Árroði: blað félags ungra jafnaðarmanna. - 19.01.1936, Blaðsíða 1

Árroði: blað félags ungra jafnaðarmanna. - 19.01.1936, Blaðsíða 1
* STAKFSEMI SKIPULAG SAMHELDNI A R BLAD FÉLAGS R UN GRA I. árgangur Reykjavík, 19. janúar 1936. O Ð I JAFNAÐARMANNA 1. tölublaft Ávarp til lesendanna. í tilefni af því, að Félag ungra jafnaðarmanna heldur í dag 100. fund sinn, þótti hlýða að vanda alveg sérstaldega vel til hans. Verður fund- urinn haldinn kl. 3 Yg í dag í Alþýðu- húsinu ,,Iðnó“ og boðaður með vand- aðri dagskrá, eins og sjá má annars staðar hér í blaðinu. Fundinum er ætlað að kynna starfsemi vvngra jafnaðarmanna að nokkru og hvetja æskulýðinn til þess að skipa sér um Félag ungra jafnaðarmanna og starfa undir merki þess. F. U. J. hefir undanfarin ár haldið uppi inanfélagsblaði, sem heitir „Ár- roði“. Hlutverk þess hefir verið eins og annara slíkra blaða að gefa fé- lögunum tækifæri til að skrifa um eitt og annað, sem þeim þykir hlýða og hljóta af æfingu í ritlist. I dag kemur „Árroði“ í fyrsta sinni til þín, lesandi góður, í nafni F. U. J., til að kynna sig og félagið meðal Reykvíkinga, einkum unga fólksins, og væntir hann þess, að sá málstaður, sem hann boðar, eigi svo rík ítök víða meðal fólksins, að honum verði almennt veltekið. Og verði svo, er ekki ólíklegt, að „Árroði“ leiti uppi lesendur sína öðru sinni, ef allt fer að óskum. „Árroði“ óskar síðan íslenzku þjóð- inni giftu og gengis á nýbyrjuðu ári. Stefna, starf og STEFNAN. Félög ungra jafnaðarmanna byggja starf sitt á socialisma, sem felur í sér lausn þeirra vandamála, sem sífellt steðja fastar að núverandi þjóðskipulagi. Frá sjón- armiði jafnaðarmanna er stéttaskiptingin af- leiðing af því, að kapitalisminn ræður ríkj- um og með þróun hans, sem fyrst og fremst birtist í samdrætti auðsins utan um atvinnu- og verzlunarhringa einstakra auðjötna, hverf- ur meginþorri manna niður í djúp ánauðar og ósjálfstæðis um afkomu sína. A frum- vaxtarárum hins kapitalistiska þjóðíélags var auðurinn dreifður milli fjölmargra einstak- linga, sem í krafti hans gátu keppt í nokkurn- veginn jafnri aðstöðu um hin ónumdu gæði lands og lagar. Á þeim tíma var þessi fjöl- mennisaðstaða til heilbrigðrar samkeppni spori á framtakshneigð einstaklingsins og skapaði örar framfarir. Þessi oftast nær hóf- lega samkeppni, sem venjulegast braut ekki í bága við eðlileg lögmál, var eitt af aðal- einkennum hins smáborgaralega þjóðfélags á uppgangsskeiði þess. En jafnvel á þessu blómatímabili í sögu borgaralega þjóðfélags- ins, sáu framsýnir menn, að í háttum þess og skipulagi öllu fólust rætur þeirra meina, sem á sínum tíma myndu verða því að falli. Hin hárfína og nákvæma rannsóknaraðferð — Marxisminn —, kenndur við höfund hans, Karl Marx, sýndi það ljóslega og sannaði fyrirfram allt það, sem nú er komið á dag- inn, að þróun núverandi þjóðskipulags myndi smám saman hrekja af stalli hina smáborg- aralegu samkeppni, og á rústum hennar kæmu til að rísa upp stórir auðhringar, er öllu gætu ráðið á sviði viðskipta og allra framkvæmda. Að þessu sinni er ekki tækifæri til þess að fara nánar út í þetta hér, en það aðeins sagt,' sem nú blasir við augum, að hringa- auðvaldið með öllum sínum arðsugutækj- um hefir náð úr höndum smáborgaranna þeim möguleikum, sem þeir þó höfðu áður til að ráða afkomu sinni, og steypt þeim niður í launaþrældóm. Af þessu leiðir, að barátta verkalýðsins í dag stendur fyrst og fremst um það, að heimta að fullu frelsi til að lifa lífinu við þau kjör, sem honum er unnt að skapa sér, ef hann undandrátt- arlaust fær að njóta ávaxta iðju sinnar. markmið F. U. J. Ungir jafnaðarmenn standa í þe&ari frelsis- baráttu alþýðunnar við hlið eldri stéttarsyst- kina og horfa hugreifir til framtíðariunar, ódeigir að taka þátt í hverri þeirri o.ruslu við auðvaldið, sem getur fært þjáða alþýðu nær takmarki þess frelsis, sem henni er fyr- irheitið, ef hún stendur sameinuð og samvirk á baráttugrundvelli socialismans, sem felur í sér kraftinn til að leysa hana úr ánauð. Tak- mark vort er að leysa alþýðustéttirnar út úr þrældómshúsi auðskipulagsins. STARFIÐ. Til þess að félög ungra jafn- aðarmanna geti íullnægt því hlutverki sínu að safna um sig alþýðuæskunni óskiptrj, verða þau að haga starfi sínu svo, a£ það sé hvorttveggja í senn fjölbreytt og skemmti- legt og geti sem bezt svalað hinni margþættu félagsþörf unga fólksins. Af því leiðir það, að félögin þurfa að halda uppi heilbrigðu skemmtanalífi, svo að alþýðuæskan hverfi ekki inn í skemmtisali burgeisanna og verði þar fyrir eyðileggjandi spillingaráhrifum þess fólks, sem lifir á iðju vinnustéttanna og. mitt í iðjuleysi sínu leitar eðlishvötum sín- um svölunar í hóglífi og munaði. Það á að vera starf þeirrar æsku, sem tengd er blóð- bönaum við alþýðuna, og er arftaki þeirr- ar verklýðskynslóðar, sem nú er við aldur í baráttunni fyrir frelsi og fullum retti hinna undirokuðu, að vera sjálfri sér nóg um allt félagslíf og einangra það frá siðleysi borg- aranna. Þá þurfa félögin einnig að sjá svo um, að alþýðuæskan öðlist rétta þekkingu á þjóðfélaginu og fái réttan skilning á rök- um socialismans. Enginn getur orðið sterk- ur liðsmaður í starfi og baráttu verkalýðs- hreyfingarinnar, nema hann hafi fullkominn skilning á orsökum stéttaskiptingarinnar og hafi ætíð á reiðum höndum svar við spurn- ingunni hvers vegna hann er socialisti. — í félögum ungra jafnaðarmanna, eiga synir og dætur alþýðunnar að hertýgjast undir það hlutverk sitt að verða stríðsmenn nýrr- ar aldar. MARKMIÐIÐ. Markmið ungra jafnaðar- manna er hið sama og alþýðusamtakanna yfirleitt, að koma á socialismanum, þ. e..

x

Árroði: blað félags ungra jafnaðarmanna.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árroði: blað félags ungra jafnaðarmanna.
https://timarit.is/publication/1032

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.