Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 13

Monitor - 18.10.2012, Blaðsíða 13
13FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 Monitor SAMBANDIÐ VIÐ KIM 1989 Tekur saman við Kimberly Anne Scott. Af eða á-samband þeirra hefst. 1995 Dóttir þeirra Hailie fæðist. 1997 Eminem reynir misheppnaða sjálfsmorðstilraun 1999 Þau gifta sig. 2000 Hollywood segir til sín, þau sækja um skilnað og Kim reynir að fremja sjálfsmorð. 2001 Skilnaðurinn gengur í gegn. 2002 Kim eignast stúlkuna Witney með öðrum manni. 2005 Eminem og Kim taka aftur saman. 2006 Gifta sig í annað sinn í janúar þetta ár. Eru skilin í desember. 2007 Eminem fær fullt forræði yfi r dóttur þeirra og gerir gott betur og ættleiðir Witney, dóttur Kim úr öðru sambandi, ásamt stúlkunni Alainu Mathers, systurdóttur Kim. PLÖTUR Titill: Infi nite Útgáfuár: 1996 Sala: 1.000 eintök Titill: The Slim Shady EP Útgáfuár: 1997 Sala: 5.000 eintök Titill: The Slim Shady LP Útgáfuár: 1999 Sala: 10 milljónir Titill: The Marshall Mathers LP Útgáfuár: 2000 Sala: 24 milljónir Titill: The Eminem Show Útgáfuár: 2002 Sala: 21 milljón Titill: Encore Útgáfuár: 2004 Sala: 13 milljónir Titill: Curtain Call: Greatest Hits Útgáfuár: 2005 Sala: 7 milljónir Titill: Relapse Útgáfuár: 2009 Sala: 6 milljónir Titill: Recovery Útgáfuár: 2010 Sala: 8 milljónir AÐRAR PLÖTUR: 2001: D12 - Devil’s Night 2004: D12 - D12 World 2006: Eminem presents: The Re-up 2011: Bad Meets Evil - Hell: The Sequel DEILUR Í BRANSANUM Benzino/The Source Rapparinn Benzino var eigandi stærsta rapptímarits veraldar á sínum tíma, The Source. Honum var ekki vel við Eminem og fengu plötur hans oftar en ekki slaka dóma og lélega umfjöllun á síðum The Source. Eminem skaut einhverjum skotum að Benzino og í kjölfarið hefur annars dapur ferill Benzino snúist í kringum Eminem. Benzino var líka maðurinn sem gróf upp lög frá 1988 þar sem Eminem talar niðrandi um svartar konur og dreifði þeim í fjölmiðla. Lögin náðu ekki tilætluðum árangri að enda feril Eminems. Ja Rule (Lag: Eminem ft. 50 cent - Hail Mary 2002) Þegar Eminem tók 50 Cent að sér fylgdu deilur við Ja Rule í kaupbæti. Ja Rule ákvað að nefna dóttur hans Halie á nafn í einu laga sinna og þá varð ekki aftur snúið. Everlast (Lag: Eminem - Quitter) Var einhvern veginn deila um ekki neitt. Everlast sagði að Eminem hefði horft skringilega á sig þegar þeir hittust og ekki voru allir sammála því. Skipst var á lögum Limp Bizkit (Lag: D12 - Girls) Þegar Limp Bizkit neituðu að vera með í laginu Quitter um Everlast ætlaði allt um koll að keyra. Eminem fékk D12 með í lagið og var settur lokakafl i aftan á það tileinkaður Fred Durst. Það er þrennt sem ofurstjörnur þurfa að eiga í deilum við, makann, lögin og aðrar stórstjörnur. Ekki skemmir síðan fyrir að misnota fíkniefni. Eminem hefur að sjálfsögðu staðið vaktina á öllum þessum sviðum. 1999: Móðir hans fer fram á 10 milljónir dollara í skaðabætur vegna niðrandi ummæla um hana á Slim Shady LP. Endar með að hann þurfti að greiða henni 1.600 dollara af upphafl egri kröfu. 2000: Sér þáverandi eiginkonu sína kyssa dyravörð á skemmtistað, ákveður að berja hann með byssuskafti og hlýtur að launum tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. 2001: Eminem ógnar starfsmanni Psychopathic Records með byssu meðan á rifrildi þeirra stendur. Þarf að borga 2.000 dollara í sekt fyrir brot á lögum um vopnaburð og skila af sér nokkrum tímum í samfélags- þjónustu. 2003: Franskur jazzari heimtaði 10 milljónir dollara auk þess sem platan Marshall Mathers LP væri tekin úr sölu og eytt. Ástæðan var að lagið Kill You á plötunni studdist við bút úr einu laga hans. Þó náðist sátt í málinu áður en það fór fyrir dómstóla. 2005: Frændfólk Eminems kærir hann fyrir að hafa lofað að gefa þeim hús upp á 40 milljónir og peninga til að halda því við. Það var þó ekki að þau væru heimilislaus, hann hafði keypt húsið og leyft þeim að búa þar en eignin var á hans nafni. Í KAST VIÐ LÖGIN

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.