Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Blaðsíða 74

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Blaðsíða 74
geta borið þær saman við íslenzku eintökin. Að þessu Ieyti hefur gjöf Áskels ómet- anlega þýðingu fyrir framhald grasafræðilegra rannsókna á safninu. Þetta er hin höfðinglegasta gjöf, sem safninu hefur hlotnazt, síðan er Jakob Karlsson gaf fuglasafn sitt, og stofnaði þarrneð náttúrugripasafnið. Þá hafa safninu verið gefin um 300 eintök, af um 250 tegundum íinnskra plantna. Gefandi er Grasasafnið í Helsinki. Hluti af þessu safni er óupplímdur, en sumt frágengið og mörg eintök virðast vera úr exsiccötum, svipuðum því sem áður var lýst. Oll eru eintökin vandlega nafngreind, af ýmsum færustu grasafræð- ingum Finna. Forgöngu um gjöfina mun prófessor Lindberg hafa haft. Er þetta hin ágætasta gjöf, og hafa Finnar þar enn sýnt vináttu sína til íslands, sem al- kunnug er. Árið 1966 gaf Þórir Sigurðsson menntaskólakennari safninu um 40 eintök grænlenzkra plantna, er hann hafði safnað það sumar á eyjunni Kulusuk á suð- austurströndinni. Sama ár gaf Kristján Rögnvaldsson garðyrkjumaður safninu um 30 eintök norskra plantna, er hann safnaði i Þrændalögum og í Jötunheimum sumarið 1964. Bergþór Jóhannsson grasafræðingur hefur gefið safninu allmargar tegundir mosa. Hjörleifur Kristinsson bóndi Gilsbakka í Skagafirði hefur gefið nokkrar teg- undir úr Austurdal, Guðmundur Sigurðsson bóndi Lundi í Fljótum hefur gefið plöntur þaðan, og loks hefur Helgi Jónasson grasafræðingur á Gvendarstöðum gef- ið safninu ýmsar sjaldgæfar tegundir. Grasasafnið á Akureyri hefur vaxið mjög mikið á siðustu árum (1963—67), bæði af áðurnefndum gjöfum, kaupum og söfnun. Nærri xnun láta, að meðalvöxtur safns- ins árlega sé um þrjú þúsund eintök. — Því miður er safnið enn vanmáttugt til mikilla plöntukaupa, og því mikilvægari eru gjafirnar fyrir þróun þess. Safnið þakkar innilega fyrir gjafirnar, og væntir að gefendur megi síðar sjá ávöxt þeirra. H. Hg. YFIRLIT UM TEGUNDIR HÁPLANTNA SEM FUNDIZT HAFA SÍÐAN 1948. Flóra íslands eftir Stefán Stefánsson, kom fyrst út árið 1901. Önnur útgáfa kom út 1924, endurskoðuð af liöfundinum. Þriðja útgáfan kom svo árið 1948, og var hún endurskoðuð af Steindóri Steindórssyni og fleirum. Nú eru bráðum liðin 20 ár frá því að síðasta útgáfa flórunnar kom út, og margt getur breyzt á skemmri tíma. Fer nú að verða mjög aðkallandi að hefjast handa unx nýja útgál'u, sem helzt þyrfti að hlaupa af stokkunum fyrir árið 1975, en búast má við því, að endurskoðun taki langan tíma, því margt þarf að atliuga og taka afstöðu til, fyrir nýja útgáfu, eigi hún að vera áreiðanlegt heimildarrit. Allmargar nafnbreytingar hafa verið gerðar á íslenzkum háplöntutegundum síðan 1948. Sést það bezt ef athuguð eru nöfnin í hinni nýju Flora Europaea, og borin saman við síðustu flóruútgáfu. Sumum kann að þykja þeir nýjungagjarnir í Evrópuflórunni, en mjög er hætt við því, að nafngiftir þeirra beri sigur af hólmi að lokum, enda þótt einstakar flórur reyni að streytast á móti breytingunum. 72 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.