Barnablaðið - 06.11.2011, Blaðsíða 4

Barnablaðið - 06.11.2011, Blaðsíða 4
BARNABLAÐIÐ4 Þ að voru næstum fjögur þúsund börn sem mættu í áheyrnarprufur fyrir Galdra- karlinn í Oz í byrjun þessa árs. Í hópi þessara barna var leikarinn ungi, Grettir Valsson, 9 ára strákur úr Vesturbæjarskóla. Hann hafði það fram yfir flesta krakkana sem þarna voru að hafa leikið áður á sviði atvinnuleikhúss, en hann fór með hlutverk í sýningunum Óliver Tvist og Allir synir mínir sem var sett upp í Þjóðleikhúsinu. Hann var einn af fáum sem komst í gegnum þetta fjölmenna úrtak og leikur nú um helgar á fjölum Borgarleikhússins. Ákvaðstu um leið og þú sást prufur fyrir Galdrakarlinn í Oz auglýstar að þetta væri eitthvað sem þú vildir taka þátt í? „Já, ég sá auglýsingarnar í skólanum mínum og varð strax mjög spenntur. Kannski sérstaklega af því að ég þekkti ævintýrið mjög vel. Frænka mín átti uppflettibók sem mér fannst svo flott og þegar ég var í pössun heima hjá henni voru pabbi hennar og mamma alltaf að lesa bókina fyrir mig. Ég fór í þrjár prufur og fyrstu tvær gengu mjög vel hjá mér. Ég söng lagið Við eigum hvorn annan að sem er upprunalega úr teiknimynd með Tomma og Jenna.“ Ertu þá góður söngvari? „Jaaaá, kannski. Sumum finnst það. Sumum ekki.“ Hvaða hlutverk ferðu með í sýning- unni? „Ég leik held ég sex hlut- verk. Af þeim hlutverkum finnst mér skemmtileg- ast að leika bæjarstjór- ann í fyrstu senunni. Hann er bæði fyndinn og skemmtilegur.“ Segðu okkur aðeins frá öðrum hlutverkum sem þú hefur leikið. „Galdrakarlinn í Oz er þriðja leiksýningin mín en ég var áður í tveimur sýningum hjá Þjóðleikhúsinu. Ég hef svo líka verið að leika smá í sjónvarps- þáttunum Heimsendi og Hlemmavídeó. Síðan hef ég líka verið að talsetja barna- myndir. Ég hef talað mikið inn á Elías.“ Hvernig komstu í það að tala inn á teiknimyndir? „Það var í gegnum Óliver Tvist. Það er sami leikstjóri í Óliver og í myndunum sem ég hef verið að talsetja.“ Hver hjálpar þér að læra línurnar þínar fyrir sýningarnar? „Ég er ekki að tala mikið í Galdrakarl- inum í Oz og geri allt upp á eigin spýtur í þeirri sýningu og í Óliver líka. Í Allir synir mínir var ég með svo mikinn texta og þá þurftu mamma og pabbi að fara í gegnum hann með mér fyrir sýningar.“ Hefurðu alltaf haft svona mikinn leikhúsáhuga? „Frá því ég var mjög lítill hef ég alltaf haft mjög mikinn áhuga á að verða söngvari. Ég á samt ekki neinn uppá- haldssöngvara og ég hlusta ekki mikið á tónlist. Pabbi minn og mamma vinna bæði í leikhúsi. Pabbi minn er leikari og mamma mín gerir búninga og leikmyndir en hún er samt líka myndlistarkona og setur upp listasýningar. Út af þessu öllu þá horfði ég mikið á leikrit þegar ég var lítill og þá langaði mig að vera með. Í fyrsta leikritinu mínu, Óliver Tvist, þá fór ég í prufu og vissi náttúrulega ekkert um hvað það ævintýri var af því að ég var bara sjö ára. En síðan þegar ég komst inn í Óliver þá byrjaði ég að vera svona góður söngvari eins og ég er í dag af því þá fékk ég æfinguna.“ Heldurðu að þú eigir eftir að leggja þetta fyrir þig? „Já, ég held það bara. Ég hef ekki átt nein önnur áhugamál og hef aldrei verið að æfa neinar íþróttir. Einu sinni fóru mamma og pabbi svolítið seinna í sumarfrí en ég og þá þurfti ég að vera á námskeiði á meðan. Þá hafði ég aðeins verið að fylgjast með karate og ég skráði mig á karatenámskeið. Ég fékk samt fljótt leið á því og sá áhugi entist bara í mánuð og þá ákvað ég bara að hætta alveg. Einu sinni skráði frænka mín sig í samkvæm- isdansa og það voru mjög fáir í fyrsta tímanum. Kennarinn hvatti krakkana til að skrá fleiri fyrir næsta tíma. Hún hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi vera með og ég sagði bara já, já, af því ég hafði ekkert að gera. Svo ég prófaði það en það var ekki alveg nógu skemmtilegt. Ég var eiginlega bara alltaf að bíða eftir Leiklistin áhuga „Eftir senurnar mínar fór ég oft bara heim af því að ég nennti ekkert að vera að hneigja mig.“ Nú standa yfir sýningar á Gald rakarlinum í Oz og Eldfærunum í Borgarleikhúsinu og er alltaf gaman og hátíðlegt að fara með fjölskyld unni í leikhús. Síðustu sýningar á Fúsa froska gleypi fara nú fram í Gaflara- leikhúsinu. Tónlist og fjör á fjöl unum við Strandgötuna. Það er mikið um að vera fyrir f jölskylduna í Gerðubergi en þar eru meðal annars sýningar nar Ormurinn ógnarlangi, Hávamál og Bráðum koma ble ssuð jólin. Eldur Gleði Dansleikur Býr á tjörninni Þú heyrir með því Börn Brúða Köttur Drasl Segir bí bí Grettir ásamt nokkrum öðrum börnum úr Galdraka í Oz. Frá vinstri eru Svava Sól, Viktor Pétur, Grettir Sól, Steinunn, Áslaug, Ebba Katrín og Halldór Í Grímulaus leikari Sæl verið þið, kæru börn. Ég heiti Lúðvík Lárusson og ég er leikari. Ég hef því miður týnt grímunni minni einhvers staðar á síðum Barnablaðsins. Gætuð þið aðstoðað mig við að finna hana? Maður gekk inn á veitingastað og sagði við þjóninn: Mig langar til að fá egg sem er svo linsoðið að það lekur út af disknum. Svo langar mig líka t il að fá harðsoðið egg sem ég get ekki með nokkru móti b itið í. Ég vil fá kalt en brennt brauð og ég vil að þú takir smj örið beint úr kæli svo að ég eigi mjög erfitt með að smyrja brauðið. Já og svo vil ég líka fá lapþunnt kaffi með þessu. Þjónninn svarar undrandi: Þett a er svolítið einkennileg beiðni og það gæti verið erfitt að upp fylla þessa ósk. Maðurinn svarar þá: Það getur varla verið svo erfitt. Þetta er nákvæmlega það sama og ég fékk hjá ykkur í gær. Grín og glens Barnafréttir Krossgáta Spaug og spé Jónas spurði Guð: Hversu lang ur tími er milljón ár? Guð: Fyrir mér eru milljón ár se m ein mínúta. Jónas: En hversu mikils virði e ru milljón krónur? Guð: Fyrir mér eru milljón krón ur sem ein króna. Jónas: Viltu þá ekki gefa mér e ina milljón? Guð: Ekkert mál. Ég læt þig ha fa hana eftir eina mínútu.

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/1075

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.