Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Thorvaldsenskonur hafa fært Thorvaldsenssjóðnum tvær millj- ónir króna að gjöf. Félagið stofnaði sjálfstæðan sjóð í nóvember 2003 og tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja og efla hverja þá starf- semi sem lýtur að málefnum barna og unglinga með sykursýki við Barnaspítala Hringsins. Sjóðurinn hefur um áraraðir stutt dyggilega rekstur sumarbúða barna og unglinga með sykursýki. Einnig hafa styrkir verið veittir til tækjakaupa, viðhaldsmenntunar og fræðsluefnis sem lýtur að syk- ursýki. Thorvaldsensfélagið var stofnað 1875 af 24 ungum konum í Reykja- vík en þær höfðu verið beðnar að skreyta Austurvöll í tilefni af komu styttu af Bertel Thorvaldsen sem gefin var af borgarstjórn Kaup- mannahafnar vegna þúsund ára byggðar á Íslandi. Thorvaldsens- félagið hefur rekið Thorvaldsens- bazarinn síðan 1901. Styrkja börn sem þjást af sykursýki Orkan mun styrkja Fjölskylduhjálp Íslands fyrir jólin. Fyrir hvern lítra sem keyptur er á bensínstöðvum Orkunnar, út um allt land til 21. desember, rennur ein króna til Fjöl- skylduhjálpar Íslands. Styrkurinn verður greiddur út á vikufresti fram að jólum. Gera má ráð fyrir að upphæðin sem safnast fyrir Fjölskylduhjálp Íslands með þessu móti verði um 2,5 milljónir króna. Skeljungur (sem rekur Orkuna og Shell) er eitt 18 fyrirtækja sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, veitti Mannúðarverðlaun Fjölskylduhjálpar Íslands s.l. föstu- dag. Orkan styrkir Fjöl- skylduhjálp Íslands Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál, efnir til hádeg- isfundar 12.00 til 13.00 þriðjudaginn 4. desember í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla Íslands. Varðberg hefur fengið norskan lögregluforingja, Sture Martin Vang, og Jón F. Bjartmarz yfirlögregluþjón hjá embætti ríkislög- reglustjóra til að ræða voðaverk gegn þjóðaröryggi. Erindi Sture Martin Vang heitir: 22.7.11 – hvað gerðist og hvað höfum við lært? Hann flytur erindi á ensku. Erindi Jóns F. Bjartmarz heitir: Hver er staðan á Íslandi? „Voðaverkið sem unnið var í Osló og Úteyju 22. júlí 2011 skilur eftir sig sár sem seint gróa. Það hefur einnig orðið tilefni rann- sókna á vernd þjóðaröryggis og viðbrögðum lögregluyfirvalda,“ segir í til- kynningu frá Varðbergi. Fundurinn er öllum opinn. Ræða um voðaverk gegn þjóðaröryggi Í dag, þriðjudaginn 4. desember, verður síðasti hádegisfyrirlestur vetrarins í hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélags Íslands undir yfirskriftinni Hvað er fátækt? Að þessu sinni mun Gísli Gunn- arsson, sagnfræðingur og pró- fessor emeritus við Háskóla Ís- lands, flytja erindið „Fátækt á Íslandi í aldanna rás“. Fyrirlesturinn er haldinn í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Ís- lands og hefst stundvíslega klukkan 12.05 og lýkur klukkan 13.00. Fyrirlestur um fá- tækt í aldanna rás STUTT SVIÐSLJÓS Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Í Færeyjum fellur dómur innan skamms í morðmáli þar sem ekkert lík hefur enn fundist. Morð eru fátíð í Færeyjum. Þetta tiltekna mál er all- sérstakt þar sem málatilbúnaðurinn byggist hvorki á líki né játningu hins ákærða. Málið, sem þekkt er undir nafninu Pidda-málið, í þarlendum miðlum hefur fengið mikla umfjöllun í sam- félaginu. Málið hefur verið fyrir dóm- stólum í rúman mánuð en Ísland kom meðal annars við sögu í rannsókninni. Málsatvikin voru með þeim hætti að 42 ára gamall Færeyingur, Dánial Petur Hansen, sem ávallt er kallaður Piddi í færeyskum fjölmiðlum, hvarf 4. nóvember 2011. Lögreglan lýsti eftir Pidda og víðtæk leit var gerð en án árangurs. Vaknaði snemma grun- ur um að honum hefði verið ráðinn bani, einkum í ljósi þess að blóð úr honum fannst í herbergi hans, blóð- slóð lá niður stiga hússins sem hann bjó í og blóð fannst í skotti Skóda- bifreiðar, sem var í eigu fyrrverandi eiginkonu Pidda. Böndin bárust fljótt að Króatanum Milan Kolovrat, 33 ára, sem var hand- tekinn um miðjan nóvember í fyrra og hefur síðan setið í gæsluvarðhaldi. Hann og Piddi bjuggu í sama húsi. Piddi var skilinn við eiginkonu sína en hún hafði tekið upp samband við Ko- lovrat. Kolovrat hefur neitað því staðfast- lega í yfirheyrslum að hafa ráðið Pidda bana. Hins vegar segir Leo Poulsen, blaðamaður á færeyska blaðinu Sosialurin, að Kolovrat hafi ýjað að því við lögregluna að hann hafi komið að dauða Pidda. Lögmað- ur hans var hins vegar ekki viðstadd- ur og við formlegar skýrslutökur hafi hann ætíð haldið fram sakleysi sínu. Fór til Íslands sl. haust Um tíma þegar Pidda var leitað var kannað hvort hann hefði farið til Ís- lands án þess að láta ættingja sína vita. Fram kom við réttarhöldin, að Piddi hefði sótt sjávarútvegs- ráðstefnu á Íslandi í september 2011 og kynnst íslenskri konu. Honum hefði orðið tíðrætt um þennan kven- mann við ættingja sína og sagðist vilja hitta konuna aftur. Rannsakað var meðal annars hvort hann hefði farið með flutningaskipi til Íslands en svo var ekki. Rejseholdet frá Danmörku Danska lögreglan sendi rannsókn- arhóp, svonefnt rejsehold, til Fær- eyja til að aðstoða færeysku lögregl- una við rannsókn málsins. Hún lagðist í viðmikla rannsókn á tækni- legum atriðum. Ákæran í málinu byggist að stórum hluta á rannsókn dönsku lögreglumannanna. Blóð og blóðslóð úr Pidda fannst víða og einnig á jakka Milans Kolovr- ats. Bíllinn, þar sem blóðleifar fund- ust, hafði verið þrifinn og reynt hafi verið að ná blóðinu úr bílnum. Ákæruvaldið lagði fram meint morðvopn: steikarpönnu sem haldið er fram að Milan Kolovrat hafi notað til að myrða Pidda með. Þrír bútar úr pönnunni fundust á tveimur stöðum: pannan og skaftið fundust í íbúð Kolovrats og þriðji bút- urinn fannst í herbergi Pidda. Blóð Pidda fannst á pönnunni og bútnum en DNA úr honum á skaftinu. Jogvan Arge, fréttamaður í Fær- eyjum, segir að ákæruvaldið telji ástæðuna fyrir morðinu þá að Kolovr- at hafi ætlað að henda Pidda út úr húsinu sem er eign konunnar. Þá hafi slegið í brýnu milli þeirra með þeim afleiðingum að Kolovrat hafi slegið Pidda með pönnunni, lagt hann á plastdúk, dregið hann út og sett í skottið á bílnum og komið honum ein- hvers staðar fyrir. Leo Poulsen blaðamaður telur mjög líklegt að Milan Kolovrat verði fundinn sekur. Von er á niðurstöðu landsdóms í Færeyjum innan skamms. Ekkert lík en ákærður fyrir morð  Króati ákærður fyrir að myrða Færeying með steikarpönnu  Líkið hefur ekki enn fundist ári eftir að mannsins var saknað  Sá ákærði neitar sök  Rannsakað hvort maðurinn hefði farið til Íslands Sosialurin/Janus Dam Guttesen Dómsmál Í réttarsal í Færeyjum, dómarar að störfum í máli þar sem hvorki lík né játning liggur fyrir. Málið vakti mikinn óhug með- al Færeyinga enda hefur ekki komið upp morðmál í landinu frá árinu 1988 þegar ungur maður á Suðurey skaut unn- ustu sína til bana í afbrýð- isæði. Réttarhöldin nú eru ein þau umfangsmestu sem um getur í eyjunum en yfir sextíu vitni voru kölluð fyrir Føroya Rætt. Verjandi sakborningsins hefur krafist sýknu og gagn- rýnt málsmeðferðina harð- lega. Fyrsta morð- ið frá 1988 MÁLIÐ VAKTI ÓHUG ÞÚ GETUR GERT KRAFTAVERK Í DAG Með hreinu vatni gefur þú betri heilsu, menntun og bjarta framtíð. Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka Einnig: ■ frjálst framlag á framlag.is ■ gjafabréf á gjofsemgefur.is ■ 907 2003 styrktarnúmer (2.500 kr.) ■ söfnunarreikningur: 0334-26-50886, kt. 450670-0499 GEFÐU GJÖF SEM SKIPTIR MÁLI PI PA R\ TB W A -S ÍA -1 23 23 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.