Baldur


Baldur - 10.06.1944, Blaðsíða 2

Baldur - 10.06.1944, Blaðsíða 2
54 B A L D U R íþróttir. Knattspyrnufélagið HÖrður 25 ára. Þann 27. maí s.l. var Knatl- spyrnufélagið Hörður 25 ára. Stol'nendur i'élagsins voru þessir 12 menn: ílelgi Guð- mundsson, bræðurnir Karl, Þorsteinn og Guðbrandur Kristinssynir, bræðurnir Iírist- ján og Jón Alberts, Axel Gísla- son, Þórhallur Leósson, Ölaí'ur Ásgeirsson, Dagbjartur Sig- urðsson og bræðurnir Hjörtur og Garðar Ólafssynir. Þórb. Leós var fyrsti formaður fé- lagsins. Hörður var upphaflega stofn- aður sem knattspyrnulelag og lagði fyrstu árin eingöngu stund á þá íþróttagrein. En á seinni árum fór hann að iðka fleiri íþróttir; leggur hann nú stund á frjálsar íþróttir, fim- leika, handknattleik og glímur og er nú fjölhæfasta íþróttafé- lagið á Vestfjörðum. Félagsmenn eru nú 213 kon- ur og karlar og er um helm- ingur þeirra yngri en 16 ára. Er þannig örugglega séð fyrir í'ramtið félagsins, því að þetta unga fólk tekur við þegar þeir eldri heltast úr lestinni af ein- hverjum ástæðum. Það má því óhætt fullyrða að félaginu sé tryggð glæsileg framtíð. 1 stuttri blaðagrein er ekki hægt að skrifa sögu Harðar, enda er þess ekki þörf. Félag- ið hefur nú gefið út fjölbreytt og myndarlegt blað í tilefni af aldarfjórðungsafmælinu. Er á- stæða til að hvetja bæjarbúa og aðra til að kaupa þetta blað og kynnast þannig sögu i'élags- ins og starfi. S.l. laugardag hélt Hörður afmæli sitt hátíðlegt með veg- legu og fjölmennu hófi að Uppsölum. Var þar matur veittur af mikilli rausn, ræður fluttar, sungið og að lokum var dans- að. Félaginu barst i'jöldi hcilla- skeyta frá einstaklingum og félögum og margar merkilegar gjafir. Gjafirnar voru þessar: Frá Iþróttasambandi Islands skj aldarmerki 1. S. 1. i eir sem viðurkenningarvottur fyrir mikið og gott starf. For- menn K. s. f. Harðar gáfu silfurbikar til verðlauna i drengjahlaupi Harðar er fram fari sumardaginn fyrsta ár hvert. Þeir bræður Leóssynir gáfu bikar úr silfri, sem heitir Leósbikarinn og Dagbjartur Sigurðsson, einn stofnandi ie- lagsins, gaf annan silfurbikar, sem talað var um að ldyti nafnið Dagbjartai-bikarinn. — Báðir þessir bikarar verða ^ verðlaunagripir í íþrótta- keppni. Þá gaf Knattspyrnufé- . Talið frá vinstri: Einar 0. Kristjánsson, dómari, Hjörtur Ólafsson, Matthías Sigurðsson, Karl Krist- insson, Helgi Guðinundsson, Þórhallur Leós, Jón Alberts, Guðbrandur Kristinsson, Þorsteinn Kristins- son, Dagbjartur Sigurðsson og Garðar Ólafsson. Sitjandi: Ólafur Kárason, markvörður. lagið Vestri félagsmerki Harð- ar útskorið í tré af Guðmundi l'rá Mosdal, hina mestu völund- arsmíði eins og að likum lætur, og varaforseti bæjarstjórnar Hannibal Valdimarsson aí'- henti félaginu, í umboði bæjar- sjóðs, 10 þús. kr. áætlað fram- lag bæjarins til íþróttamála á þessu ári. Stjórn Harðar skipa nii: Karl Bjarnason formaður, Pét- ur Þórarinsson varaform., Guð- riður Matthíasdóttir ritari, Her- bert Sigurjónsson gjaldkeri, Sveinbjörn Kristjánsson fjár- málaritari, Sigriður G. Haga- lín og Þórður Kristjánsson meðstjórnendur. Fjármálarit- arinn Sveinbjörn Kristjánsson er nú fluttur úr bænum og gegnir Kristmundur Gíslason störfum í hans stað. Baldur þakkar Herði mikið og gott starf á undanförnum árum og óskar honum allra heilla í framtíðinni. Iþróttabandalag Isfirðinga var stofnað hér á Isafirði 23. apríl s.l. Undirbúning stofnunarinnar f. h. íþrótta- ráðs Vestfjarða önnuðust þeir Friðrik Jónasson, kennari, og Sverrir Guðmundsson banka- gjaldkeri. Friðrik Jónasson var kjörinn fundarstjóri. Starfsvið bandalagsins, sem hlaut nafnið Iþróttabandalag Isfirðinga skammst. I. B. I., 'er íþróttahérað Isaf j arðar og nær yfir Isafj.kaupstað; Eyrarhr., og Hólshr. í Norður-Isafjarðar- sýslu og Suðureyrarhrepp í Vestur-Isafjarðarsýslvu Þessi félög tóku þátt í stofn- un bandalagsins: Ivnattspyfnu- l'élögin Hörður og Vestri, Isa- firði, Skiðafélag Isafjarðar, fjarðar, Skátafélagið Ein- herjar, og Málfunda- og íþróttafélagið Ármann í Skut- ulsfirði og sendu þau öll full- trúa á stofnfund, ennfremur eru: Kvenskátafél. Valkyrjur og U. M. F. Bolungarvíkur stofnendur bandalagsins, en þau sendu ekki fulltrúa, og íþróttal'él. Stefnir á Suðureyri mun ganga í bandalagið. á stofnfundinum voru sam- þykkt lög bandalagsins, kosin stjórn o. fl. Formaður var kosinn Sveri’- ir Guðmundsson og meðstjórn- endur, er skiptu þannig með sér verkum: Varaformaður Karl Bjarnason, verkstjóri, rit- ari Hafsteinn 0. Hannesson bankaritari, gjaldkeri Magnús Konráðsson, rafv.nemi, og með- stjórnandi Guðm. Sveinsson vélstjóri frá Góustöðum. Vara'stjórn: Sigurjón Hall- dórsson, Tungu, Halldór Er- lendsson, íþróttakennari, og Sveinn Elíasson, bankaritari. I héraðsdómstól voru kosnir: Friðrik Jónasson, kennari, Ágúst Leós, kaupm., og Salo- mon Hafliðason, trésmiður. Varamenn: Herbert Sigur- jónsson, bakari, Kjartan J. Jóhannsson læknir og Maria Gunnarsdóttir íþróttakennari. Fulltrúar á þing I. S. I. í sumar voru kosnir: Sverrir Guðmundsson og Hafsteinn 0. Hannesson. Til vara: Magnús Konráðsson og Guðm. Sveins- son. Á fundinum kom fram svo- hljóðandi tillaga, og var hún samþykkt í einu hljóði: „Fulltrúafíindur I. B. 1. skor- ar á stjórn 1. S. 1. að beita sér fijrir því að fá tögum um skemmtanaskatt breytt þannig, að allur skemrntanaskattur renni til viðkomandi bæjar- og sveitarfélaga og að skattinum verði varið til þess að reisa íþráttamannvirki og styrkja aðra æskulýðsstarfsemi i við- komandi héruðum. Fundurinn lítur svo á að brýna tiauðsyn beri til að bæta nú þegar skil- yrði til íþróttaiðkana í land- inu, og tryggasta leiðin til þess sé að bæjar- og sveitarfélög- unum sé tryggður fastur tekju- stofn til þessara framkvæmda'‘ Hlutverk I. B. I. Iþróttabandalag Isfirðinga er stofnað samkvæmt íþróttalög- um ríkisins og lögum I. S. 1. og U. M. F. I., en samkvæmt þeim skal landinu skipt í íþróttahéruð, og skulu íþrótta- og ungmennafélög á félags- svæði þessu mynda með sér samband. Tilgangur þessara samstjórna er m. a.: Að hafa forystu íþróttamála innan héraðsins, efla samvinnu íþróttaiðkenda og vera full- trúi þeirra gagnvart öðrum héraðssamböndum, að vinna að byggingu íþrótta- mannvirkja, viðhaldi á þeim og endurbótum, að sjá um rekstur íþróttamannvirkja ef með þarf, að koma á framfæri styrk- umsóknum íþróttafélaga til ríkis-, bæjar- og sveitarfélaga, að úthluta styrktarfé til kennslu verklegrar eða bók- legrar, að útvega kennara og eign- ast tæki til þjálfunar og fræðslu, að sjá um dómsúrskurð á- greiningsmála og kærumála, sem upp kunna að rísa meðal félaga og keppenda, að gefa umsögn um íþrótta- mál, íþróttamannvirki o. s. frv. að vinna að útrýmingu skað- nautna og hafa samvinnu um <5 ( *

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.