Morgunblaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.02.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 0. F E B R Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  42. tölublað  100. árgangur  Í MIÐJU MORGUNBLAÐSINS Í DAG » SYSTUR FÉLLU FYRIR ÍTALÍU OG FRAKKLANDI SÖGULEGUR SIGUR NJARÐVÍKINGA ELDFJALL SÓPAÐI AÐ SÉR VERÐLAUNUM KÖRFUBOLTI KVENNA ÍÞRÓTTIR EDDUVERÐLAUNIN 28HIN HEIMALÖNDIN ÞEIRRA 10 Morgunblaðið/Eggert Uppsögn Andmælafrestur Gunnars Þ. Andersen, forstjóra FME, rennur út í dag.  „Þetta ferli er ekki búið og öfugt við það sem haldið hefur verið fram þá hefur Gunnar ekki verið rekinn, þannig að hann mætir til vinnu eins og vanalega,“ segir Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjár- málaeftirlitsins. Aðspurður á hvaða lagastoð uppsögn Gunnars Þ. And- ersen, forstjóra FME, byggist seg- ist Aðalsteinn ekki geta tjáð sig um það nú. Í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins segir Gunnar að hann telji að umfjöllun Kastljóss RÚV um hans mál hafi verið pöntuð af ákveðnum, ónafngreindum aðilum. skulih@mbl.is »4 Gunnar Þ. Andersen mætir til vinnu í dag þrátt fyrir uppsögn Þingnefnd ræðir dóminn » Efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis mun í dag fjalla á fundi sínum um nýfallinn dóm Hæstaréttar um geng- istryggð lán. » Rétturinn ákvað að ekki mætti breyta afturvirkt ákvæð- um um vaxtaviðmið. » Nefndin mun fá til sín gesti. Kristján Jónsson Vilhjálmur Andri Kjartansson „Það liggur ekki enn fyrir hversu víðtækt fordæmisgildi hæstaréttar- dómsins er og það er það sem er verið að setja í farveg, reyna að greina,“ segir Steingrímur J. Sig- fússon, efnahags- og viðskiptaráð- herra. „Strax eftir helgina verður hægt að upplýsa meira um það.“ Fagnaðarefni væri ef lífeyrissjóð- irnir væru tilbúnir að skoða nið- urfærslu lána. „Það hefur verið svo- lítið snúið að fá þá til þátttöku í þeim aðgerðum sem í gangi eru, samanber lánsveðin og það sem við höfum verið að skoða í þeim efn- um.“ Fram hefur komið hjá ýmsum stjórnmálaleiðtogum eftir dóm Hæstaréttar vegna gengistryggðu lánanna að nokkur samstaða sé um að koma þurfi með einhverjum hætti til móts við þá sem tóku hefð- bundin verðtryggð húsnæðislán. Íbúðalánasjóður og lífeyrissjóð- irnir eru með meira en helming verðtryggðu lánanna á sinni könnu. En hvað segja ráðamenn bankanna? Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, sagði að enn hefðu ekki komið fram neinar beinharðar tillögur í þessum efnum. „Menn eru bara leitandi. Ég hef sagt að við eigum fyrst og fremst að reyna að hjálpa þeim sem standa verst og það er verið að gera alla daga.“ Erfitt sé fyrir stjórnmálamenn, vegna stjórnarskrárákvæða um eignarrétt, að setja lög um að lækka andvirði eigna manna. Bankarnir séu þegar búnir að gera töluvert af því að bæta kjörin, m.a. lækka vexti. „Menn eru bara leitandi“  Bankastjóri Landsbankans segir mikilvægast að hjálpa þeim sem verst standi  Steingrímur álítur að fordæmisgildi vaxtadómsins muni skýrast betur í vikunni Leðurblökumaður Christian Bale í íslensku landslagi í Batman Begins. Ísland nýtur aukinna vinsælda með- al erlendra kvikmyndagerðar- manna en mesta aðdráttaraflið er 20% endurgreiðsla framleiðslu- kostnaðar sem stjórnvöld bjóða er- lendum og innlendum framleið- endum. „Hún er hluti af þeirra fjármögnun og skiptir öllu máli að hafa upp á slíkt að bjóða,“ segir Einar Tómasson frá fyrirtækinu Film in Iceland en endurgreiðslan gerir Ísland samkeppnishæft á al- þjóðavísu. Annað sem gegnir stóru hlut- verki í að laða að kvikmynda- framleiðendur er stórbrotin og fjöl- breytileg náttúra landsins. Einar Sveinn Þórðarson hjá Pegasus segir að þessi framleiðsla styrki íslenskan efnahag og mikil margföldunaráhrif séu í verkefnum af þessu tagi. Eftirvinnsla kvikmynda fer líka fram hérlendis en fimmtán manns starfa hjá tæknibrellufyrirtækinu Framestore í Reykjavík. »6-7 Auknar vinsældir Íslands  Endurgreiðslan og náttúra laða að erlenda kvikmyndaframleiðendur Karlakórinn Þrestir fagnaði hundrað ára afmæli sínu á konudaginn með veglegum tónleikum fyr- ir fullu húsi í Eldborgarsal Hörpu. Fengu Þrestir góða gesti til liðs við sig, m.a. söngfélaga úr fimm karlakórum. Á fyrstu tónleikum Þrasta voru söngmenn ellefu talsins en í gærkvöldi var að finna yfir 300 manna karlakór á sviðinu, þar á meðal sex kórfélaga sem héldu upp á fimmtíu ára afmæli kórsins í Bæjarbíói árið 1962. Karlakór fagnar aldarafmæli á konudegi Morgunblaðið/Golli  Guðbjartur Hannesson velferðar- ráðherra er ekki sáttur við fullyrð- ingar formanns fyrirtækja í heil- brigðisþjónustu í Morgunblaðinu sl. laugardag um að aldraðir ein- staklingar á dýrum lyfjum eigi minni möguleika en aðrir á að kom- ast á hjúkrunarheimili. „En það er náttúrulega algjört siðleysi ef forstöðumenn mjög stórra stofnana eru farnir að flokka fólk eftir þessu. Þá eru þeir ekki hæfir til að stjórna stofnunum. Ef þú ert með tíu manna stofnun þá skil ég kannski að fólk hugsi um þetta en ef þú ert kominn með 400- 500 manns eins og hjá þessum stærstu þá er þetta forkastanlegt,“ segir hann m.a. í viðtali. »2 „Náttúrulega algjört siðleysi“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.