Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. F E B R Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  33. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG HILARY HAHN LEIKUR FIÐLUKONSERT RYKSUGAÐI KÖNGULÆR FÁIR HAFA GLATT HEIMINN JAFN MIKIÐ VIÐSKIPTABLAÐIÐ OG FINNUR.IS PLATA PAUL MCCARTNEY 37MOZART Í HÖRPU 34 Tæplega 250 nemendur fá nú styrk úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að læra íslensku sem annað tungumál í tíu grunnskólum á Suðurnesjum. Jafngildir það 7,9% af heildar- fjölda nemenda í skólunum. Talan segir ekki alla söguna því mun fleiri eiga annað móðurmál en íslensku. Dæmi er Gerðaskóli í Garði en þar áætluðu starfsmenn að svo væri ástatt um 46 nemendur. Til samanburðar fá 12 styrk úr jöfn- unarsjóði á þessu skólaári. Hópurinn sestur að Dröfn Rafnsdóttir, kennsluráð- gjafi hjá Reykjanesbæ, segir að í fyrstu hafi einn og einn nemandi af erlendu bergi brotinn setið í grunn- skólum á Suðurnesjum. Nú sé þetta orðinn fjölmennur hópur sem sé sestur að. »16-17 Blöndun suður með sjó Grunnskólar á Suðurnesjum Nemendur í íslensku sem öðru tungumáli: 246 Nemendur alls: 3.129  Ör fjölgun nýbúa í grunnskólunum Fólk var í óðaönn í gærkvöldi að leggja lokahönd á undirbúning fyrir ljósmyndasýninguna Kvosin í 100 ár sem verður opnuð á Lækjartorgi í dag. settir í dag og standa til 12. febrúar. Fjölbreytt dagskrá verður í boði en Ljósmyndadagar fara nú fram í fyrsta sinn og verða væntanlega árlega. Myndum verður varpað á ýmsar byggingar og m.a. verður Héraðsdómur ljósmyndaskreyttur. Sýningin er hluti af Ljósmyndadögum sem verða Gamla tímanum varpað á veggi miðbæjar Morgunblaðið/Kristinn Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Nýjar mælingar á Snæfellsjökli leiða í ljós að hann lækkaði að jafnaði um 14 metra á árunum 1999 til 2008, um 1,5 metra að meðaltali á ári. Það samsvarar því að rúmmál hans hafi rýrnað um á að giska þriðjung á þess- um árum. Með sama áframhaldi gæti hann horfið innan fáeinna áratuga. Þetta er meðal þess sem kem- ur fram í grein í nýjasta tölu- blaði Jökuls, tímarits Jökla- rannsóknafélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands. Samkvæmt íssjármælingu sem var gerð árið 2003 var með- alþykkt Snæfellsjökuls um 30 metrar. Hann hefur því verið öllu þykkari árið 1999, við upp- haf viðmiðunartímabilsins. Snæfellsjökull hefur hopað og lækkað frá 1995 en aldrei áður hafa breytingar á yfirborði og rúmmáli verið mældar með jafnnákvæmum hætti. Mælingin sýnir að jökullinn hefur hjaðnað eða rýrnað um allt að 40 metra á ákveðnum svæðum nærri jök- ulsporðinum en aðeins um nokkra metra efst. Á þessu tímabili minnkaði flatarmál hans úr 12,5 km² í 10 km². Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstof- unni og einn höfunda grein- arinnar í Jökli, segir að ótrú- lega hratt hafi gengið á Snæfellsjökul. „Þegar jöklar minnka hratt hafa þeir tilhneig- ingu til að þynnast meira en flatarmálið minnkar. Þeir ná ekki alveg að draga sig saman og geta skilið eftir sig ísbreiður sem slitna frá meginjöklinum og nefnast daufís,“ segir hann. Jökullinn hopi mun hraðar en flestir aðrir jöklar á landinu. Greinin um Snæfellsjökul er ein sú fyrsta sem byggist á nýj- um og nákvæmum leysigeisla- mælingum á jöklum landsins, svonefndum LiDAR-mælingum. Búið er að kortleggja um 9.000 km² af jöklum landsins með þessari aðferð en eftir er að kortleggja um 2.000 km² af suðvestanverðum Vatnajökli. Þessu verkefni lýkur á næstu tveimur árum. Jökullinn rýrnaði um þriðjung á tíu árum  Hverfur innan fárra áratuga  „Ótrúlega hratt“ Morgunblaðið/RAX Snæfellsjökull Hopar mun hraðar en flestir aðrir jöklar á landinu. „Við höfum fylgst og mun- um fylgjast vel með því hvern- ig þessi mark- aður þróast, og ekkert ólík- legt að við tök- um upp ein- hverja rannsókn á næstunni, án þess að það liggi fyrir núna,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, sem átti í vikunni fund með FÍB um sam- keppni olíufélaganna, verðlagningu þeirra og verðþróun. Fundurinn var haldinn að beiðni FÍB sem í bréfi til eftirlitsins lýsti áhyggjum af þróuninni á markaðnum. Telur félagið teikn á lofti um að skortur sé á samkeppni og ástæða sé til að kanna hvort um samráð sé að ræða, þó að félag- ið segist ekki vera með vísbendingar eða gögn um slíkt. Verðmunur milli félaga sé orðinn lítill sem enginn. Eldsneytisverð hefur hækkað um 10% frá áramótum og um 4% frá síðustu verðbólgumælingu Hagstofunnar. Þær hækkanir einar sam- an hafa 0,24% áhrif á neysluvísitöluna til hækkunar. bjb@mbl.is MTelja skorta á samkeppni »6 Olíufé- lögin til skoðunar  Bensínið hækkar vísitöluna um 0,24% Bensín Verðið í hæstu hæðum, yfir 250 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.