Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Blaðsíða 22

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2013, Blaðsíða 22
jármál sveitarfélaga Skoða þarf rekstur sveitar- félaga frá A til ö Haraldur Líndal Haraldsson hagfræð- ingur hefur unnið við endurskipu- lagningu á fjármálum og rekstri sveitarfé- laga á undanförnum árum. Að mati Haraldar eru jákvæðir hlutir að gerast hjá sveitarfélögum bæði í skuldamálum og rekstri. „Þar sem ég þekki til eru sveitar- félög að taka á vandanum," segir hann. „Það þarf að greina vandann til þess að geta tekið á honum." Sveitarstjórnamál ræddu við Harald í tilefni af fjármála- ráðstefnu sveitarfélaga um starf hans og stöðu sveitarfélaga á íslandi í þátíð, nútíð og framtíð. Haraldur segir að mörg sveitarfélög hafi nálgast þetta verkefni á nýjan og annan hátt en gert hafi verið t.d. hjá ríkissjóði og hjá sveitarfélögum hér áður fyrr. „Mín skoðun er að ógerningur sé að ætla að skera eins mikið niður og ríkið hefur verið að gera á undanförnum árum. Við erum alltaf að sjá dökku hliðarnar af þessum mikla niður- skurði og þá ekki síst í heilbrigðismálun- um." Hann segir að hjá sveitarfélögunum hafi verið unnið með öðrum hætti. „Við höfum skoðað rekstur sveitarfélaganna alveg frá A til Ö og stuðst mikið við samanburð á milli sveitarfélaga. Við þessa vinnu höfum við horft mikið til þeirra sveitarfélaga sem hafa verið að gera hlutina best og gert tillögur í samræmi við það. Nokkur sveitarfélög hafa t.d. verið að lækka launakostnað á milli ára. Auðvitað er Ijóst að þegar launakostnaður lækkar kemur það í sumum tilfella niður á starfsmönnum. En hægt hefur verið að gera þetta m.a. með því að sýna fram á að launa- kostnaður hafi verið hærri en hjá öðrum sam- bærilegum sveitarfélögum. Þess vegna er m.a. erfiðara að gagnrýna þessar aðgerðir." Misræmi í launagreiðslum sveitarfélaga Haraldur segir launakostnað stóran hluta í rekstri sveitarfélaga. Sum sveitarfélög séu með of mörg stöðugildi og/eða hafi verið að borga laun umfram kjarasamninga. Þar sé oft um að ræða sveitarfélög sem eigi í fjárhags- vanda. „Það ríkir ákveðið misræmi í launa- greiðslum á milli sveitarfélaga sem eykur rekstrarkostnað sumra þeirra meira en þyrfti að vera. Það þarf að vera meira samræmi þarna á milli. Maður spyr sig af hverju sveit- arfélag í góðum rekstri og engum fjárhags- vanda telur sig ekki hafa efni á eða skyldu til að borga ákveðin laun sem sveitarfélag sem er í vanda er að borga. Þegar við höfum farið yfir rekstur sveitarfélaga höfum við beitt þessum rökum, þ.e. þessar launagreiðslur eru ekki samkvæmt kjarasamningum í sum- um tilfella. Ég held að þetta stafi alla vega stundum af því að fólk veit ekki betur og heldur að sveitarfélögunum beri að gera þetta. Ég held að þetta skýri að hluta ástæðu þess að hlutfall launa af tekjum sveitarfélaga getur verið nokkuð mismunandi á milli sveit- arfélaga." Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur. 22

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.