Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 60
Crewe Alexandra er fræg uppeldis-stöð fyrir vaska sparkendur. Meðalleikmanna sem slitu sínum fyrstu skóm á Alexandra-vellinum eru David Platt, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins; Danny Murphy, sem nú leikur með Black- burn; Neil Lennon, sem lengst lék með Leicester og Celtic; Rob Jones, sem gerði garðinn frægan hjá Liverpool; velski lands- liðsmaðurinn Robbie Savage og Dean Ash- ton, fyrrverandi leikmaður West Ham United, sem raunar varð að leggja skóna alltof snemma á hilluna vegna meiðsla. Maðurinn á bak við þetta starf er hinn smávaxni Dario Gradi (hann er aðeins 162 cm á hæð), sem var knattspyrnustjóri Crewe Alexandra á árunum 1983 til 2007 og aftur frá 2008 til 2011. Guðjón nokkur Þórðarson laumaði sér þarna inn á milli. Gradi lét aftur af störfum fyrir tæpu ári til að einbeita sér að ungmennastarfi félagsins. Við starfi knattspyrnustjóra tók Steve Dav- is, gamall leikmaður Crewe, og kom hann liðinu upp í C-deildina strax í fyrstu at- rennu. Mikil sigling var á Crewe síðustu vikur tímabilsins og féll félagsmet í lát- unum, átján leikir án taps. Crewe hefur farið bærilega af stað í C-deildinni, er í fimmtánda sæti af 24 liðum eftir sjö um- ferðir. Davis er ekki eini lærisveinn Gradis sem reynt hefur fyrir sér á knattspyrnustjóra- stóli. Neil Lennon hefur sem kunnugt er stýrt Celtic við góðan orðstír frá árinu 2010. Vann skoska bikarinn vorið 2011 og meistaratitilinn síðastliðið vor. David Platt hefur líka spreytt sig á knattspyrnustjórnun, hjá Sampdoria á Ítalíu og Nottingham Forest, auk þess sem hann var með landslið Englands, skipað leik- mönnum 21 árs og yngri, frá 2001 til 2004. Platt er nú aðstoðarknattspyrnustjóri hjá Englandsmeisturum Manchester City. Robbie Savage hefur ekki fetað þann veg en hann er á hinn bóginn óðum að skipa sér á bekk með spökustu sparkgreinendum Breta. Hann stjórnar nú vinsælum spjall- þætti í breska ríkisútvarpinu, BBC, 6-0-6, sem sendur er út á sunnudagskvöldum. Dario Gradi vígalegur að vanda. Hann er orðinn 71 árs og þjálfar nú ungmenni. Uppeldisstöð MARGIR MERKIR SPARKENDUR HAFA ALIST UPP EÐA HAFIÐ FERIL SINN HJÁ CREWE ALEXANDRA UNDIR STJÓRN HINS ÓLSEIGA DARIOS GRADIS. EKKI SÁ FYRSTI ÚR ÞEIRRI ÁTTINNI * „Við munum reyna hið ómögulega.“Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, en ekkert félag hefur unnið Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð. BoltinnORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is 60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. 09. 2012 Þegar Paul Scholes lagði skóna á hillunavorið 2011 var stórt skarð höggvið í liðManchester United. Svo stórt raunar að enginn var þess umkominn að fylla það – nema Paul Scholes. Miðvellingurinn síungi sneri nefni- lega aftur rúmu hálfu ári síðar og er enn að, þrátt fyrir að nálgast nú 38 ára afmælið óðfluga. Hann hélt upp á 700. leikinn fyrir Rauðu djöfl- ana með marki gegn Wigan um síðustu helgi. Önnur tíðindi – ekki síður merkileg – í þeim ágæta kjöldrætti var að nýr leikmaður í liði United, Nick Powell, 18 ára, gerði sitt fyrsta mark fyrir félagið. Á því var augljós Scholes- bragur í þokkabót. Knattspyrnustjóri United, Sir Alex Ferguson, hikaði heldur ekki við að bera þessa tvo skjól- stæðinga sína saman eftir leikinn. Með þeim væru augljós líkindi. Mikið hól fyrir óharðnaðan táning en um leið umtalsverð pressa. En virka þeir fremstu ekki best þannig – undir pressu? Powell hóf feril sinn sem framherji, líkt og Scholes, hjá Crewe Alexandra og var blóðgaður aðeins sextán ára. Fljótlega færði hann sig þó, eins og Scholes, aftur á miðjuna. Hann lék 19 leiki veturinn 2010-11 en tókst ekki að skora mark. Á liðinni leiktíð sprakk pilturinn hins veg- ar út, var allt í öllu þegar Crewe tryggði sér sæti í C-deildinni. Powell lék samtals 64 leiki og skoraði í þeim sextán mörk, fleiri en nokkur annar leikmaður liðsins. Ekkert þeirra var fal- legra en fleygurinn í úrslitaleik umspilsins gegn Cheltenham Town á Wembley. Crewe sá sæng sína uppreidda, Powell þurfti stærra svið til að standa á. Og þvílíkt svið, sjálft Leikhús draumanna. Leikurinn gegn Wigan var sá fyrsti hjá Powell fyrir Manchester United en örugglega ekki sá síðasti. Honum er spáð bjartri framtíð, ekki bara á Old Trafford heldur einnig með enska landsliðinu en pilturinn hefur leikið með yngri landsliðum þjóðar sinnar. Og hver veit nema Paul gamli Scholes geti loksins farið að rifa seglin næsta vor eða vorið þar á eftir eða vorið … Paul Scholes fagnar marki í sínum 700. leik fyrir Manchester United gegn Wigan um liðna helgi. Nick Powell, kemur hann til með að leysa Scholes af hólmi? AFP Arftakinn? HINUM ÁTJÁN ÁRA GAMLA MIÐVELLINGI NICK POWELL ER ÆTLAÐ AÐ LEYSA SJÁLFAN PAUL SCHOLES AF HÓLMI HJÁ MANCHESTER UNITED. *Mikið hólfyrir óharðn-aðan táning en um leið umtals- verð pressa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.