Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 14
* Fátt jafnast á við heimagerðan ís á einu af ískaffihúsum BerlínarFerðalög og flakk Ég er að uppgötva risastóran nýjan heim sem mérfinnst afar heillandi,“ segir Soffía Jóhannesdóttir.Heimurinn sem Soffía vísar til er ferðamótorhjóla- mennska en í sumar hefur hún skoðað landið á mótorhjóli. „Maður er einhvern veginn frjálsari og nær landinu, finnur lyktina og vindinn og þetta er smá adrenalínkikk líka. Mað- ur upplifir landið á nýjan hátt.“ Tilvera Soffíu hefur tekið miklum breytingum síðasta árið og hennar daglegu félagar eru nær eingöngu karlmenn með mótorhjóladellu. „Ég er innan um svo mikið testósterón að ég hugsaði á tímabili að það hlytu að fara að vaxa á mig eistu,“ segir Soffía og hlær. Bifhjól komu fyrst inn í líf Soffíu þegar hún stofnaði vespuleigu við Reykjavíkurhöfn og tók þá mótorhjólapróf. Fyrr á árinu sameinuðust svo Lunda- vespur, Harley-Davidson búðin og mótorhjólaleigan Biking Viking undir nafninu Reykjavík Motor Center. „Þetta er bú- ið að vera mikil upplifun. Ég vissi ekkert út í hvað ég væri að fara. Stökk svellköld út í djúpu laugina.“ Soffía hefur nýtt hvert tækifæri í sumar til að ferðast um landið á mótorfák. Þar á meðal til Vestmannaeyja, norður í land og farið í dagsferðir hingað og þangað út frá Reykja- vík. „Ég fór líka í stórkostlega 10 daga leiðsöguferð þar sem hringurinn og Vestfirðir voru teknir með útúrdúrum frá að- alvegunum. Þar keyrði ég reyndar trúss-bílinn en það er mjög gaman að ferðast með útlendingum og fá þannig tæki- færi til að sjá landið sitt með augum utanaðkomandi.“ Sumarið hefur verið mjög annasamt en ferðahjól sem Reykjavík Motor Center er með hafa notið mikilla vinsælda meðal erlendra ferðamanna en þá hefur verið hægt að fá leiðsögumenn með í ferðir og jafnvel farangursbíl. „Þó svo að haustið sé skollið á og vertíðin svo til búin eru enn þó- nokkrar haustferðir í kortunum. Það eru þá aðallega seinni- partsferðir, en þær bjóðum við upp á síð- og snemmsumars. Það fer skiljanlega eftir veðri hversu langt fólk hjólar inn í veturinn. Ég er allavega sjálf komin með bakteríuna.“ Morgunblaðið/Kristinn Á BIFHJÓLI UM LANDIÐ Frelsi og adrenalín SOFFÍA JÓHANNESDÓTTIR FÉKK MÓTOR- HJÓLABAKTERÍUNA OG FINNUR SIG VEL Í HEIMI TESTÓSTERÓNS. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Borgin er stór sem og stórbrotin, flókin og í raun margar borgir í einni. Ef þú ert á vitlausum stað í henni þá finnst þér hún ef til vill bara leiðinleg og grá. Engu að síður er fullt af sögu og merkilegheitum hérna á hverju horni ef fólk athugar vel. Ef ég er ekki að vinna á setti eða að sýsla fyrir auglýsinga- framleiðslu þá er ég líklega að slaka á enda vinnutíminn ekki beint á evrópsk- um standard. Það er mjög eðlilegt að vinna 10-15 tíma á dag hérna. Þannig að þegar ég er í fríi þá er ég ekki með neitt samviskubit yfir því að hafa það bara heldur náðugt. Yfirleitt næ ég þá að afgreiða pantanir á 4949 skartinu mínu. Nú eða ég fer á ströndina með manninum eða fæ mér gott að borða og fer á tónleika og finnst fátt eins skemmtilegt og að vera með vinum okkar. Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas er skartgripahönnuður og pistlahöf- undur á Rás2 með meiru og hefur búið í LA í tæp 4 ár. Margar borgir í einni Póstkort frá L os Angeles
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.