Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 49. DAGUR ÁRSINS 2012 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Andlát: Halldór Fannar 2. Kynlífsfíkn er ekkert grín 3. Reikna ekki með tveimur mæðrum 4. Dómur yfir Baldri staðfestur  Dúettinn Eldar, skipaður þeim Valdimari Guðmundssyni og Björg- vini Ívari Baldurssyni, mun troða upp á Tónleikaröð Súfistans í Hafnarfirði næstkomandi laugardag. Eldar troða upp á Súfistanum  Goðsögnin Tony Bennett mun syngja í Hörpunni föstudaginn 10. ágúst. Bennett er handhafi 17 Grammy- verðlauna, tvennra Emmy- verðlauna og hef- ur selt rúmlega 50 milljón plötur á ferlinum sem spannar nærri 60 ár. Tónleikarnir verða í Eldborgarsalnum. Dóttir hans, Antonia Bennett, mun hita upp fyrir föður sinn. Tony Bennett syngur í Hörpu í ágúst  Sópransöngkonan Þóra Ein- arsdóttir og píanóleikarinn Steinunn Birna Ragnarsdóttir bjóða í ferðalag næstkomandi þriðjudag kl. 12.15, en þá flytja þær sönglög Henri Duparc á fyrstu hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu, undir yfirskrift- inni „Boðið í ferðalag“. Tónleikarnir fara fram í Norður- ljósasalnum og tekur flutning- urinn um hálf- tíma. Hádegistónleikar Íslensku óperunnar FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt, strekkingur við NA-ströndina og él, en annars hægari og víða bjart. Vaxandi suðvestanátt og þykknar upp V-lands seinnipart. Frost 0 til 8 stig. Á sunnudag Suðvestan og sunnan 5-10 m/s með dálítilli snjókomu, en síðar slyddu eða rigningu. Þurrt A-lands. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost NA-lands. Á mánudag Norðvestlæg átt, 5-13 m/s með dálítilli snjókomu eða éljum, en úrkomulítið S- og V-lands. Lægir og birtir víða til síðdegis. Frost 0 til 5 stig, en hiti 1 til 4 stig syðst. Úrslitaleikirnir í Powerade-bikarnum í körfuknattleik fara fram í Laugar- dalshöllinni í dag. Í kvennaflokki eig- ast við Njarðvík og Snæfell en í karla- flokki takast á Keflavík og Tindastóll. Morgunblaðið hafði samband við Ágúst Björgvinsson sem þjálfar bæði kynin hjá Val og ræddi við hann um liðin sem komin eru í úrslit keppn- innar. »4 Nýtt nafn skráð á bik- arinn í kvennaflokki Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, skrifaði í gær undir samning við Start í Noregi um að leika með lið- inu út þetta tímabil. „Þetta er mjög spennandi og öll um- gjörð hjá félaginu er virkilega flott. Hér er nýr 14 þúsund manna völlur og félagið á að hafa alla burði til að komast upp á nýjan leik,“ segir Matthías meðal annars við Morgunblaðið. »2 Mjög spennandi hjá Start í Noregi Aron Rafn Eðvarðsson, landsliðs- markvörðurinn ungi úr Haukum, er leikmaður 15. umferðar í handbolt- anum að mati Morgunblaðsins. Aron segir að einkaþjálfun síðasta sumar hafi hjálpað sér mikið fyrir veturinn en markmiðin séu að festa sig í sessi í landsliðinu og komast í atvinnu- mennsku. »2-3 Einkaþjálfunin kom Aroni til góða Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hópur svartþrasta lífgar upp á Laugardalinn í Reykjavík, ásamt fleiri fuglategundum sem þar halda til. Svartþröstum hefur fjölgað hér undanfarin ár og talið er að stofninn sé nokkur hundruð fuglar. Ekki er nema um aldarfjórðungur síðan svartþrestir námu hér land og hófu varp, að sögn dr. Ævars Pet- ersen dýrafræðings. Stofninn hefur stækkað síðan þá og breiðst út á höf- uðborgarsvæðinu. Svartþrestirnir halda sig nú á svæðinu frá Hafn- arfirði og upp í Kollafjörð og Kjós. Þeir verpa einkum þar sem eru grenitré. Þau eru sterkbyggð og þegar svartþrestir byrja að verpa í apríl eru lauftré enn nakin og veita hreiðrunum lítið skjól. „Væntanlega kemur svartþröst- urinn á aðra þéttbýlisstaði í landinu áður en langt um líður,“ sagði Ævar. „Þetta er eins og starrinn gerði.“ Starrinn kom á höfuðborg- arsvæðið haustið 1959 og hóf varp vorið 1960. Hér á landi eru tveir starrastofnar. Sá stofn sem kom fyrr hóf að verpa í Hornafirði dálítið fyrir heimsstyrjöldina síðari og hefur haldið sig þar. Hornafjarðarstarr- arnir urpu úti í eyjum og höguðu sér eins og vanalegir villtir fuglar. Þeir héldu sig inni á Höfn yfir vetr- armánuðina. Ævar segir að talið sé að þessir starrar hafi komið frá Færeyjum, þar sem starrar verpa í fuglabjörgum. Höfuðborgarstarrarnir höguðu sér allt öðru vísi en frændur þeirra í Hornafirði. Þeir urpu í húsum líkt og starrar víða erlendis. Talið er að þessi stofn hafi verið ættaður úr þéttbýli einhvers staðar í Bretlandi eða á meginlandi Evrópu. Starra- stofn þessi hefur vaxið mikið og breiðst út. Starrarnir fljúga oft um í stórum hópum í ljósaskiptunum og stærsti náttstaður þeirra er í skóg- ræktinni í Fossvogi. Þrestir, skógarþröstur, gráþröst- ur og svartþröstur eru ekki náskyld- ir störrum samkvæmt tegunda- flokkun. Ævar bendir á að þrestirnir hoppi á fótunum en starrarnir gangi með því að bera lappirnar fyrir sig til skiptis, líkt og frændur þeirra krákur og hrafnar. Starrar eru dökkir og dröfnóttir en fullorðnir svartþrastakarlar eru biksvartir með skærgulan gogg og gulan hring í kringum augun. Svart- þrastakerlingar eru dökkmóbrúnar með rendur framan á brjóstinu og dökkt nef. Ungir karlfuglar eru svar- brúnir og með dökkt nef til að byrja með áður en nefið gulnar. Svartþrestir sækja í sig veðrið  Svartþrestir eru um allt höfuðborg- arsvæðið og líklegt að útbreiðsla aukist Morgunblaðið/Ómar Svartþröstur Þessi svartþrastarkarl var í Laugardal í Reykjavík. Kvenfuglarnir eru dökkmóbrúnir, með rendur á brjóstinu og dökkt nef. Ungir svart- þrestir eru svarbrúnir í fyrstu og með dökkt nef. Á árum áður var ekki óalgengt að fólk ruglaði svartþröstum saman við starra, en þeir eru ekki skyldir. „Það er afskaplega breytilegt hljóðið í starranum og maður má stundum passa sig að halda ekki að hann sé annar fugl,“ sagði Ævar Petersen. „Þeir eru duglegir að herma eftir. Á árum áður þegar starrinn var nýr og sól og gott veður á útmán- uðum og starrinn fór að láta í sér heyra þá var gjarnan hringt til okk- ar á Nátt- úrufræði- stofnun og sagt: Ég heyrði í lóu!“ Sannkölluð hermikráka AFSKAPLEGA BREYTILEG HLJÓÐ Í STARRANUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.