Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012 AF AIRWAVES Ingvi Matthías Árnason ingvimz@gmail.com Sigur Rós lauk Iceland Airwaves- hátíðinni í ár í nýju Laugardags- höllinni þar sem hljómsveitin troð- fyllti salinn á fyrstu tónleikum sín- um á Íslandi síðan 2008. Jónsi, söngvari Sigur Rósar og gítarfiðlu- leikari, hóf þá opinberlega sólófer- il sinn og það var ekki fyrr en í ár að Valtari, nýjasta plata Sigur Rósar kom út. Gríðarleg eftirvænt- ing var því greinanleg í salnum. Hljómsveitin leyfði sér að láta gesti bíða örlítið en upphaflegt plan var að upphitunarsveit myndi leika þar til um klukkan níu, en af því varð ekki og þegar hljóm- sveitin steig á svið klukkan átta og fólk var farið að velta fyrir sér hvað væri í gangi, þá var hún í raun á undan áætlun. Efnisskráin hófst með „Laginu í gær“ sem kom fyrst út í Hvarf- safninu, en þaðan undu félagarnir sér yfir í „Vöku“. Gestir tóku lög- unum strax vel og virtust flestir þekkja þau. Tónlistinni fylgdi ótrúlega skemmtilegt samspil grafíkur, myndbanda, reyks og laser-geisla. Í fyrstu lögunum var tjald fyrir sviðinu og á það teiknuðu ljós og sex risastórir myndvarpar andlit og fígúrur í þrívídd í reykinn, við andköf áheyrenda. Það var svo í þriðja laginu að tjaldið féll, Sigur Rós vatt sér yfir í „Ný Batterí“ og lýðurinn gjörsamlega missti sig (og ekki í síðasta sinn á tónleik- unum). Röð myndbandsverka var varpað á íhvolfan vegg fyrir aftan bandið og loks sást almennilega í strákana á sviðinu, kertalýsta og skrúðbúna. „Svefn-g-englar“ voru næstir og allt í kringum mig var fólk ým- ist með lokuð augu eða að kyssast, en þó var ekki hægt að taka augun af sjónarspilinu og fylgdi hljóm- sveitin stemningunni eftir með „Sæglópi“, „Loftárásum“ og frá- bærlega fallegu blöndunni sem varð að lagi (sem mér finnst hafa breyst aftur núna): „Hoppipolla“ + „Með blóðnasir“. Sköpunin í endurtekningunni Eftir þetta sigldu þeir aðeins yfir í nýrra efni en á efnisskránni voru lög frá öllum plötum Sigur Rósar. Slík er hæfni þeirra félaga við að hægja eða auka við hraða laganna eftir vild, með því að bæta við eða taka út takta og laghluta, að öll lögin voru eins og ný fyrir mér. Hef þó séð þá spila oftar en nokkurt annað band. Það er þessi hæfileiki til að skapa á meðan þeir endurtaka, sem meðal annars gerði síðari hluta tónleikanna al- veg sérstaklega heillandi. Mér þótti í fyrstu sérstakt að þeir skyldu einungis taka tvö lög af Valtari, „Varúð“ og svo „Ekki múkk“ í uppklappinu. Þeir tóku þá líka næstsíðast eitt nýtt lag, sem aldrei hafði verið flutt opinberlega áður, „Brennisteinn“ heitir það og er frábær blanda af þessum ein- staka fallega hljóðheimi sem þeir einir búa til, með mjög rafmögn- uðum „electro“ undirtóni. Frábær orka. Ég get ekki beðið eftir að heyra meir í þessum dúr. Þegar litið er til baka sést að Sigur Rós var þarna að nota efni frá öllum tímabilum, með gömlum myndbandsverkum og nýjum, la- serum, þrívíddarfígúrum, nýjum töktum, ótrúlegum trommuleik Orra Páls Dýrasonar og nýjum orðum sem Jónsi oft söng á glæ- nýjan máta, og svo auðvitað kerta- ljósi – til þess að búa til nýtt verk, þessa tónleika. Af fimm stjörnum fá þessir tónleikar sex, ein stjarna er fyrir Kára Sturluson og strák- ana sem stóðu að sjónarspilinu. Airwaves endaði á nýrri byrjun Sköpunarkraftur Sigur Rós á sviði nýju Laugardalshallarinnar á sunnudagskvöldið. „Öll lögin voru eins og ný fyrir mér,“ segir hrifinn rýnir sem hefur oft séð sveitina leika. Söngvarinn Jónsi hrærir í strengjunum – og bogann tókst honum að brjóta. » Af fimm stjörnumfá þessir tónleikar sex … Morgunblaðið/Styrmir Kári Það sem maður man er aðendingu ekki alltaf þaðsama og það sem maðurhefur séð,“ segir í upphafi skáldsögu breska rithöfundarins Julians Barnes sem Bjartur gefur út í bókaflokkn- um Neon. Í stuttu máli má segja að pæl- ingar um hvik- ular minningar gangi eins og rauður þráður í gegnum söguna. Höfundurinn af- hjúpar hvernig okkur bældu karlpungunum – og kannski dömunum líka – hættir stundum til að afbaka liðna atburði í huga okkar og túlka eins og okkur hentar til að byggja upp þolanlega sjálfsmynd, þannig að við getum lif- að við veikleika okkar og bresti. Við eigum það jafnvel til að bæla niður óþægilegar minningar til að berja í brestina. Sagan fjallar um mann sem er sáttur við fortíð sína allt þar til hann fær slæmar fréttir af æskuvini sínum og neyðist til að gera upp við sjálfan sig og fortíð sína. Sagan er spennandi aflestrar og mann fýsir mjög að vita hvað æskuvininum gekk til. Endirinn er vel undir- byggður og kemur á óvart. Frásögnin af hvikulu minning- unum er meðal annars krydduð vangaveltum um tímann, lífshlaup manna, afstæði sannleikans og hvernig sagan verður til. „Sagan er fullvissan sem verður til á kross- götum hvikuls minnis og gloppóttra heimilda,“ segir til að mynda æsku- vinurinn. Gamall kennari söguhetj- unnar bendir á að sagan er ekki að- eins „lygi sigurvegaranna“, heldur „líka sjálfsblekking þeirra sem bíða lægri hlut“. Julian Barnes er 66 ára að aldri og einn af virtustu núlifandi rithöf- undum Bretlands. Hann fékk Booker-verðlaunin í fyrra fyrir þessa bók og gat sér þar með öfund minni spámanna sem skrifa lengri og ómarkvissari sögur. Þýðing Jóns Karls Helgasonar er góð og bóka- flokknum Neon til sóma. Bjartur á heiður skilinn fyrir að gefa út þessa áhugaverðu bók. Bæling karlpunga afhjúpuð Að endingu bbbbn Skáldsaga eftir Julian Barnes í íslenskri þýðingu Jóns Karls Helgasonar. Bjartur, 2012. 165 blaðsíður, kilja. BOGI ÞÓR ARASON BÆKUR Málþingið „Blómstrandi list“ verður hald- ið á morgun, miðvikudag kl. 20-22, í stofu N-132 í Öskju, húsi Háskóla Ís- lands. Fjallað verður um blóm- in og listina í verkum Eggerts Péturssonar. Sýn- ing á verkum hans stendur nú yfir í i8 galleríi. Þóra Ellen Þórhalls- dóttir fjallar um verkin en Andri Snær Magnason um listamanninn. Síðan munu Eggert, Þóra Ellen og Andri Snær sitja fyrir svörum. Málþing um blóm og list Eggerts Eggert Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.