólk ákveður að takast á við þennan sjúkdóm, þeim mun meiri árangurs er að vænta. Þetta er því sérlega glæsilegur hópur sem von er á til landsins. Að sögn Örnu var stofnað til þessa fyrirhugaða ráðstefnuhalds af ungu fólki í AA fyrir ári og er Ísland fyrsta landið sem stendur fyrir ráðstefnu af þessu tagi. Undirbúningurinn er mikill enda í mörg horn að líta, svo sem að fá afslátt á hótelum þar sem hópurinn dvelur dagana sem ráðstefnan stendur yfir. „Þetta er mjög spennandi. Fyrsta ráðstefnan sem byggir á þessu kerfi. Young People in AA er alþjóðlegt fyrirbæri. Við erum framarlega á þessu sviði. Hér er mikið AA-starf í gangi miðað við hversu lítil þjóð við erum. Við hlökkum til að sýna hversu víðtækt 12 spora kerfið á Íslandi er,“ segir Arna. - jbg 4 OKTÓBER 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.