Fréttatíminn


Fréttatíminn - 15.06.2012, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 15.06.2012, Blaðsíða 46
46 bækur Helgin 15.-17. júní 2012  RitdómuR FeluleikuR og læRlinguRinn Ljósmyndabókin Iceland – Small World eftir Sigurgeir Sigurjónsson gerir harða atlögu að toppsætinu á metsölulista Eymundsson sem tekur til síðustu viku. Ekki tókst henni þó að skáka Hungurleikjabókinni Eldar kvikna í þetta skiptið. Vinsæl ljósmyndabók  RitdómuR sýslumaðuRinn sem sá álFa e rnir Snorrason lést fyrir fáum vikum, virtur vísindamaður og frumkvöðull, hans er sárt saknað af samverkamönnum, vinum og vanda- mönnum. Ernir var farinn til náms í sálarfræði 1968 þegar eina heftið af Núkynslóð kom út, fagurlega umbrotið af Jóhannesi heitnum Ólafssyni, prentað í Letri af Sigurjóni, nánst besta dæmið í útliti um einhverjar gárur á Íslandi af umbrotum þessa tíma í útliti á borð við Oz, International Times, Superlove og þeim blöðum sem lengst voru tengd við „undergroundið“. Ég minnist þess ekki að Ernir hafi átt efni í heftinu sem var að stærstu lagt undir sögu Megasar, Einsog kirkja. En þarna sá maður nafn hans fyrst. Hann átti lengst af starfsævi sinnar við annan skáldskap en sögu á blaði þó hann gæfi út eina skáldsögu, Óttar. Það kom því á óvart að hann skyldi leggja á það áherslu á sínum hinstu dögum að gefa út skemmtisögu með krimmabragði; Sýslu- manninn sem sá álf, stutta, kátlega hrað- suðu af bók svona eins og rétt til áminn- ingar um gamalt erindi sem hann hafði ekki gefið sér tíma til að sinna, sköpun sinni veitti hann í annað. Opinber starfsmaður hefur nýlega misst konu sína, verður fyrir áfalli og hefur varla náð sér þegar hann leitar uppi æskuást sína og nágranna, glæsilega konu mörgum árum yngri sem á í fjarbúð við bónda sinn í Afríku. Erindi mannsins við konuna er að ganga frá skilnaði og hefja við hana nýtt samband, opna fyrir vináttu sem hann sárlega þarfnast til að forða sér frá sálarháska. Konan er til. Sýslumanninum (hann er myrkfælinn og er ásóttur af álfum í svefni) tekur að sér einfalt sáttaverkefni fyrir vin sinn dóms- málaráðherrann og áður en hann veit af vindur það upp á sig; honum er falið að finna alla milljarðana sem hurfu úr bankakerfinu í hruninu. Ég kallaði Sýslumanninn skemmtisögu – hún er stendur vel undir nafni, einföld, gamansöm, sýnir ritfærni án þess að nostrað sé við stíl eða söguefnið. Hér er einföld tilraun til að setja saman söguefni, koma með tilgátu, lofa samfélag manna og fjölbreytileika, fjalla um hesta og ræktun þeirra og fjölbreytileika mannlífs í dreif- býli, græskulaust þótt í vaxandi æsingi í söguþræði falli einn maður og leikurinn berist víða. Höfundurinn er hrifinn af til- teknum heimspekingum frönskum, slettir latínu og hefur dýran smekk á vínum og mat. Þess njóta sýslumaðurinn og vinkona hans. Það er margt fallegt í þessari sögu sem er einhverskonar vink til okkar sem getum þrætt hillurnar enn um stund í leit að lesefni frá manni sem er farinn. Því er þó ekki að neita að sagan verður einfaldari, ágripskenndari eftir því sem á líður og því dæmi um þverrandi mátt, síðustu vikur. Á að gefa slíkt efni yfirleitt út? Viljum við ekki öll virða óskir okkar nánustu þar til yfir lýkur? Í formála víkur Ernir, kallar bókina kveðju til sinna nán- ustu og óskar þess að hún veiti lesendum svolitla gleði. Sem hinsta kveðja hefur bókin þannig yfir sér bjartan gáska þess sem á hinstu stundi beinir því til hinna að nota tímann til gleðinnar sem er falleg kveðja þó hún sé falin í óalvarlegum og ágripskenndum reyfara. Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is Ein saga að lokum Annað hefti ársins af Tímariti Máls og menningar í ritstjórn Guðmundar Andra Thorssonar er komið út. Heftið birtir margar athyglisverðar greinar: Rannsóknir Eiðs Kvaran og Jens Pálssonar, frumherja í líkamsmannfræði hér á landi eru skoðaðar í grein eftir Gísla Pálsson og Sigurð Örn Guð- björnsson, Árni Finnsson ræðir stefnu íslenskra stjórnvalda í tilefni af Ríó+20 ráðstefnunni sem haldin er dagana 20. til 22. júní, Brynhildur Þórarinsdóttir fjallar um rannsóknir á lestrarsiðum barna og unglinga og spáir í framtíð lesturs í landinu, Brynja Þorgeirsdóttir rekur birtingarmyndir Gosa í sögugerðum frá ólíkum tímum, Sigurður Pálsson rekur sköpunarssögu Utan gátta og Þorsteinn Antonsson segir af Erlendi í Unuhúsi. Þá er í heftinu að finna andsvör Ara Trausta Guðmundssonar við umfjöllun Æsu Sigurjónsdóttur í Listasögu Íslands um Guðmund frá Miðdal og Árni Björnsson skoðar sinn þátt í Kommúnistum Hannesar Hólmsteins. Þá eru í heftinu ljóð og prósatextar auk ritdóma. -pbb Mikilvægar greinar í TMM Reynir Ingibjartsson ferðalangur hefur tekið sam- an þriðju bók sína um gönguleiðir á suðvesturhorn- inu. Hinar fyrri röktu gönguleiðir í Reykjavík og á svæðinu kringum Hvalfjörð. Í þessari þriðju bók sem Salka gefur út og er bæði skreytt myndum og kortum til skýringa fer Reynir um Reykjanesið eins og skaginn er kallaður nú á tímum. Alls tekur leiðarlýsing Reynis til 25 gönguferða, margar þeirra eru um fornar leiðir sem hafa á undan- förnum áratug verið þaulkannaðar af gönguglöðum lögreglumönnum og samferðamönnum þeirra. Þótt Reynir tíni margt fróðlegt til þá er rétt að benda á vef Ómars Smára og félaga: www.ferlir.is sem er einstakur. En margan kann að undra hversu merkilegt og söguríkt Reykjanessvæðið er og raunar enn ein áminning um að skaginn verði allur gerður að fólkvangi. -pbb Gönguleiðir um Reykjanesið Tess Gerritsen er amerískur hrollvekjuhöf- undur. Hetjan hennar er Jane Rizzoli sem starfar í Boston og á hér í slag við óvin sinn úr bókinni Skurð- læknirinn. Þess- ar sögur eru bráðóhugnan- legar, afbragðs vel þýddar af Hallgrími H. Helgasyni, með aðstoð færustu sérfræðinga því hér er sundrun holdsins notuð til að hressa upp hroll í lesendum svo ekki veitir af læknisfræði og meinafræði þekkingu. Þetta er spennandi stöff en allt innan marka greinarinnar og er ekki lesning fyrir viðkvæma. Bæði karlar og konur fá hér sinn skammt af grimmdarfýsn og kvalalosta, en ekki bara konurnar. Tess tekst á síðustu síðum að snúa á lesanda sem trúir ekki öðru en hann standi brátt á ystu brún og verði að kaupa eina bók til svo hann fái lausn. James Patterson kallar sig mesta krimmahöf- und í heimi og til að gera sem mest er hann tekinn að skrifa með öðrum; Liza Marklund skrifaði með honum Póstkortamorðin sem kom út í fyrra. Í Feluleik er meðhöfundur hans Michael Ledwidge. Magnea Matth- íasdóttir þýðir þessa einföldu spennusögu sem er klisju- kennd í meira lagi en spenn- andi þó. En flestallt sem hér er í boði eru dreggjar frá löngum tíma og úr mörgum boðum. Fátt sem meðalslak- ur amerískur lögguþáttur afgreiðir ekki á 45 mínútum. En einhverja kann að þyrsta í svona og þá er bara að vona að þeir fái ekki óbragð í munninn af blönduðum gömlum drykkjarföngum. -pbb Blekkingar og illvirki  sýslumaðurinn sem sá álfa Ernir Snorrason Sögur, 201 síða, 2012.  lærlingurinn Tess Gerritsen Vaka Helgafell, 357 síður, 2012. Ernir Snorrason James Pattersson  Feluleikur James Patterson og Michael Ledwidge JPV, 279 síður, 2012. Nýjung! D-vítamínbætt LÉttmJÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.