Hús & Búnaður - 01.03.1967, Blaðsíða 1
Hús&íl
Búnaður
MARZ 1967
LÁHDSBOKA'SAí ■'
272502
ÍSLAHDS
Við kynnum hér vestur-þýzkar Leicht eldhús-
innréttingar, sem nýlega eru komnar á mark-
aðinn hér. Að því er bezt verður séð eru þœr
einkar snotrar og bjóða upp á ýmsar nýjungar.
Skápana, sem eru plasthúðaðir að utan og
innan, er auðvelt að gera hreina, auk þess
sem það sparar alla málningu og undirvinnu
við innréttinguna. Skáparnir sjálfir fást í 5
litum en borðplatan í fjölmörgum og getur
fólk valið sjálft eftir geðþótta og lit á veggjum.
Skáparnir eru til í mismunandi stœrðum og
gerðum, sem hœgt er að panta og auka við
eftir þörfum og fjárhagslegri getu. Bezt vœri
þó fyrir fólk, sem gœti ekki fengið alla inn-
réttinguna i einu, að gera teikningu að henni
fyrirfram. Skáparnir eru dregnir út og renna
á sleðum svo þeir eru léttir þótt nokkur þungi
hvili í þeim og ekki þarf að beygja sig inn
undir borðið til að komast í hillurnar. Þessa
skápa er einnig hœgt að fá með hentugum
geymslurekkum eftir því til hvers á að nota þá.
I hilluskápum er millibilið stillanlegt á fjöl-
breyttan hátt. Skápalœsingar eru í lömunum
°g standa því ekki til óþœginda út í skápana
sjálfa, þegar tekið er út úr þeim eða látið
inn I þá. Til að losna við skelli, þegar hurðun-
um er lokað, er komið fyrir loftfylltum gúmmí-
listum milli stafns og hurðar. Afgreiðslufrest-
ur mun vera um 1 V2 — 2 mánuðir og er nauð-
synlegt að fólk geri pantanir sínar í tíma.
PÓLARIS H.F., HAFNARSTRÆTI 8, flytur þessar
innréttingar inn og annast sölu á þeim ásamt
rafmagnstœkjum, sem falla inn í þœr. Veitir
fyrirtœkið nánari upplýsingar og fyrirgreiðslu.
Símanúmerið er 21085.
íér sjóið þið plastlistann, sem fellur upp
að veggnum ofan við borðplötuna og lagar
ig eftir honum þótt hann sé ósléttur eins
og oft vill verða. Þetta er sérstaklega œtlað
il að taka af hugsanlegar veggskekkjur.
• fl'Wj