Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 17
23. 09. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Ferðalög og flakk Morgunblaðið/Inga Rún HÓTEL Sögufrægasta og glæsilegasta hótel- ið í Berlín er Hótel Adlon sem er við Brandenburgarhliðið. Ef þú hefur ekki efni á að gista þar farðu endilega og fáðu þér drykk. Hotel Adlon Kempinski Berlin Unter den Linden 77 VERSLUN Fátt er betra en að versla í sælkera- deildum stórverslana en í Berlín má virkilega mæla með tveimur slíkum. Galeries Lafayette Friedrichstraße 76-78 KaDeWe Tauentzienstraße 21-24 Frábær vínbúð sem selur bara vín frá S-Frakklandi. Rétti staðurinn til að kaupa gott rósavín. Les Rouges du Midi Knaackstraße 54 SÖFN Því ekki fræðast um austrið sem var í þessari sögufrægu borg á meðan á dvölinni stendur? Fyrr- nefnda safnið er sérstaklega skemmtilegt. DDR-safnið Karl-Liebknecht-Straße 1 Stasi-safnið Ruschestraße 103 VEITINGASTAÐIR Frábær og ódýr víetnamskur stað- ur sem er fallega innréttaður. Monsieur Vuong Alte Schönhauser Straße 46 Gott sushi í fallegu umhverfi. Sasaya Lychener Straße 50 Virðulegt og hefðbundið. Café Einstein Unter den Linden 42 Að lokum Heimsókn í dýragarðinn í Berlín, Zoologischer Gar- ten Berlin, er ómissandi, ekki síst ef börn eru með í för. Dýragarðurinn er stór og vel hægt að eyða heilum degi þar. Þarna er að finna 1.500 mismunandi tegundir og í kringum 17.500 dýr. Garðurinn er einn sá mest sótti í heimi og sá vinsælasti í Evrópu en gestir á ári eru um þrjár milljónir. Dýragarðurinn er líka gamall en hann var opnaður hinn 1. ágúst 1844. Mér finnst ap- arnir skemmtilegastir. DAGSKEMMTUN Í DÝRAGARÐI Það er frábært að geta farið á kaffihús sem er sérstaklega ætlað börnum. Fullorðna fólkið getur drukkið kaffi í friði og skoðað blöð eða lesið bækur á meðan börnin leika sér. Eitt sérstaklega skemmti- legt er við Helmholtzplatz í Prenzlauerberg. Þar er nóg pláss utan- dyra að leika en innandyra er meira að segja sandkassi. Þetta er kaffi- hús staðsett í fallegu umhverfi með grænu svæði í kring. Í hliðargötu út frá torginu, í götunni Schliemannstraße nánar tiltekið númer 37, er að finna Das Spielzimmer. Það er kaffihús fyrir börn með sérstöku svæði fyrir minni börnin og herbergi fyrir stærri börnin þar sem er að finna smáklifuraðstöðu, rennibraut og fleira. KAFFIHÚS FYRIR BÖRNIN Prater Garten, elsta bjórgarðinn í Berlín, er að finna við Kastanienallee í Prenzlauer Berg í Berlín. Þetta er sannkölluð vin í borginni með háum trjám og ekta trébekkjum og borðum. Hægt er að fá bæði bjór og annað að drekka og ennfremur einfaldan mat og koma þarna oftar en ekki mjög margir saman. Garðurinn er opinn daglega frá klukkan 12 þegar veður er gott frá apríl til september. Á meðfylgjandi mynd er óvenjulegur Berlínarbjór, Berliner Kindl Weisse, sem vel er þess virði að prófa en hann er annaðhvort rauður eða skær- grænn á litinn. BJÓR OG FLEIRA Hver hefði trúað því að í stórborginni Berlín væri þessi fína baðströnd? Ströndin við Wannsee er lengsta strönd sem er að finna inni í landi í Evrópu. Ströndin er 1.275 metra löng og 80 metra breið. Löng hefð er fyrir þessum baðstað en strandbaðið hefur verið starfrækt í meira en öld. Þarna er aldeilis hægt að baða sig þegar veður leyfir. Wannsee er á grænu svæði í vesturhluta borgarinnar og er lestarferðin á staðinn skemmtileg en þess má geta að lestarstöðin þar sem farið er úr heitir Nikolassee. Ekki gleyma að leigja strandkörfu til að kóróna upplifunina. Fyrir þá sem eru í austurhluta borgarinnar getur líka ver- ið huggulegt að taka sporvagninn og slaka á við annað vatn, Weißensee. Baðströndin þar er lítil en notaleg og er líka mikið notuð af fólki sem vill slaka á eftir vinnu með einn drykk í hendi en þarna nýtur kvöldsólin sín vel. STRANDLÍF Í STÓRBORGINNI Þó fátt sé þýskara en bjór er Berlín ekki síður borg kokteilanna. Á öðru hverju götuhorni er að finna fimm evra kokteila á hinum ýmsu veitingastöðum. Skemmti- legast er þó að fara á bari sem sérhæfa sig í gerð þessara margslungnu drykkja, jafn- vel þó að eitt- hvað meira sé borgað fyrir þá þar. Sláið „Victoria Gosl- ing’s Cocktail Hour“ inn í Google-leit og þá kemur í ljós gagnvirkt kort með lista yfir úrvals kokteilbari í Berlínarborg. BORG KOKTEILANNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.