Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 05.10.2012, Blaðsíða 66
E nn ein útgáfa eru möbíusar-kragarnir eða snúningskrag-arnir. Þeir eru með hálfum snúningi þannig að það er nauðsyn- legt að þeir séu með prjóni sem er eins á réttunni og röngunni. Einfald- asta leiðin til að gera þá er að prjóna trefil fram og til baka og lykkja svo saman endana með réttuna fram á öðrum endanum og rönguna fram á hinum. Svo er einnig hægt að fitja upp með sérstakri möbíusaraðferð sem hægt er að kynna sér í bókum og á netinu. En þá er kraginn prjón- aður í hring. Margir hafa lent í því að fitja upp á hringprjón, tengja í hring og prjóna og uppgötva svo að snúist hefur upp á fitina. Þá verður ekki til möbíusarsnúningur heldur snýst fitin um heilhring. Þannig að það er því miður ekki hægt að nota þá leið til að prjóna hefðbundinn snúningstrefil. Betri en treflar? Kostirnir við kraga umfram trefla eru ótvíræðir. Þeir tolla betur á manni og ekki þarf að hnýta. Á þessu eru erlendir karlmenn búnir að átta sig, alla vega þeir sem fylgj- ast með tískunni svo fylgja hinir væntanlega á eftir. Við konurnar eru opnari fyrir nýjungum enda er önnur hver kona með kraga, strokk eða hringtrefil í dag. En það er eng- inn sem segir að þetta sé ekki líka fyrir herrana. Það skemmtilega við alla þessa kraga og hringtrefla er að þetta eru einföld verkefni og fljótleg og henta því þeim sem eru að byrja í prjóni og svo öllum hinum sem vilja hafa þægilegt verkefni á prjónunum, t.d. fyrir framan sjónvarpið. Svo er þetta vinsæl tækifærisgjöf. Þeir prjónarar sem vilja hafa prjónaskapinn aðeins meira krefjandi geta sett kaðla- eða gatamunstur í kragana. Nóg er til af munsturbiblíum fyrir prjón sem auðvelt er að nýta sér því kragarnir eru yfirleitt svo einfaldir í sniðinu. Notið garn við hæfi Garnvalið skiptir heilmiklu máli. Hafið í huga þann sem á að nota kragann. Yfirleitt er verið að nota kraga til að halda á sér hita og því er ull eða ullarblöndur besti kost- urinn. En hvernig ull? Margir eru viðkvæmastir í hálsakotinu og því verður að velja mjúka ull fyrir þá. Aðrir geta notað hvaða ull sem er. Grófleikinn skiptir máli. Því fínna sem garnið er, því þynnri verður kraginn og því stærri þarf hann að vera ef hann á að halda hita. Þá er hægt að vefja hann saman svo hann verði þykkari. Ef þið eigið fíngert ullargarn sem ekki hefur komið að notum getið þið notað það tvö- eða þrefalt eða jafnvel splæst í kidsilk þráð og haft með til að fá mjúka og fallega áferð og gera bandið gróf- ara. Um að gera að prjóna prufur og sjá hvernig mismunandi sam- setningar koma út. Þá getið þið í leiðinni kannað hvaða prjónastærð hentar og mælt prjónfestuna. Gróf- ara garn er svo auðvitað þykkara og oft, en ekki alltaf þyngra. Eðl- isþyngd getur verið mismunandi á milli ullartegunda og það hefur áhrif á hversu þungur kraginn verður og hve drjúgt garnið er í prjóni. Allt þetta þarf að spá í og langflestar sérverslanir með garn hafa starfsfólk sem er reiðubúið að aðstoða ykkur við valið ef á þarf að halda. Gróft skal það vera Í meðfylgjandi uppskrift varð gróft og gljúpt garn fyrir valinu. Gljúpt garn er loftmikið og fyllir vel upp í lykkjuna og er þá hægt að prjóna á grófari prjóna en ella. Þessi kragi er svona hámark tveggja kvölda verkefni fyrir vana prjónara, enda notaðir prjónar númer 10. Kannski þrjú kvöld ef þið gerið hann lengri. Myndin sýnir stuttu/breiðu út- gáfuna og þá er hægt að setja hann upp á höfuðið ef vill. En svo er líka hægt að gera hann lengri og mjórri og vefja oftar um hálsinn. Munstrið Hér er notað munstur sem lítur út eins og kaðall en er það ekki. Þetta er kallað faux cable á ensku eða falskur kaðall og gefur skemmtilega áferð. Í stað þess að víxla lykkjum eins og í köðlum er steypt yfir þrjár lykkjur og aukin út lykkja í miðjunni með uppslætti. Einfalt og fljótlært. 50 prjónað Helgin 5.-7. október 2012  NauðsyNlegt skjól fyrir vEturinn Guðrún Hannele Henttinen hannele@ storkurinn.is Kragar og strokkar Það er komið langt fram á haust og við erum farin tína úr skápum og skúffum vetrarfatnaðinn, húfurnar, vettlingana, treflana eða kragana sem hafa orðið æ vinsælli undanfarin misseri. Eða hvað eigum við annars að kalla þennan fylgihlut sem enskumælandi kalla snood austanhafs en cowl vestanhafs. Þetta getur verið eins og trefill sem er prjónaður á lengdina og síðan saumaður eða lykkjaður saman og myndar þannig hringtrefil ef hann er mjór og langur og vafinn tvisvar um hálsinn. Ef hann er styttri og breiðari og hafður einfaldur um hálsinn er hann oftast kallaður kragi. Svo er hægt að fitja upp alla breidd kragans og prjóna í hring og þá erum við með strokk, breiðan og stuttan eða mjóan og langan. Kostirnir við kraga umfram trefla eru ótvíræðir. Þeir tolla betur á manni og ekki þarf að hnýta. Mynd Hari Langholtsvegur 126 · 104 Reykjavík · Sími 553 3450 · www.spilavinir.is Verslunin er opin virka daga 11-18 og laugardaga 11-15 5 ára af öllum spilum & púsluspilum 15% afsláttur 4. - 6. október 5 áraSpilavinir eru Stærð (athugið að kraginn gefur vel eftir í báðar áttir) Stuttur og breiður (hafður einfaldur um hálsinn) breidd um 30 cm lengd um 80 cm Langur og mjór (hafður tvöfaldur um hálsinn) breidd um 20 cm lengd um 120 cm efni Paloma frá Debbie Bliss (60% baby alpca, 40% merínó ull) Báðar stærðir 3 x 50g Prjónar 60-80 cm hringprjónn nr 10 Prjónfesta 12 lykkjur og 18 umferðir = 10 cm í sléttprjóni á prjóna nr. 10. 14 lykkjur og 16 umferðir = 10 cm í munsturprjóni á prjóna nr 10. Breytið um prjónastærð ef prjónfestan passar ekki svo kraginn verði ekki of laust eða fast prjónaður. Orðalykill L = lykkja, lykkjur S = slétt, sléttar B = brugðin, brugðnar ó = óprjónuð Y = uppsláttur sty = steypa óprjónuðu lykkjunni yfir 1ó+1S+Y+1S+sty = 1 lykkja óprjónuð fram frá, 1 lykkja slétt, uppsláttur, 1 lykkja slétt, steypa óprjónuðu lykkjunni yfir 3 lykkjur (1S+Y+1S). KRagINN Athugið að fyrri talan á við um stutta, breiða kragann, en seinni talan um lengri, mjórri kragann. Fitjið upp 41-33L með prjónum nr. 10. Prjónið fram og til baka. Kantlykkjurnar, fyrsta og síðasta lyk- kja í umferð eru prjónaðar sléttar á réttunni og á röngunni. Þær eru taldar með í munstrinu hér fyrir neðan. Munstur: 1. umferð (réttan): 1S, *3S, 1B. Endur- takið frá * þar til 4L eru eftir, 4S. 2. umferð (rangan): 1S, *3B, 1S. Endur- takið út umferðina. 3. umferð: 1S, *1ó+1S+Y+1S+sty, 1B. Endurtakið frá * þar til 4L eru eftir, 1ó+1S+Y+1S+sty, 1S. 4. umferð: Eins og 2. umferð. Þessar 4 umferðir eru endurteknar þar til stykkið mælist 80-120 cm eða garnið klárast. Reiknið með að eiga nóg til garn til að lykkja eða sauma saman endana. Það kemur ágætlega út að lykkja saman svona gljúpt garn þó að annar endinn sé með uppfit. Gangi ykkur vel! KRagINN Hönnun: Guðrún Hannele 67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent okt.-des. 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.