Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 11
Íslandsmótið í badminton fór fram í TBR húsinu í gær. Í gær varð Magnús Ingi Helgason Íslands- meistari í einliðaleik karla í badminton í fyrsta sinn. Hann bar sigurorð af Tryggva Nielsen í úrslitaleik með tveimur lotum gegn einni en báðir eru þeir úr TBR. Magnús Ingi vann tvær lotur en Tryggvi eina. Í einliðaleik kvenna varð Ragna Ingólfsdóttir Íslandsmeistari fimmta árið í röð en hún lagði Tinnu Helgadóttur í úr- slitum í tveimur lotum, báðar fóru 21-11. Ragna var sigursæl á mótinu og vann þrenn gullverð- laun. Í tvíliðaleik unnu Ragna og Katrín Atladótt- ir gullverðlaun en þær unnu Tinnu Helgadótt- ur og Helgu Jóhannsdóttur af miklu öryggi í tveimur lotum í úrslitaleik. Ragna og Katrín unnu fyrri lotuna 21-9 og hina 21-10. Þetta var því sami úrslitaleikur og í fyrra og úrslitin einn- ig á sama veg. Þá fagnaði Ragna einnig sigri í tvenndarleik ásamt Helga Jóhannessyni en þar lögðu þau systkinin Magnús og Tinnu Helgabörn í úrslit- um. Í tvíliðaleik karla urðu þeir Magnús Ingi og Helgi Jóhannesson Íslandsmeistarar með því að leggja þá Tryggva Nielsen og Svein Sölvason í úrslitum. Sú viðureign fór í oddalotu þar sem fimm síðustu stigin voru Magnúsar og Helga sem unnu oddalotuna 19-21. elvargeir@dv.is DV Sport mánudagur 28. mars 2007 11 Sport Mánudagur 2. apríl 2007 sport@dv.is Stjarnan tryggði Sér um helgina meiStaratitilinn í Dhl-DeilD kvenna þrátt fyrir að liðið eigi enn eftir að Spila þrjá leiki. blS. 16 ÍR-ingar eru á mikilli siglingu eftir sigur á Stjörnunni Þrefalt hjá rögnu og tvöfalt hjá Magnúsi Allt um leiki næturinnar í NBA NBA StjörnuStúlkur MeiStarar Íslandsmeistarar magnús Ingi Helgason og ragna Ingólfsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.